Fréttablaðið - 20.10.2004, Page 23
MIÐVIKUDAGUR 20. október 2004
Bankastræti 10 + Sími 562 23 62 + info@exit.is + www.exit.is
Til þess að ná góðum tökum á tungumáli er nauðsynlegt að dveljast í því landi
þar sem tungumálið er talað. Stúdentaferðir eru í samstarfi við málaskóla um
allan heim og bjóða þeir nám jafnt fyrir byrjendur sem lengra komna.
Málaskólar eru fyrir fólk á öllum aldri. Sérstök námskeið í boði fyrir 13 - 16 ára.
Færð þú MasterCard
Ferðaávísun?
Karl Frímannsson segist leitast við að glæða skilning frekar en að fordæma.
Kennslustefna Hrafnagilsskóla:
Hegðunarvandi í lágmarki
„Að allir hafi það góða í sér og geti
orðið betri manneskjur er inntakið
í kennslustefnu okkar,“ segir Karl
Frímannsson, skólastjóri Hrafna-
gilsskóla í Eyjafjarðarsveit, en
kennslustefna skólans er unnin er
út frá hugmyndinni um skapgerð-
armenntun, þar sem leitast er við
að þroska persónuleika nemenda,
samkennd, siðferði og ábyrgð. „Við
öll sem komum að skólastarfinu,
hvort sem það eru nemendur, kenn-
arar, foreldrar og aðrir, höfum þá
sameiginlegu sýn að gera þessa
hugsun hluta af okkar daglega
starfi,“ segir Karl.
Daglega er haldin samverustund
með nemendum í 1. til 7. bekk en
vikulega með eldri bekkjunum þar
sem visst efni er tekið til umræðu,
og tengist það ætíð grunnhugmynd-
um stefnunnar. „Nemendur eru þar
með sitt efni til flutnings og er séð
til þess að allir fái tækifæri til að
koma fram. Fyrir vikið hefur öll
tregða og feimni orðið að engu þar
sem virðing fyrir öðrum er í háveg-
um höfð,“ segir Karl og jafnframt
að haldnir séu bekkjarfundir þar
sem nemendum gefst kostur á að
tjá sig og skoðanir sínar og hverj-
um og einum gefið rými og hljóð til
að tala.
„Við leitumst við að glæða skiln-
ing frekar en að fordæma og beit-
um engum hótunum eða ógnun í
skólastarfinu,“ segir Karl. Ef upp
koma vandamál er ekki tekið á
þeim með fingurinn á lofti eins og
Karl orðar það heldur taka skóla-
yfirvöld ásamt málsaðilum á mál-
um í sameiningu. „Við örvum fram-
lag nemenda í öllum málum og vilj-
um fá frá þeim tillögur. Ef upp
koma vandamál þá gefum við þeim
tækifæri til að bæta hegðun sína
með því að fá þau með í ákvarðana-
töku. Ef við eflum skilning þá
breytum við hegðun miklu frekar.
Þetta er svo sem engin töfralausn
en við sjáum að hegðunarvandi er í
lágmarki. Fyrst og fremst er þetta
okkar leið til að takast á við hið
daglega starf,“ segir Karl.
„Að vissu leyti erum við að
koma inn þeim þáttum sem lýðræð-
ið byggir á, þar sem við þurfum að
sýna umburðarlyndi og bera virð-
ingu fyrir lögum og reglum,“ segir
Karl en vill benda á að enn sé stefn-
an í mikilli þróun og sé fjarri því að
vera endanleg. „Við viljum flýta
okkur hægt og lítum því ekki á
þetta sem eitthvert átaksverkefni
heldur hluta af okkar daglega lífi,“
segir Karl. kristineva@frettabladid.is
Leikmannaskóli kirkjunnar:
Sköpun og samkynhneigð
Hvað segir Gamla testamentið um
sköpunina? er heiti námskeiðs Leik-
mannaskóla Þjóðkirkjunnar sem
hefst á þriðjudaginn í
næstu viku. Í því er fjall-
að um texta Gamla
testamentsins sem fjalla
um sköpunina. Kennari
er Kristinn Ólason guð-
fræðingur. Gerð verður
tilraun til að svara
spurningunni um gildi
eða hlutverk slíkra texta í nútíman-
um þar sem hugmyndir manna um
tilurð heimsins byggjast á vísinda-
legum rannsóknum.
Daginn eftir, 27. október, hefst
námskeið þar sem fjallað er um af-
stöðu kirkjunnar til samkynhneigð-
ar. Kennari á námskeiðinu er dr.
Sólveig Anna Bóasdóttir, guðfræð-
ingur og siðfræðingur.
Á námskeiðinu verður
fjallað um opinbera
afstöðu lúthersku
kirknanna til samkyn-
hneigðar og hugað að
helstu forsendum og
rökum sem þar
skipta máli. Einnig
verður fjallað um frjálslyndari við-
horf innan kristinnar siðfræði sam-
tímans til sama málefnis.
Skráning fer fram í síma 535
1500 eða á vef skólans, www.kirkj-
an.is/leikmannaskoli.