Fréttablaðið - 20.10.2004, Page 17

Fréttablaðið - 20.10.2004, Page 17
17MIÐVIKUDAGUR 20. október 2004 ■ ALÞINGI eins marga miða og við getum. Flugsæti og hótelherbergi bjóða ekki upp á mikið meira og það gæti skapast öngþveiti fyrir utan staðina ef gestirnir væru fleiri.“ Hann bendir á að góðir tónleika- staðir í miðborg Reykjavíkur séu ekki mjög margir en þeim hafi þó fjölgað og aðstaða batnað. Engu að síður er mikilvægt að þróa há- tíðina frá ári til árs. „Hún þarf að verði betri í ár en í fyrra. Áhug- inn dofnar ef boðið er upp á það sama og árið áður.“ Erfitt er að meta peninga- lega veltu Iceland Air- waves en hún er talsverð. Einföld marg- földun á miða- verði (5.000) og g e s t a f j ö l d a (2.500) sýnir að tólf og hálf milljón fæst í kassann. En kostnaðurinn er mik- ill og víða liggja verðmæti sem erfitt er að meta í krónum og aur- um. Þorsteinn segir sveiflurnar í afkomunni litlar. „Þetta hefur legið þægilega öðru hvoru megin við núllið. Það er aldrei mikill af- gangur og aldrei rosalegt tap.“ Rokkborgin Reykjavík Þátttaka Icelandair í Iceland Airwaves stafar ekki bara af rokkáhuga stjórnenda félagsins. Hátíðin er liður í markaðssetn- ingu Íslands, og þá sér í lagi Reykjavíkur, sem spennandi áfangastaðar utan háannatíma. „Við höfum unnið að þróun ímyndar Reykjavíkur sem hressilegrar og skemmtilegrar borgar með tengsl við náttúr- una,“ segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair. „Liður í því er að búa til við- burði til að styrkja þessa ímynd. Við bæði auglýsum Iceland Air- waves sérstak- lega og fáum umfjöllun í fjöl- miðlum. Af- raksturinn er því tvíþættur, annars vegar fáum við ferða- menn til að koma á hátíðina sjálfa og hins vegar er þetta tækifæri til að koma Íslandi og Reykjavík á framfæri í gegnum fjölmiðla.“ Guðjón segir árangurinn þeg- ar góðan, umfjöllunin hafi verið mikil og að mestu jákvæð. „Reykjavík hefur orðið sterka ímynd sem borg áhugaverðrar tónlistar og þar er svo sem fleiru að þakka, t.d. Björk og Sigur Rós. En Iceland Airwaves þykir öðru- vísi og sérkennileg og það er ein- mitt það sem við erum að sækj- ast eftir. Að auki hefur farþega- fjöldinn vaxið með árunum og hátíðin hefur náð eyrum fólks utan Bandaríkjanna og Bret- lands. Nú koma gestir einnig frá Skandinavíu, Þýskalandi og víð- ar af meginlandi Evrópu.“ bjorn@frettabladid.is GUÐJÓN ARNGRÍMSSON „Iceland Airwaves þykir öðruvísi og sérkennileg.“ ÞORSTEINN STEPHENSEN „Gæti skapast öngþveiti ef gestirnir yrðu fleiri.“ ■ EVRÓPA SAUTJÁN ÁKÆRÐIR Ítalskur dóm- ari hefur gefið út ákæru á hend- ur sautján meintum meðlimum Rauðu herdeildarinnar sem eru sakaðir um að eiga þátt í morðinu á ráðgjafa ríkisstjórnarinnar. Morðið var fyrsta árás þessara vinstrisinnuðu skæruliða í ára- tug, en herdeildirnar hafa haldið sig til hlés á undanförnum árum. ENN EYKST SPENNAN Sprengja sprakk á skrifstofu samtaka sem styðja stjórnarandstæðing- inn Viktor Júsjenko sem berst við forsætisráðherrann Viktor Janúkovitsj um forsetaembætt- ið. Stuðningsmenn Júsjenko hafa ítrekað kvartað undan of- sóknum stjórnvalda og varð sprengingin til að auka enn á spennuna. SKIPAN HÆSTARÉTTARDÓMARA Fjórtan þingmenn Samfylkingar- innar hafa lagt fram frumvarp til laga um að samþykki tveggja þriðju hluta Alþingismanna þurfi til skipunar hæstaréttardómara. Er gert ráð fyrir að forseti Íslands skipi dómara samkvæmt tillögu forsætisráðherra sem beri síðan skipanina undir alþingi. LÖGBIRTINGUR BARA Á NETINU Dómsmálaráðherra hefur lagt fram frumvarp á Alþingi þar sem lagt er til að hætt verði með öllu við prentaða útgáfu Stjórnar- tíðinda og Lögbirtingablaðsins og blaðið framvegis aðeins birt á netinu. Undanfarin ár hafa þeir sem þess hafa óskað getað nálgast blöðin prentuð. STJÓRNMÁL Meta á stöðu varnar- liðsins á Keflavíkurflugvelli út frá hernaðarlegum fremur en efnahagslegum forsendum sam- kvæmt tillögum framtíðarhóps Samfylkingarinnar. Jón Gunnars- son, þingmaður Samfylkingarinn- ar og fyrrverandi Alþýðuflokks- maður af Suðurnesjum, segir að sú tillaga að Íslendingar taki að sér rekstur flugvallarins í vax- andi mæli valdi sér ekki áhyggj- um. „Það sem ég er hræddastur við er sú þögn og feluleikur sem hefur verið ríkjandi. Þeir fjöl- mörgu sem vinna á vellinum vilja vita hvar þeir standa.“ Jón bendir á að ekki sé gert ráð fyrir uppsögn varnarsamnings- ins. „Við þurfum að vita á hvaða leið við erum til þess að geta brugðist við.“ Alþingismaðurinn segir að ræða þurfi við Bandaríkjamenn. „Kannski vilja þeir uppfylla varn- arsamninginn með öðrum hætti en að hafa til dæmis orustuþot- urnar hérna, en það er betra að vita það en að lifa í óvissu. Hætt- an er sú að Bandaríkjaþing skrúfi fyrir allar fjárveitingar og her- stöðinni sé sjálflokað.“ - ás JÓN GUNNARSSON „Hvort heldur sem eru gamlir Alþýðu- flokks- eða Alþýðubandalagsmenn vilja þeir fyrst og fremst hreinar línur“. Suðurnesjakratar um herinn: Allt annað en kyrrstöðu

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.