Fréttablaðið - 20.10.2004, Side 28
8
FASTEIGNIR ATVINNA FUNDIR
Samtök lungnasjúklinga
Samtök lungnasjúklinga heldur fræðslufund fimmtudag-
inn 21. október kl. 20 í Síðumúla 6 (gengið inn á bakvið).
Fræðsluefni: María Jónsdóttir félagsráðgjafi og starfsmaður
S.Í.B.S. fjallar um starf sitt með aðildarfélögum SÍBS.
Einnig mun hún greina frá framtíðarsýn sinni
og mögulegri þróun starfsins á næstu árum.
Eftir fundinn mun Pétur Bjarnason taka nokkur lög á nikkuna.
Útgerðarfyrirtækið Reyktal AS
óskar eftir metnaðarfullum
einstaklingum til framtíðarstarfa.
Viðkomandi þurfa að vera reglusamir og búa yfir góð-
um samskiptahæfileikum. Enskukunnátta nauðsynleg.
Í boði eru störf hjá vaxandi fyrirtæki sem gerir kröfur til
starfsmanna sinna og veitir þeim kjör til samræmis.
Skipstjóri þarf að hafa góða reynslu af rækjuveiðum,
æskilegt að hann hafi reynslu af Flæmska hattinum og
af 2ja trolla veiði.
Yfirvélstjóri þarf að hafa lokið 4. stigi (VF II) og hafa
reynslu af frystitogurum.
Umsóknir, með upplýsingum um menntun og fyrri störf,
sendist með tölvupósti til hjalmar@iec.is eða á fax nr.
588-7635.
Nánari upplýsingar veitir Hjálmar Vilhjálmsson eða
Ólafur Óskarsson í síma: 588-7666.
Skipstjóri og
yfirvélstjóri
Í Hafnarfirði búa um 21 þúsund manns. Bærinn stendur í fallegu
umhverfi hrauns og kletta. Hafnarfjörður hefur þá bæjarsál sem
einkennir búsetu við sjó og státar um leið af hagkvæmni stærðar-
innar og staðsetningar í jaðri höfuðborgarsvæðisins. Það er gott að
búa og starfa í Hafnarfirði.
Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar
Leikskólakennarar
Álfasteinn
( s. 555 6155, alfasteinn@hafnarfjordur.is)
Leikskólakennara vantar nú þegar að leikskólanum
Álfasteini. Æskilegt er að umsækjandi hafi þekkingu
á framfararstefnu John Dewey. Allar upplýsingar
veitir leikskólastjóri, Inga Líndal Finnbogadóttir en
umsóknarfrestur er til 30. okt.
Samkvæmt jafnréttisstefnu Hafnarfjarðar eru karlar jafnt
sem konur hvattir til að sækja um starfið.
Fræðslustjórinn í Hafnarfirði
Starfsfólk óskast
Ferskar kjötvörur hf. óska eftir að ráða
starfsmann í mötuneyti fyrirtækisins að
Síðumúla 34 í Reykjavík.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu fyrir-
tækisins að Síðumúla 34. Einnig er hægt að sækja
um starfið á tölvupóstfanginu ingibjorn@ferskar.is
Nánari upplýsingar veitir Ingibjörn Sigurbergsson
framleiðslustjóri í síma 660-6320
frá kl. 14:00 til 17:00 virka daga.
Upplýsingar um fyrirtækið er að finna á heimsíðu þess
www.ferskar.is.
Byggingaverkamenn
Vegna aukinna verkefna óskar JB Bygginga-
félag eftir að ráða byggingaverkamenn.
Upplýsingar gefur Páll Róbert í síma 693-7014.
JB Byggingafélag, Bæjarlind 4, s: 544-5333
Viðurkenningar
fyrir gott aðgengi
Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra og aðildarfélög
þess um land allt, veita fyrirtækjum og þjónustuaðil-
um viðurkenningar fyrir gott aðgengi hreyfihamlaðra
á alþjóðadegi fatlaðra, 3. desember ár hvert.
Um er að ræða tvenns konar viðurkenningar:
1. Fyrir fullkomlega aðgengilegt húsnæði, sem nýt
ist bæði gestum og starfsmönnum fyrirtækja
og stofnana.
2. Fyrir lagfæringar á áður óaðgengilegu húsnæði,
til verulegra bóta fyrir hreyfihamlaða. Þeir aðilar
sem vilja koma til greina við úthlutun viðurkenn-
inga á þessu ári eða tilnefna aðra til viður
kenninga, komi ábendingum á framfæri við
Sjálfsbjörg í síðasta lagi föstudaginn 12. nóvem-
ber 2004.
Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra
Hátúni 12, 105 Reykjavík
sími: 5 500 300; fax: 5 500 399
Netfang: mottaka@sjalfsbjorg.is
BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 563 2600 • MYNDSENDIR 562 3219
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið
Auglýsing um breytingu á
deiliskipulagi og aðalskipulagi
í Reykjavík
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og bygg-
ingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum,
eru hér með auglýstar til kynningar tillögur að
breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík og breyt-
ingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024 í
samræmi við 18. gr. skipulags- og byggingar-
laga nr. 73/1997.
Hlíðarendi, Valur breyting á aðalskipu-
lagi.
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Reykja-
víkur 2001 – 2024, vegna svæðis við Hlíðar-
enda, sem lítur að breytingu á aðalskipulagi á
miðsvæði M5 milli Bústaðavegar og Hlíðar-
fótar.
Tillagan gerir ráð fyrir að í stað þess að heimilt
verði að þétta byggð um 120 íbúðir á mið-
svæði M5 við Hlíðarenda, milli Bústaðavegar
og Hlíðarfótar, verði heimilt að þétta byggðina
um 170 íbúðir. Breytingin felst því í að mynd 5,
þétting íbúðarbyggðar í AR 2001-2024, í
greinargerð aðalskipulagsins breytist, að teknu
tilliti til breytingar sem staðfest var af um-
hverfisráðherra þann 8. september 2003,
þannig að íbúðafjöldi á þéttingarsvæði 10a
breytist úr 120 í 170 sbr. breytt mynd að
neðan. Sjálfur uppdrátturinn breytist ekki.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Hlíðarendi Valur, breyting á deiliskipu-
lagi.
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að fækka atvinnu-
húsalóðum á uppbyggingarsvæðinu úr 8 í 2 og
fjölga íbúðalóðum úr 3 í 5. Heildarfjöldi lóða
verður því 7 eftir breytingu í stað 11. Sam-
kvæmt tillögu er gert ráð fyrir að byggingar-
magn íbúðalóða verði 18.000m2 í stað
11.100m2 og atvinnuhúsafermetrar verði
32.000m2 (auk 750m2 leikskóla) í stað
38.900m2 (auk 750m2 leikskóla). Fjöldi íbúða
samkvæmt tillögunni er frá 29 – 37 í hverri
íbúðablokk fyrir sig, mismunandi eftir lóðum.
Fjöldi fjölbýlishúsa er 5 og alls er reiknað með
169 íbúðum á svæðinu. Gert er ráð fyrir að
leikskóli verði hluti af uppbyggingu LHÍ svæði,
lóð H.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillögurnar liggja frammi í upplýsingaskála
skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur-
borgar í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl.
8.20 – 16.15, frá 20. október til og með 1.
desember 2004. Einnig má sjá tillögurnar á
heimasíðu sviðsins, skipbygg.is. Eru þeir sem
telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að
kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athuga-
semdum við þær skal skila skriflega til
skipulags- og byggingarsviðs (merkt skipu-
lagsfulltrúa) eigi síðar en 1. desember 2004.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan
tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.
Reykjavík, 20. október 2004
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur
ATVINNA
TILKYN-