Fréttablaðið - 20.10.2004, Page 2
2 20. október 2004 MIÐVIKUDAGUR
Búist er við að vind lægi töluvert í dag:
Vindhviður mældust mest
ríflega 50 metrar á sekúndu
VEÐUR Óveðrið sem geisað hefur
víða um land síðan á mánudag
með miklu hvassviðri á Suður-
og Vesturlandi mun ganga niður
í dag, samkvæmt upplýsingum
frá Veðurstofu Íslands.
Björn Sævar Einarsson veð-
urfræðingur segir að nokkuð
víða hafi vindhviður mælst 50
metrar á sekúndu. Mesti meðal-
vindurinn var í Staðarsveit. Þar
mældist hann 35 metrar á sek-
úndu. Björn Sævar segist búast
við mun betra veðri í dag. Búist
sé við norðvestan 10 til 18 metr-
um á sekúndu og hvassast verði
við suðvestur- og vesturströnd-
ina.
Hann segir að vinstrengurinn
sem verið hafi yfir landinu sé
tilkomin vegna lægðar sem
komið hafi að landinu á sunnu-
daginn. Á sama tíma hafi mikil
hæð verið yfir Grænlandi og
það hafi þétt þrýstilínur og
skapað þetta hvassviðri. Hann
segir lægðina ekki hafa verið
neitt sérstaklega djúpa. Hún
hafi mest farið niður í 989 milli-
bör en hæðin hafi verið yfir
1040 millibör.
Þó vindkæling hafi verið tölu-
verð í gær var hitastigið víðast
hvar um frostmark. Björn
Sævar segir að mestur hiti hafi
mælst á Fagurhólmsmýri eða 10
stig. - th
Tveir af fjörutíu
voru í bílbeltum
Rúta með fjörutíu manns innanborðs valt á veginum undir Akrafjalli.
Allir fóru á Sjúkrahúsið á Akranesi. Fimm liggja enn nokkuð slasaðir á
sjúkrahúsinu. Bílbelti voru í rútunni en aðeins tveir voru spenntir.
SLYS Mildi þykir að enginn skyldi
hafa slasast lífshættulega þegar
rúta með fjörutíu manns innan-
borðs fauk út í kant og valt út af
veginum undir Akrafjalli um
klukkan sjö í gær-
morgun. Rútan
endaði á toppnum
fyrir neðan veg-
inn.
Allir nema einn
farþeganna eru
starfsmenn hjá
Norðuráli á Grundartanga. Þórir
Bergmundsson, lækningaforstjóri
Sjúkrahússins á Akranesi, segir að
27 manns hafi í fyrstu verið fluttir
á sjúkrahúsið, hinir hafi haldið til
vinnu. Síðar um daginn hafi þeir
hins vegar allir komið upp á
sjúkrahús í skoðun. Hann segir að
tíu manns hafi verið lagðir inn.
Tveir hafi verið sendir í rannókn
til Reykjavíkur en þeir hafi síðan
komið aftur á Sjúkrahúsið á
Akranesi. Í gærkvöldi voru fimm
manns enn á sjúkrahúsinu og
segist Þórir reikna með því að þeir
verði þar í nokkra daga
„Það eru tveir talsvert slasaðir
en það er enginn í lífshættu,“ segir
Þórir. „Þeir sem liggja á sjúkra-
húsinu núna eru með brotin bein
og töluvert marðir.“
Þórir segir að það hafi gengið
snurðurlaust fyrir sig að taka á
móti öllum þessum fjölda slasaðra.
Um tíma hefði verið mikill asi á
sjúkrahúsinu því auk allra hinna
slösuðu hefðu aðstandendur að
sjálfsögðu komið á staðinn.
„Það vildi svo til að þetta gerð-
ist þegar vaktaskipti voru. Það var
því mikill mannskapur í húsinu og
við gátum gengið í þetta hratt og
vel. Síðan erum við með hópslysa-
áætlun sem við vinnum eftir.“
Norðurál gerir kröfu um að rút-
ur sem flytja starfsmenn séu með
bílbeltum og var rútan sem fór út
af búin beltum fyrir farþega. Hins
vegar voru aðeins tveir þeirra í
beltum.
„Þetta er forkastanlegt kæru-
leysi,“ segir Þórir. „Þarna eru
menn á ferð í fárviðri og ég held að
það sé algjör mildi að ekki fór verr
en þetta. Ég er ekki viss um þetta
fari svona næst ef menn verða
óbundnir.“ trausti@frettabladid.is
Moldrokið náði til Eyja:
Brún slikja
yfir bænum
LÖGREGLA Mikið moldrok var á há-
lendinu í hvassviðrinu sem gekk
yfir landið í gær og fyrradag.
Að sögn lögreglunnar í Vest-
mannaeyjum fóru Eyjamenn ekki
varhluta af moldrokinu. Var það
svo mikið að varla sást út úr aug-
um um tíma. Bílar og hús eru með
brúnni slikju og sagði lögreglan
að í raun væri bærinn eins og það
væri nýbúið að draga hann upp úr
drullupolli. Þetta mun ekki vera
einsdæmi í Vestmannaeyjum því í
stífri norðanátt berst moldrokið
gjarnan alla leið út í Eyjar.
Vonaðist lögreglan til að vind-
urinn snerist í suðlæga átt á
næstu dögum því henni fylgir
gjarnan rigning. Ekki er vanþörf
á smá vætu til að hreinsa skítugan
bæinn.
- th
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
,,Þetta er
forkastan-
legt kæru-
leysi
Hvaða kjáni sem er getur samið
bók en það þarf snilling til að
byggja skúr sem stendur í 100 ár.
Sagnfræðingurinn Stefán Pálsson vill að grá-
sleppuskúrar við Ægisíðu verði lagfærðir ásamt
öðrum mannvirkjum sem við þá standa. Elstu
skúrarnir hafa staðið við sjávarsíðuna í rúma öld.
Fylgismenn hugmyndar Stefáns eru margir.
SPURNING DAGSINS
Stefán, er sagan betur geymd í skúr-
um en bókum?
Hæsta bygging í Evrópu:
Tvíbura-
turnar rísa
MOSKVA, AP Hafist hefur verið
handa við að reisa hæstu bygg-
ingu Evrópu, tvo skýjakljúfa, sem
rísa munu í Moskvu og lokið verð-
ur við 2007. Í Byggingunni verða
skrifstofur og íbúðir og verður
hærri byggingin 340 metra há.
Byggingin mun nefnast „Sam-
bandsríkið“ og verður útsýnis-
pallur á henni þar sem sjást mun
yfir alla borgina.
Hæsta bygging vestur-Evrópu
er Commerzbank í Frankfurt, en
hún er 259 metrar. Nýi skýjakljúf-
urinn í Moskvu verður þó langt
frá því að komast á lista yfir
hæstu byggingar heims. Hæsta
bygging heims nefnist Tapei 101
og er 509 metra há eða um helm-
ingi hærri en „Sambandsríkið“.■
VEÐURKORT
Á kortinu má sjá útlínur Íslands og lægðar-
miðjuna fyrir sunnan landið.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/M
YN
D
/V
EÐ
U
R
ST
O
FA
ÍS
LA
N
D
S
Landssíminn:
Beiðninni
hafnað
LANDSSÍMINN Stjórn Landssíma
Íslands hefur hafnað kröfu Stein-
gríms J. Sigfússonar, alþingis-
manns, um að boðað verði til
hluthafafund-
ar í fyrirtæk-
inu vegna
kaupa þess á
hlut í Skjá ein-
um.
Í svari sínu
lýsir stjórnin
sig ósammála
þeirri túlkun
Steingríms að
kaup Lands-
símans á hlut í
Skjá einum feli
í sér verulegar
breytingar á rekstri Landssím-
ans.
Steingrímur hefur mótmælt
ákvörðun stjórnarinnar og segir
að í ljósi þess að Skjár einn hljóti
nú að teljast dótturfélag Lands-
símans, þá ítreki hann kröfu sína
um hluthafafund.
- bþe
RÚTAN ENDAÐI Á TOPPNUM
Enginn farþeganna slasaðist lífshættulega. Varð það fólki til happs að þak rútunnar skyldi ekki gefa sig.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/M
YN
D
/
H
IL
M
AR
S
IG
VA
LD
AS
O
N
SVEITARSTJÓRNARMÁL Borgarstjórn
Reykjavíkur skorar á ríkisstjórn-
ina að efla tekjustofna sveitarfé-
laga þannig að þau geti með eðli-
legum hætti sinnt þeim verkefn-
um sem þau hafa með höndum.
Áskorunin var samþykkt sam-
hljóða á fundi borgarstjórnar í
gær.
Margrét Sverrisdóttir, vara-
borgarfulltrúi frjálslyndra lagði
fram tillögu í þessa átt en henni
var breytt með tillögu Reykjavík-
urlistans. Margrét sagði á fundin-
um að það væri með ólíkindum að
fulltrúar Reykjavíkurlistans vís-
uðu sífellt til þess að kennara-
verkfallið væri í höndum launa-
nefndar sveitarfélaganna á með-
an flokkssystkin þeirra á Alþingi
brýndu ríkisvaldið til aðgerða.
Hún féllst síðan á breytinguna og
þótti hún viðunandi.
Nefnd sem á að fjalla um
breytta tekjustofna sveitarfé-
laganna kom saman í gær.
Reyndist fundur nefndarinnar
árangurslaus og hefur annar
fundur ekki verið boðaður fyrr
en 12. nóvember, eftir að fjár-
málaráðstefnu sveitarfélaganna
lýkur.
Nokkrir sveitarstjórar hafa
lýst yfir nauðsyn þess að nefnd-
in skili tillögum áður en ráð-
stefnan fer fram til að hægt sé
að taka á bráðum fjárhagsvanda
verst settu sveitarfélaganna.
Fyrir fundinn í gær hafði nefnd-
in ekki komið saman síðan í vor
vegna ágreinings fulltrúa sveit-
arstjórna og ríkis. - ghg
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
Borgarstjórn Reykjavíkur skorar á stjórnvöld:
Ríkisstjórnin efli sveitarfélögin
Í BORGARSTJÓRN Í GÆR
Þórólfur Árnason borgarstjóri og Árni Þór
Sigurðsson, forseti borgarstjórnar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Strokufangi:
Handtekinn
eftir árás
LÖGREGLUMÁL Nítján ára gamall
fangi sem strauk úr fangelsinu
við Skólavörðustíg að morgni
mánudags var handtekinn á veit-
ingastað í miðbæ Hafnarfjarðar
síðar um daginn. Hann hefur nú
verið vistaður í fangelsinu að
nýju.
Lögreglan í Hafnarfirði hand-
tók manninn seint á mánudags-
kvöldið eftir að hann réðst á
starfsmann veitingastaðar í bæn-
um. Tók hann starfsmanninn með-
al annars hálstaki.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglu þótti maðurinn ekki hættu-
legur. - ghg
BÍLAR SKEMMDIR EFTIR SAND-
FOK Vel á þriðja tug bíla
skemmdist í grjót og sandfoki við
Vík í Mýrdal aðfaranótt þriðju-
dags. Að sögn lögreglu eru sumir
bílanna töluvert mikið skemmdir.
Lakk er ónýtt á mörgum þeirra
og rúður brotnar. Fimm rúður í
sama bílnum brotnuðu í einni
vindhviðunni.