Fréttablaðið - 19.10.2004, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 19.10.2004, Blaðsíða 42
34 19. október 2004 ÞRIÐJUDAGUR GRETTIR SÝND KL. 4 M/ÍSLENSKU TALI POKÉMON-5 SÝND KL. 4 kr. 450 M/ÍSL TALI FRÁ LEIKSTJÓRA SCARY MOVIE SÝND kl. 5.45, 8 og 10.15 SÝND kl. 5.30, 8 og 10.15 HHH Ó.Ö.H DV FRÁBÆR SKEMMTUN GAURAGANGUR Í SVEITINNI kl. 4 M/ÍSL.TALI SHREK 2 kl. 4 M/ÍSL.TALI PRINCESS DIARIES 2 kl. 8.15 RESIDENT EVIL 2 Sýnd kl. 6 - 8 - 10.10 B.I. 16 YU-GI-OH ! Sýnd kl. 4 Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 „Ég anda, ég sef, ég míg ... Tónlist" Bubbi Morthens Til heljar og til baka með atómbombunni Bubba Morthens , , ... HHHM.M.J.kvik myndir.com „Wimbledon er því úrvals mynd, hugljúf og gamansöm, og ætti að létta lundina hjá bíógestum í skam- mdeginu.“ HHHH S.V. MBL HHH1/2 V.G. DV SÝND kl. 5.40, 8 og 10.20 B.I.16 ára SÝND Í LÚXUS kl. 5.40, 8 og 10.20 Þær eru mættar aftur...enn blóðþyrstari! Kyngimagnaður spennutryllir sem fær hárin til að rísa. Sýnd kl. 6 - 8 - 10.20 B.I. 16 Sýnd í Lúxus VIP kl. 8 - 10.20 B.I. 16 SÝND kl. 4 - 6 m/ísl.tali. SÝND kl. 4 - 6 - 8 - 10.10 m/ensku.tali. SÝND kl. 5 m/ísl.tali. SÝND kl. 7, 9 og 11 m/ensku.tali. Frábær lokakafli Exorcist seríunnar sem rekur forsögu hins illa. Hið illa átti sér upphaf. Mögnuð hrollvekja í leikstjórn Renny Harlins ( Deep Blue Sea, Long Kiss Goodnight, Die Hard 2) Farðu að rótum illskunnar MYND EFTIR FRIÐRIK ÞÓR FRIÐRIKSSON HHH Ó.H.T. Rás 2 Sýnd kl 6 Sýnd kl 8 Sýnd kl 10 Sýnd kl. 5.50 - 8 og 10.10 Sýnd kl 5.45 - 8 og 10.15 SÝND kl. 10.20 B.I. 14 Sýnd kl. 5.40 og 8 L i t la Kvikmyndahát íðin Outfoxed SÝND kl. 5.50, 8 og 10.20 SÝND kl. 10.20 B.I. 16 2 fyrir 1 á allar erlendar myndir í dag ef greitt er með Námukorti Landsbankans HHH 1/2 kvikmyndir.is HHH 1/2 kvikmyndir.is HHHH kvikmyndir.is HHHH kvikmyndir.is ■ TÓNLIST Sun. 24. okt. kl. 20 • lau. 30. okt. kl. 20 fös. 12. nóv. kl. 20 • sun. 14. nóv. kl. 20 ATH. Fáar sýningar. Atriði í sýningunni eru ekki við hæfi barna. Ekki er hleypt inn í salinn eftir að sýning hefst. Litla stúlkan með eldspýturnar Frumsýning lau. 23. okt. kl. 14 • sun. 24. okt. kl. 14 • lau. 30. okt. kl. 14 • sun. 31. okt. kl. 14 Leitin að Rómeó - aríur og söngvar eftir Gounod, Bellini, Bernstein og Sondheim Hádegistónleikar þriðjudaginn 26. okt. kl. 12.15 Hulda Björk Garðarsdóttir sópran og Kurt Kopecky píanó. Gestur: Maríus Sverrisson. Rakarinn morðóði Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 virka daga. Miðasala á Netinu: www.opera.is Lokaslagið í höndum Rabba Í dag kemur út platan Fuglar geta ekki flogið á tunglinu, sem Rafn heitinn Jónsson tók upp skömmu áður en hann lést af völdum MND-sjúkdómsins. Draumurinn hjá Rabba hafði verið að taka upp plötu í Abbey Road-hljóðverinu fræga þar sem Bítlarnir voru tíðir gestir á sín- um tíma. Eftir að hafa byrjað að tala um ferðina fyrir sjö árum ár lét hann slag standa síðasta sum- ar, hóaði saman hljóðfæraleikur- um í vinahópnum og í fjölskyld- unni og skipulagði hópferð til London. Í hópnum voru synir hans Ragnar Zolberg og Egill ásamt þeim Rúnari Þórissyni, Jóni Ólafssyni, Haraldi Þor- steinssyni, Degi Kára Péturs- syni, Birki Rafni og Adda 800. „Við vorum þarna í tvo daga og tókum upp grunna fyrir tíu lög. Það var eiginlega allt tekið upp „live,“ segir Ragnar Zolberg, aðspurður um upptökurnar í Abbey Road. „Það var alveg stór- magnað að vera þarna. Þetta er algjört töfrahús.“ Veturinn eftir var áfram unn- ið við gerð plötunnar hér heima. Textar voru samdir, aukagítarar spilaðir, tveimur lögum bætt við og að lokum sungið. Sá Ragnar alfarið um sönginn á plötunni en Andrea Gylfa sá um bakraddir. Hljóðblöndun plötunnar var í höndum Ken Thomas og hófst hún þann 26. júní. Morguninn eftir lést Rabbi eftir að takmarki hans hafði verið náð. Að sögn Ragnars var nafn plöt- unnar einhver hugmynd sem pabbi hans fékk. „Hann var nú frægur fyrir að fá skrítnar hug- myndir, en góðar. Hann kom með þessa hugmynd til mín einn dag- inn og við ákváðum að gera texta um þetta. Það er eitt lag sem heit- ir þessu nafni og það var seinna meir ákveðið að það skyldi vera titillag plötunnar,“ segir hann. Öll lögin á plötunni eru eftir Rabba. Hafði hann verið að leika sér með gamlar hugmyndir sem hann átti ofan í skúffu. Eitt lagið, Freedom, var til að mynda samið 1970 fyrir hljómsveit á Ísafirði sem Rabbi var einmitt í. Það er jafnframt eina lag plötunnar sem er sungið á ensku. Ragnar vill ekki meina að það hafi verið erfitt að vinna plötuna með pabba sinn svona veikan. „Það var kannski erfiðast fyrir hann held ég. Hann var náttúr- lega bara stjórinn í stúdíóinu, sat yfir okkur og gaf skipanir. Annars var hann með svo flotta menn með sér sem hann var bú- inn að spila með lengi. Þessi lög byggjast eiginlega á fílingnum sem var í stúdíóinu,“ segir hann og bætir við: „Það var æðislega gaman að taka þátt í þessu. Mað- ur lærði mikið á þessu og bróðir minn líka. Það var rosalega gott að vinna með honum. Hann var svolítið að leyfa okkur að sleppa okkur á þessari plötu. Hann var það mikill rokkari að hann var ekkert að setja neinar bremsur.“ Rabbi spilar í einu lagi á plöt- unni og kallast það Minningar. Hafði hann tekið upp tromm- urnar við það árið 1989 og geymt spóluna síðan á góðum stað. „Þetta er seinasta lagið á plöt- unni,“ segir Ragnar að lokum. „Það endar á þessum trommum, þannig að hann á lokaslagið.“ freyr@frettabladid.is RABBI Rabbi spilar í einu lagi á nýju plötunni sinni. Var trommuleikurinn tekinn upp árið 1989. RAGNAR ZOLBERG Ragnar Zolberg söng öll lögin á nýrri plötu föður síns. Hann segir það hafa verið rosalega gott að vinna með honum. M YN D /S TE FÁ N K AR LS SO N

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.