Fréttablaðið - 20.10.2004, Síða 13
13MIÐVIKUDAGUR 20. október 2004
Sveigjanlegur, hagn‡tur, flottur.
fietta er Nokia 6260 Smartphone.
Ger›u lífi› einfaldara me› flví a›
nota innbygg›a vafrann til a›
fara á neti› og til a› skipta milli
forrita og valmynda í símanum.
Vertu smart. Skiptu yfir í vinnu-
haminn og sko›a›u póstinn flinn
gegnum VPN fljóninn og líka vi›-
hengin! Komdu skipulagi á tengi-
li›askrána og dagbókina.
Far›u í myndavélaham og breyttu
símanum í myndatökuvél e›a
stafræna myndavél, sendu vinum
skemmtilegar myndir og myndskei›
– líka flau sem flú finnur á vefnum.
Nokia 6260 Smartphone er sannar-
lega smart lausn á flörfum flínum
og næstu leikjum.
H
öf
un
da
rr
ét
tu
r
©
20
04
N
ok
ia
. A
llu
r
ré
tt
ur
á
sk
ili
nn
. N
ok
ia
o
g
Co
nn
ec
tin
g
Pe
op
le
e
ru
s
kr
ás
et
t
vö
ru
m
er
ki
í
ei
gu
N
ok
ia
C
or
po
ra
tio
n.
www.nokia.com
Smart
lausn
á flörfum
flínum
Forsetakosningar:
Mary Popp-
ins á kjörskrá
BANDARÍKIN, AP Fulltrúum kjör-
stjórnar í Ohio fór að gruna að
ekki væri allt með felldu við
skráningu kjósenda fyrir forseta-
kosningar þegar nöfn kjósenda á
borð við Mary Poppins, Michael
Jordan og George Forman bætt-
ust á lista kjörgengra í fylkinu.
Rannsókn leiddi í ljós að 22 ára
maður hefði falsað yfir hundrað
skráningarblöð, en í Bandaríkjun-
um verða þeir að skrá sig fyrir-
fram sem vilja kjósa í landinu.
Maðurinn átti að fá greiðslu
fyrir hvert eyðublað sem hann
fékk væntanlega kjósendur til að
fylla út. ■
MJANMAR, AP Herforingjastjórnin í
Mjanmar, sem áður gekk undir
nafninu Burma, skipti í gær um for-
sætisráðherra. Herforinginn Soe
Win, sem er talinn mikill harðlínu-
maður tók þá við embættinu af
Khin Nyunt, herforingja og yfir-
manni leyniþjónustunnar.
Nyunt var talinn tiltölulega hóf-
samur í samanburði við aðra ráða-
menn í herforingjastjórninni og
vildi meðal annars semja við Aung
San Suu Kyi, friðarverðlaunahafa
Nóbels, og aðra forystumenn lýð-
ræðissinna í landinu. Talið er að það
hafi átt þátt í falli hans en ekki
síður það að Than Shwe, valdamesti
maðurinn í herstjórninni, var aldrei
fyllilega sáttur við Nyunt.
Svo virðist sem nokkur átök hafi
átt sér stað í kringum valdaskiptin
því taílensk stjórnvöld lýstu því
yfir í gær, áður en tilkynnt var um
mannaskiptin, að Nyunt hefði verið
hnepptur í stofufangelsi.
Skipan Win í stöðu forsætisráð-
herra þykir boða enn meiri hörku
stjórnvalda gegn lýðræðissinnum.
Win er talinn hafa staðið á bak við
árás stuðningsmanna ríkisstjórnar-
innar á lýðræðissinna í maí í fyrra.
Síðan þá hefur Suu Kyi verið haldið
í stofufangelsi. ■
Uppstokkun í herforingjastjórninni sem ræður Mjanmar:
Fyrrum forsætisráðherra
hnepptur í stofufangelsi
FRÁFARANDI FORSÆTISRÁÐHERRA
Khin Nyunt var hnepptur í stofufangelsi á
dögunum að sögn taílenskra stjórnvalda. Í
gær tók meiri harðlínumaður við embætti
forsætisráðherra.
ekki gengið eftir þar sem þeir hafi
farið á mis. Þá hafi hann enga
hugmynd haft um fíkniefnin.
Segir refsingu í umfjöllun
fjölmiðla
Sveinn Andri Sveinsson, verjandi
Jónasar Inga, segir marga lög-
reglumenn hafa unnið að málinu
sem í fyrstu hafi virst vera kald-
rifjað morð. Sjaldan hafi verið
eytt jafn miklu púðri í mál sem
síðan reyndist vera minniháttar
og segir hann slíkt ekki mega hafa
áhrif á ákvörðun refsingar. Eins
segir hann sakborningum nú
þegar hafa verið refsað með
svakalegri umfjöllun fjölmiðla og
myndbirtingu og til þess megi
horfa við ákvörðun refsingar. Sak-
sóknari var allskostar ekki sam-
mála Sveini Andra og sagði engin
fordæmi vera fyrir því að um-
fjöllun fjölmiðla gæti mildað refs-
ingu. Þá benti hann líka á að sak-
borningar hefðu verið sæknir í
fjölmiðla.
Líkið fannst fyrir tilviljun
Kafari fann lík Vaidasar Jucevici-
usar í höfninni við netagerðar-
bryggjuna í Neskaupstað fyrir til-
viljun þann ellefta febrúar síðast-
liðinn. Á líkinu fundust fimm
stungusár. Tveimur dögum síðar
fundust 223 grömm af metam-
fetamíni í iðrum líksins. Ekki var
vitað hver hinn látni var fyrr en
níu dögum eftir að hann fannst.
16. febrúar gáfu sakborningarnir
þrír sig fram hjá lögreglu vegna
fréttar í Fréttablaðinu þess efnis
að þeir væru grunaðir en var
sleppt skömmu síðar. Fjórum dög-
um seinna voru þeir handteknir
og úrskurðaðir í gæsluvarðhald í
framhaldinu. Þann 27. febrúar
kom játning Grétars fram. ■
ganganna á vinnumarkaði séu
fyrst og fremst fólgin í auknu at-
vinnuúrvali og atvinnuöryggi.
„Þetta á einkum við um þá sem
syðst búa. Okkar rannsóknir sýna
að menn séu almennt reiðubúnir
að aka 45 mínútur til vinnu og það
styrkir bæði atvinnuúrval og
atvinnuöryggi fyrir þá sem búa
næst höfuðborginni,“ segir Vífill.
Rannsóknin sem liggur skýrsl-
unni til grundvallar hefur staðið
yfir síðan haustið 2002 og var hún
fjármögnuð af Samtökum sveitar-
félaga á Vesturlandi, Vegagerð-
inni, Samgönguráðuneytinu og
Byggðastofnun, auk þess sem
Spölur, rekstaraðili Hvalfjarðar-
ganga, lagði hönd á plóg.
- bþe
NIÐURSTÖÐURNAR KYNNTAR
Vífill Karlsson skýrsluhöfundur kynnti nið-
urstöður sínar á fundi í Maríukaffi á Akra-
nesi í gær.
M
YN
D
/S
KE
SS
U
H
O
R
N
/M
AG
N
Ú
S
M
AG
N
Ú
SS
O
N