Fréttablaðið - 20.10.2004, Page 11

Fréttablaðið - 20.10.2004, Page 11
11MIÐVIKUDAGUR 20. október 2004 ÓHLÝÐNAST HERMENN? Yfir- menn ísraelska hersins óttast að fjöldi hermanna neiti að gegna skyldum sínum við að flytja land- tökumenn á brott frá byggðum á Gaza sem stendur til að yfirgefa. Þeir óttast að hermennirnir verði við ákalli ýmissa trúarleiðtoga gyðinga sem eru mjög harðir í andstöðu sinni við áætlun Ariels Sharon forsætisráðherra. FYRSTUR TIL AUSTURRÍKIS Moshe Katzav, forseti Ísraels, varð í gær fyrsti þjóðarleiðtogi Ísraels til að koma í opinbera heimsókn til Austurríkis. Markmið heim- sóknarinnar er að auka viðskipti landanna en Katzav heimsótti líka einangrunarbúðirnar í Maut- hausen þar sem tugþúsundir gyð- inga létust. ■ ÍSRAEL JERÚSALEM, AP Leiðtogi stjórnar- andstöðunnar í Ísrael, Shimon Peres, hefur varað við því að öfga- menn úr röðum Gyðinga gætu reynt að ráða Ariel Sharon for- sætisráðherra af dögum. Ástæðan er sögð vera fyrirætlanir Sharons um að draga herlið sitt til baka frá Gaza svæðinu á næsta ári. Sharon stendur frammi fyrir aukinni mótspyrnu gegn þessum áætlunum og munu þúsundir landnema þurfa að yfirgefa heimili sín, 8.200 á Gaza svæðinu og sex hundruð á fjórum litlum svæðum á Vesturbakkanum. Shimon Peres sagði að ástandið nú væri um margt líkt því sem var fyrir um áratug þegar þáver- andi forsætisráðherra, Yitzhak Rabin, varð fyrir miklu aðkasti harðlínumanna vegna friðarvið- ræðna hans við Palestínumenn. Rabin var ráðinn bani 1995. Sharon var á meðal þeirra sem gagnrýndi friðarviðræður Rabin við Palestínumenn 1995 og baðst nýlega afsökunar vegna yfirlýs- inga sem hann kom fram með op- inberlega þá. ■ Peres segir öfgamenn vilja ráða Sharon af dögum Sharon sagður í hættu ARIEL SHARON FORSÆTISRÁÐHERRA ÍSRAELA Shimon Peres hefur varað við því að líf Sharons gæti verið í hættu því hugsanlega gætu öfgamenn reynt að ráða hann af dögum. Ósáttir síkhar í Frakklandi: Kærðu stjórnvöld FRAKKLAND, AP Þrír síkhar hafa stefnt frönskum stjórnvöldum vegna banns við trúartáknum í skólum landsins. Síkharnir eru ósáttir við að fá ekki að bera túr- bana sína og vonast til að niður- staðan verði sú að stjórnvöldum hafi verið óheimilt að setja lögin. Samkvæmt banninu mega hvorki nemendur né kennarar bera áberandi trúartákn í skólum. Bannið var sett til að fá íslamskar stúlkur til að fella slæðuna sem þær bera en túrbanar sikha, koll- húfur gyðinga og stórir kristnir krossar eru einnig bannaðir. ■ Í ÁTÖPPUNARVERKSMIÐJU COKE Coca-Cola fyrirtækið verður að hætta starf- semi sem Evrópusambandið telur sam- keppnishamlandi. Samkeppnismál: Coke semur sig frá sekt BELGÍA, AP Margra ára langri deilu Evrópusambandsins og Coca-Cola fyrirtækisins lauk með samkomu- lagi sem kynnt var í gær. Sam- kvæmt því þarf fyrirtækið ekki að greiða sektir en verður þess í stað að draga úr þeirri starfsemi sem er talin hamla samkeppni. Fyrirtækið þarf að hætta að semja um einkarétt á gosdrykkja- sölu í ákveðnum búðum og veit- ingastöðum auk þess sem fyrirtæk- ið verður að heimila verslunum að setja gosdrykki frá öðrum fram- leiðendum í kæliskápa sem eru merktir fyrirtækinu. Samkomu- lagið verður lagalega bindandi og Coca-Cola skaðabótaskylt fari það ekki eftir því. ■ Þriðja kynslóð farsíma: Útboð eða uppboð STJÓRNMÁL Sturla Böðvarsson, sam- gönguráðherra mælti fyrir frum- varpi á Alþingi í gær þar sem gert er ráð fyrir að tíðnir svokallaðrar 3. kynslóðar farsíma verði boðnar út. „Þar sem tíðnirófið er takmörk- uð auðlind er mikilvægt að beita hlutlægum mælikvarða þegar um- sóknir eru metnar og að skilyrði sem fullnægja þarf verði ákveðin fyrir fram. „ Björgvin G. Sigurðsson Sam- fylkingu sagðist telja uppboð heppilegra en útboð vegna tor- tryggni sem væri ríkjandi í garð stjórnmálamanna. - ás

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.