Fréttablaðið - 20.10.2004, Qupperneq 29
Alþjóðlegur beinverndardagur
Alþjóðlegur beinverndardagur er
haldinn 20. október ár hvert. Á
hverju ári er dagurinn helgaður
sértæku efni sem tengist bein-
þynningu. Yfirskrift beinverndar-
dagsins í ár er Karlar og bein-
þynning. Beinvernd mun, í sam-
starfi við alþjóða beinverndar-
samtökin IOF, vera með átak í til-
efni dagsins til að auka vitund um
beinþynningu meðal karla. Nýr
bæklingur um karla og beinþynn-
ingu kemur út auk fréttabréfs
sem helgað er þessu málefni sér-
staklega. Beinvernd bendir körl-
um á að það eru margir þættir
sem geta haft áhrif á beinin s.s.
erfðaþættir, reykingar, óhófleg
áfengisneysla, hreyfingarleysi,
næring sem ekki inniheldur nægj-
anlegt kalk og D-vítamín, seinkað-
ur kynþroski og aðrir sjúkdómar.
Auk þess getur notkun ákveðinna
lyfja s.s. sykurstera einnig valdið
beinþynningu. Svarið spurningum
í áhættuprófi um beinþynningu
sem er að finna á vef Beinvernd-
ar, www.beinvernd.is og kannið
hvort þið eruð í áhættuhópi!
Hér á landi er talið að rekja
megi um 1.000-1.200 brot til bein-
þynningar á ári hverju. Algeng-
ustu brotin eru framhandleggs-
brot, samfallsbrot í hrygg og
mjaðmarbrot, sem eru alvarleg-
ust. Sjúkdómurinn er stundum
nefndur „hinn þögli faraldur“
vegna þess að einkenni hans koma
oft ekki í ljós fyrr en við beinbrot.
Brotatíðni er mismunandi eftir
löndum hjá körlum og konum, en
álagið og þjáningarnar sem brotin
valda eru að aukast vegna þess að
fólk lifir nú að jafnaði lengur en
áður og þar af leiðandi eru fleiri
aldraðir í heiminum sem hafa til-
hneigingu til að brotna. Beinbrot
vegna beinþynningar eru kostnað-
arsöm, bæði hvað varðar þjáningu
þeirra sem fyrir þeim verða og
vegna meðferðar og umönnunar
Tiltölulega auðvelt er að greina
beinþynningu með svokölluðum
beinþéttnimælum, sem er góður
mælikvarði á brotahættu, líkt og
blóðþrýstingur og blóðfitur segja
fyrir um áhættuna á kransæða-
stíflu eða heilablóðfalli. Full-
komnir beinþéttnimælar, svokall-
aðir DEXA-mælar, eru á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Akureyri og
Landspítala - háskólasjúkrahúsi í
Fossvogi, en hægt er að fara í
„minni“ mælingu sem gefur vís-
bendingu um beinhaginn hjá
Lyfju, Gigtarfélagi Íslands, Gigt-
sjúkdómadeild LHS og hjá Bein-
vernd. Auk þess hefur Heilbrigð-
isstofnun Suðurlands á Selfossi
yfir að ráða handarmæli sem
einnig gefur vísbendingu um
ástand beinanna. Beinþynningu er
hægt að meðhöndla með sértæk-
um lyfjum, auk D-vítamíns og
kalks. Fjölmargar rannsóknir
hafa sýnt að lyfjameðferð getur
viðhaldið beinþéttni og jafnvel
aukið beinmassann. Lífshættir og
erfðaþættir ráða að miklu leyti
þéttni og styrk beina. Þess vegna
er mikilvægt að forvarnarstarf sé
öflugt og nauðsynlegt er að
tryggja forvörnina alla ævi. Þar
skiptir hvað mestu máli reglu-
bundin líkamleg hreyfing og
mataræði sem inniheldur D-
vítamín og kalk.
Höfundur er íþróttafræðingur og
framkvæmdastjóri Beinverndar.
21MIÐVIKUDAGUR 20. október 2004
Kosið
um laun
kennara
Þegar Bandaríkjamenn ganga
til kosninga 2. nóvember næst-
komandi fá þeir tækifæri til að
kjósa um fleira en forseta og
þingmenn. Það er misjafnt eftir
ríkjum um hvaða málefni verð-
ur kosið. Í Washington-ríki eru
laun grunnskólakennara meðal
þess sem kosið verður um. Lögð
hefur verið fram tillaga um að
söluskattur í ríkinu verði hækk-
aður um eitt prósent og að af-
raksturinn verði notaður til
menntamála. Samkvæmt tillög-
unni á að nota þennan nýja sjóð
meðal annars til að hækka laun
grunnskólakennara, fækka
nemendum
í bekkjum
og auka sér-
kennslu í
grunnskól-
um.
Í kosn-
ingunum 2.
n ó v e m b e r
n æ s t k o m -
andi fá íbú-
ar Was-
hington-rík-
is tækifæri
til að sýna
afstöðu sína til menntamála með
því að annað hvort styðja þessa
tillögu eða hafna henni. Það
verður athyglisvert að fylgjast
með afstöðu íbúa hér til þessara
mála. Fyrirhugaðar skattalækk-
anir á Íslandi munu hafa lítil
áhrif á tekjulægri landsmenn. Á
sama tíma og til stendur að
lækka skatta eru grunnskóla-
kennarar að reyna að ná fram
réttlátum kjörum. Svo virðist
sem mikil tregða sé fyrir hendi
hjá sveitarfélögum að ganga til
samninga við kennara og ríkis-
stjórnin kemur ekki enn að
þessu erfiða máli. Því þótti mér
vel við hæfi að vekja athygli á
þeirri tillögu sem fyrir liggur
hér vestra um að hækka sölu-
skattinn og skapa þar með svig-
rúm til að bæta skólastarf. Fyr-
ir mig sem verðandi foreldri í
íslenskum grunnskóla skipta
kjör kennara á Íslandi mjög
miklu máli. Ég sendi kennurum
á Íslandi baráttukveðjur og
vona að stjórnvöld sjái sóma
sinn í að ganga til samninga við
kennara sem allra fyrst.
Höfundur er doktorsnemi í
Seattle í Bandaríkjunum.
SENDIÐ OKKUR LÍNU
Við hvetjum lesendur til að senda
okkur línu og leggja orð í belg um
málefni líðandi stundar. Greinar og
bréf skulu vera stutt og gagnorð.
Eingöngu er tekið á móti efni sem
sent er frá Skoðanasíðunni á visir.is.
Þar eru nánari leiðbeiningar. Rit-
stjórn ákveður hvort efni birtist í
Fréttablaðinu eða Vísi eða í báðum
miðlunum að hluta eða í heild.
Áskilinn er réttur til leiðréttinga og
til að stytta efni.
REKSTUR 2004
21.-22. OKTÓBER Í FÍFUNNI Í KÓPAVOGI
FIMMTUDAGURINN
21. OKTÓBER - DAGUR 1
SALUR 1
Spyrill: Hörður Vilberg
Kl. 11.00 Jákúb Jakobsen, stofnandi
Rúmfatalagersins.
Kl. 13.00 Setningarathöfn
ÁVÖRP
Valgerður Sverrisdóttir - Iðnaðar- og
viðskiptaráðherra
Ingimundur Sigurpálsson - formaður
Samtaka atvinnulífssins
Gunnar I. Birgisson - formaður bæjarráðs
Kópavogsbæjar
Kl. 14.30 Aðalheiður Héðinsdóttir,
framkvæmdastjóri Kaffitárs
Kl. 16.00 Elín Sigfúsdóttir - framkvæmdastjóri
Landsbanka
SALUR 2
Kl. 11.00 Sálfræði sölunnar
IMG
Kl. 14.00 Rætt, frætt og bætt
Endurmenntun HÍ
Kl. 15.00 Mismunandi félagsform -
Hvað hentar hverjum
Deloitte
Kl. 16.05 Einkaráðgjöf (executive coaching)
IMG
Guðrún Högnadóttir, M.H.A.
Kl. 17.00 Horfur með gengi íslensku krónunnar
Landsbanki Íslands.
SALUR 3
Kl. 11.15 Bókhaldskerfi með innbyggðum
Fyrirtækjabanka
Landsbanki Íslands
Kl. 14.15 Náðu árangri með okkur - Vöruþróun
Impra - Nýsköpunarmiðstöð, Iðntæknistofnun
Kl. 15.15 Innleiðing gilda í fyrirtækjum
Stjórnendaskóli HR
Kl. 16.15 Vörustjórnun til hagræðingar
Vöruhótelið
Kl. 17.10 Frammistöðugreining
- Uppruni umframávöxtunar?
Ráðgjöf og Efnahagsspár
Kl. 17.35 Kostir virkrar áhættustýringar
Ráðgjöf og Efnahagsspár
FÖSTUDAGURINN
22. OKTÓBER - DAGUR 2
Salur 1.
Spyrill: Páll Magnússon
Kl. 13.00 Jón Helgi Guðmundsson
- forstjóri Norvíkur
Kl. 14.30 Hannes Smárason
- stjórnarformaður Flugleiða
Kl. 16.00 Skarphéðinn Berg
- stjórnarformaður Norðurljósa
SALUR 2
Kl. 11.00 Eignarhaldsfélög erlendis og starfsemi
Landsbankans í Luxemborg
Deloitte
Kl. 13.05 Innleiðing gilda í fyrirtækjum
Stjórnendaskóli HR
Kl. 14.00 Frá fjárhagskerfum til iðntölva
- og allt þar á milli
ANZA
Kl. 15.00 Stefnumiðað árangursmat
IMG Að stjórna árangri
Kl. 16.00 Bókhaldskerfi með innbyggðum
Fyrirtækjabanka
Landsbanki Íslands
Kl. 17.00 Notkun lífstílshópa í markaðsstarfi
IMG
SALUR 3
Kl. 11.10 Frammistöðugreining
- Uppruni umframávöxtunar?
Ráðgjöf og Efnahagsspár
Kl. 11.35 Kostir virkrar áhættustýringar
Ráðgjöf og Efnahagsspár
Kl. 13.15 Háspenna - Þennsluhætta.
Hvað þolum við mikinn hagvöxt?
Landsbanki Íslands
Kl. 14.15 Berðu þig saman við þá bestu
- hagnýt viðmið
Impra - Nýsköpunarmiðstöð, Iðntæknistofnun
Kl. 15.15 Rauntímaupplýsingar af
fjármálamarkaði
Mens Mentis
Kl. 16.15 Hitaþægindi - fjarvist starfsmanna
Verkfræðistofan Verkvangur
Kl. 17.15 Klæðnaður og atvinnulífið
Sævar Karl
KAUPSTEFNA FYRIR STJÓRNENDUR
ÍSLENSKRA FYRIRTÆKJA
Yfir 70 sýnendur
24 örnámskeið og kynningar
6 viðtöl við áhrifafólk í íslensku viðskiptalífi
4500 m2 Sýningarsvæði
FIMMTUDAGUR KL. 10.00 - 18.00
FÖSTUDAGUR KL. 10.00 - 18.00 • SKRÁNING Á WWW.REKSTUR2004.IS
ÞÁTTTÖKUGJALD
(Passar gilda báða dagana inn á öll svæði):
Stakur passi kr.5900
Tveir passar saman kr.8500 (kr.4250 á mann)
Fimm passar saman kr.14.900 (kr.2980 á mann)
MARTA
DANÍELSDÓTTIR
DOKTORSNEMI
HALLDÓRA BJÖRNSDÓTTIR
UMRÆÐAN
BEINVERND