Fréttablaðið - 20.10.2004, Síða 35
MIÐVIKUDAGUR 20. október 2004
Verum með börnunum á fimmtudaginn. Heimili og skóli – landssamtök foreldra
hvetja foreldra grunnskólabarna til að sýna samstöðu og taka sér frí eftir hádegi
fimmtudaginn 21. október. Samtökin hvetja atvinnurekendur til að gefa foreldrum
frí svo þeir og börnin geti gert eitthvað uppbyggilegt saman.
Egill Magnússon 6 ára
á að baki 17 daga í skóla
og 23 daga í verkfalli.
Hann á betra skilið!
Heimili og skóli – landssamtök foreldra átelja deilendur harðlega fyrir
seinagang við lausn yfirstandandi verkfalls grunnskólakennara. Sátt á að
ríkja um skólasamfélagið og skorum við á sveitarfélög, ríki og kennara að
axla þá ábyrgð sem fylgir því að reka hér skólasamfélag sem fullnægir
kröfum sem gerðar eru til menntunar barna.
Börnin eru búin að fá nóg
– foreldrar segja stopp!
Heimili og skóli, Laugavegi 7, 101 Reykjavík www.heimiliogskoli.is
H
im
in
n
o
g
h
a
f
-
SÍ
A
Drengjakór Reykjavíkur fór til
Tékklands í sumar þar sem hann
söng í mörgum merkum kirkjum
og söng meðal annars með tékk-
neskum stúlknakór. Kórinn var
stofnaður 1990 en Friðrik S. Krist-
insson hefur verið stjórnandi hans
í ein 10 ár. „Einna eftirminnilegast
var að syngja í þessum stóru
kirkjum í Tékklandi og þá séstak-
lega í Moarviu og var einstaklega
vel tekið á móti okkur,“ segir Frið-
rik en kórinn hefur haft það að
venju að fara til útlanda annað
hvert ár og eru foreldrar þá gjarn-
an með í för. „Allt í allt höfum við
verið um 40 manns sem fórum
saman en í aðalkórnum erum við
með 27 kórfélaga. Drengirnir eru
á aldrinum 9 til 14 ára en við höf-
um einnig eldri félaga með sem
eru á aldrinum 15 til 24 ára og
syngja þeir þá tenór og bassa,“
segir Friðrik. Undirleikari kórsins
Lenka Mátéova á veg og vanda að
undirbúningi ferðarinnar en sjálf
er hún tékknesk og var það hópn-
um mikil hjálp að hafa innfædda
konu með í för. „Það var alveg frá-
bært að hafa hana með,“ segir
Friðrik en ekki hefur enn verið
ákveðið hvert kórinn heldur næst.
Þegar kórinn var stofnaður var
hann upphaflega í Laugarnes-
kirkju, svo Neskirkju en endaði
svo í Hallgrímskirkju þar sem
hann starfar núna og fékk þar
nafnið Drengjakór Reykjavíkur.
Vetrarstarfið er nú hafið hjá kórn-
um og eru áhugasamir hvattir til
að hafa samband við Hallgríms-
kirkju. „Enn er hægt að bæta við
röddum í kórinn og tökum við ný-
liðum fagnandi,“ segir Friðrik. ■
DRENGJAKÓR REYKJAVÍKUR Í sumar fór kórinn til Tékklands. Það var undirleikari kórs-
ins, Lenka Mátéova, sem átti veg og vanda að ferðinni en sjálf er hún tékknesk. Kórinn
hefur það að venju að fara til útlanda annað hvert ár og eru þá foreldrar með í för.
Ungar raddir í
stórum kirkjum