Fréttablaðið - 20.10.2004, Qupperneq 4
4 20. október 2004 MIÐVIKUDAGUR
Mildi að enginn skyldi slasast í ótrúlegri slysaöldu:
Ekið á lögreglubifreið við
slysstað í Langadal
LÖGREGLA Þrír bílar lentu utan
vegar og einn árekstur varð í
norðanverðum Langadal í gær-
dag. Enginn slaðasist alvarlega
en tveir bílar eru nokkuð
skemmdir.
Að sögn lögreglunnar á
Blönduósi var atburðarásin
mjög óvenjuleg því óhöppin
gerðust öll á sama tíma. Aðstæð-
ur í Langadal voru slæmar. Þar
var mikið rok, éljagangur og
snjór, og hálkublettir á vegin-
um.
Um klukkan hálffjögur ók
bíll út af veginum. Lögreglan
kom á staðinn en tókst ekki að
ná bílnum upp á veginn. Hún fór
í burtu í skamma stund og kall-
aði á björgunarsveit til að reyna
að ná bílnum upp. Síðan hélt
lögreglan aftur á slysstað til að
hjálpa björgunarsveitarmönn-
um. Þegar hún var að leggja
bílnum við vegkantinn kom ann-
ar bíll. Hann fór nákvæmlega
sömu leið og sá er lenti utan
vegar nema hvað að hann klessti
á lögreglubílinn sem kastaðist á
bílinn sem var utan vegar.
Þegar lögreglan var rétt búin
að átta sig á aðstæðum á nýjan
leik kom flutningabíll aðvífandi.
Hann stefndi beint á bílinn sem
stóð eftir á veginum en til að
forða árekstri beygði ökumað-
urinn út af.
Mildi þykri að enginn skyldi
hafa slasast, sérstaklega þar
sem lítið skyggni var þegar
óhöppin urðu.
-th
ELDSVOÐI Óhemjuerfiðar aðstæður
í ofsaroki mættu slökkviliði á
bænum Knerri í Breiðuvík á Snæ-
fellsnesi um klukkan átta á mánu-
dagskvöldið, en þar brunnu um
kvöldið og nóttina fjárhús, hlaða
og tækjageymsla. Talið er að yfir
600 sláturlömb hafi brunnið inni í
eldsvoðanum og einhverjar kind-
ur drápust líka. Í tækjageymsl-
unni brunnu svo, að sögn Jóns
Þórs Lúðvíkssonar, slökkviliðs-
stjóra í Ólafsvík, töluverð verð-
mæti. „Fjárflutningabíll, gröfur,
traktorar, heyhleðsluvagn og allt
mögulegt.“ Íbúðarhús bæjarins
sem stendur um 50 metrum frá
útihúsunum slapp. Talið er að
vindhraði hafi farið hátt í 60
metra á sekúndu í hviðum.
Friðgeir K. Karlsson, bóndi á
Knerri, varð var við eldinn
skömmu eftir að kvöldfréttir
Sjónvarpsins hófust, en hann sá
þá úti bjarmann frá hlöðunni sem
stóð í björtu báli, en eldurinn er
talinn hafa kviknað af hitnun í
heyinu, sem vindurinn náði svo að
magna upp. Friðgeir og bændur
sem dreif að frá nærliggjandi
bæjum, reyndu eftir megni að
bjarga kindum út úr brennandi
fjárhúsinu, en tókst ekki að
bjarga nema á þriðja tug kinda.
„Þeir lögðu sig í stórhættu og
mildi að þeir sluppu sjálfir úr
reykjarkófinu,“ sagði Jón Þór og
bætti við að aðkoman hafi verið
skelfileg. „Allt var alelda og við
reyndum bara að verja það sem
við gátum. Svo skipti áttum alveg
sitt á hvað, yfir okkur fuku járn-
plötur og við þurftum að hörfa og
sækja á víxl,“ sagði hann og taldi
að slökkviliðsmennirnir hafi verið
í stórhættu í veðurofsanum. „Rok-
ið var slíkt að við vorum tveir sem
misstum hjálmana þegar þeir
rifnuðu af okkur í veðurofsanum.
Svo hlupu kindur út logandi, sum-
ar brunnar í framan, blindar.“ Jón
Þór lýsti því hvernig slökkviliðs-
menn hafi hörfað inn í tankbíl
fullan af vatni þegar veðurofsinn
var hvað mestur og óttast mest að
veðrið velti honum, því hann hafi
skekist til „eins og hundur að
hrista sig.“ Þá var vatnsskortur á
bænum og þurfti því að sækja
vatn á næstu bæi.
„Maður veit bara ekki enn þá
hvað tekur við,“ sagði Friðgeir K.
Karlsson, bóndi á Knerri. Auk
þess að missa sláturlömbin auk
einhverra sauða og veturgamals
fjár sem hann ætlaði að láta slátra
brann allt heyið í hlöðunni og á
hann því hvorki eftir húsaskjól né
fæði handa á áttunda hundrað fjár
sem ekki voru í húsi. Friðgeir
taldi að um helmingurinn af því
sem varð eldi að bráð hafi verið
tryggt. „Svona helmingurinn af
kofunum og skepnurnar held ég,“
sagði hann.
Þegar leið að miðjum degi í
gær var tekið að lægja við bæinn,
en þá logaði enn í hlöðunni og
reykur lá yfir öllu. Greina mátti
hræ inni í fjárhúsi og dauðar kind-
ur lágu við útihúsin. Þá mátti
heyra glamur í bárujárnsplötum
sem rifnað höfðu frá klæðningu
útihúsanna þegar þær komu velt-
andi niður fjallshlíðina fyrir ofan
bæinn, undnar og sviðnar eftir
átök næturinnar.
olikr@frettabladid.is
Hnífsárás í Svíþjóð:
Myrti barn
og konu
SVÍÞJÓÐ Ungur maður myrti átta
ára dreng og tæplega sextuga
konu þegar hann réðist á þau,
vopnaður hníf, í Linköping í Sví-
þjóð snemma í gærmorgun.
Árásarmaðurinn skar drenginn
svo illa að hann var látinn þegar
hann kom á sjúkrahús. Konan var
enn lifandi þegar hún kom á
sjúkrahús og reyndu læknar hvað
þeir gátu til að bjarga lífi hennar.
Það tókst ekki og lést hún
nokkrum klukkutímum síðar.
Um það bil hundrað lögreglu-
menn leituðu manns á þrítugs-
aldri í gær. Ekki er vitað hvers
vegna hann réðst á fólkið. ■
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
Er rétt að auka álögur á áfengi í
heilsuvarnarskyni?
Spurning dagsins í dag:
Eiga kennarar á undanþágu í verkfall-
inu að fá laun samkvæmt ráðningar-
samningi?
Niðurstöður gærdagsins
á visir.is
67.76%
32.24%
Nei
Já
KJÖRKASSINN
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
Kajakleiðangurinn:
Myndir
björguðust
KAJAKLEIÐANGUR Nú er ljóst, að
fjöldi mynda sem fjórir þátttak-
endur í kajakleiðangri tóku í rúm-
lega 900 kílómetra róðri við
austurströnd Grænlands bjargað-
ist, að sögn Baldvins Kristjáns-
sonar leiðangursstjóra.
Búnaðurinn varð allur eftir í
bát sem bilaði er verið var að
sækja leiðangursmenn eins og
menn muna.
Baldvin segir nú vitað að tölva
leiðangursmanna hafi ekki blotn-
að. Í henni er fjöldi stafrænna
mynda, sem teknar voru í ferð-
inni. Þá bjargaðist eitthvað af öðr-
um tæknibúnaði mannanna, þar á
meðal myndavél Baldvins, en
heildarverðmæti búnaðarins nem-
ur alls um 2,5 milljónum króna.
- jss
Komið í veg fyrir
hryðjuverk á Spáni:
Sprengja átti
dómshús
SPÁNN, AP Lögreglan leysti upp hóp
róttækra múslima sem áformað
höfðu að sprengja upp dómshús í
Madríd á Spáni, þaðan sem rann-
sókn á íslömskum hryðjuverka-
samtökum er stjórnað.
Sjö grunaðir voru handteknir á
mánudag og einn til viðbótar í
gær. Flestir eru Alsírbúar og
höfðu sumir þeirra tengsl við
hernaðarsamtök annars staðar í
Evrópu, Bandaríkjunum og Ástr-
alíu.
Talið var að hópurinn hyggðist
sprengja vöruflutningabíl, hlað-
inn 500 kílóum af sprengiefni, í
loft upp fyrir utan dómshúsið sem
stendur við fjölfarna götu í mið-
borg Madrídar. ■
STÓRSLYSALAUST Í BORGINNI
Umferðin gekk stóráfallalaust
fyrir sig í hvassviðrinu í Reykja-
vík í gær. Nokkrir minni árekstr-
ar urðu en að sögn lögreglu er
eins og ökumenn aki varlegar
þegar veður er svona slæmt. Lög-
reglan í Hafnarfirði og Kópavogi
hafði sömu sögu að segja.
LOGN Á PATREKSFIRÐI „Hér er
logn, sól og sléttur sjór,“ sagði
lögreglan á Patreksfirði við
Fréttablaðið í gærkvöldi. Að sögn
lögreglu hafa bæjarbúar sloppið
við vindstrenginn sem gengið
hefur um sunnan- og vestanvert
landið. Skýringin er sú að í norð-
anátt er veður yfirleitt gott á
þessum slóðum.
Kindur hlupu logandi út
meðan slökkvilið starfaði
Talið er að á sjöunda hundrað fjár hafi brunnið inni í eldsvoða á bænum Knerri á sunnanverðu
Snæfellsnesi á mánudagskvöld. Mikið eignatjón varð þegar hlaða, fjárhús og skemma með fjölda
tækja urðu eldi að bráð. Slökkvistarfi lauk í gær.
VIÐ ÚTIHÚSIN Á KNERRI
Dauðar kindur voru fyrir utan útihúsin á Knerri á Snæfellsnesi, en þar kviknaði í út frá heyi á mánudagskvöldið. Talið er að á sjöunda hundrað fjár hafi brunnið inni í eldsvoðanum.
DAGINN EFTIR
Reykur lá yfir og smáeldar loguðu enn í hlöðunni eftir hádegi í gær.
SLÖKKVILIÐSSTJÓRINN
Jón Þór Lúðvíksson, slökkviliðsstjóri í
Slökkviliði Snæfellsbæjar, stjórnaði aðgerð-
um á vettvangi, en einnig barst liðsauki frá
Slökkviliði Grundarfjarðar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
BALDVINKRISTJÁNSSON
Fær myndavélina sína aftur.