Fréttablaðið - 20.10.2004, Síða 43

Fréttablaðið - 20.10.2004, Síða 43
Væntanleg Greatest Hits-plata með Robbie Williams verður seld á minniskubbum fyrir farsíma og fartölvur. Þetta er líklega í fyrsta sinn sem svo vinsæll tónlistar- maður gefur út efni með þessum hætti. Platan verður einnig gefin út á myndbandsformi og á að virka fyrir flestallar fartölvur og iPod svo dæmi séu tekin. Minnis- kubburinn verður settur í sölu í næsta mánuði og kostar um 500 íslenskar krónur. „Bretar eru yfir sig hrifnir af farsímum og þeir eru einn af fáum hlutum sem við vitum að fólk gengur um með dags daglega,“ sagði Danny Van Emden, talsmað- ur tæknideildar EMI-tónlistarút- gáfunnar. „Plötur gefnar út á minniskubbum eru næsta skref í þeirri þróun sem við ætlum inn á.“ EMI-útgáfurisinn hefur ákveð- ið að gefa út fleiri plötur með þessum hætti og bindur útgáf- an miklar vonir við þær. Bill Wyman gaf út plötu á minniskubbi árið 1999 en sú plata er eingöngu að- gengileg í MP3- spilurum. ■ Breski leikarinn Hugh Grant hafði ekki húmor fyrir því að í atriði í nýju myndinni um Bridget Jones hittir persónan sem hann leikur vændiskonu. Þegar atriðið spurðist út meðal starfsmanna sprungu flestir úr hlátri, nema Grant, en eins og kunnugt er var hann gripinn glóðvolgur þegar hann nýtti sér þjónustu vændiskonunnar Divine Brown fyrir nokkrum árum. Í nýju myndinni um Bridget Jones, The Edge of Reason, hittir persónan Daniel Cleaver taí- lenska vændiskonu á bar. Þegar Grant var spurður hvort honum þætti atriðið ekkert kaldhæðnis- legt svaraði hann: „Ég skrifaði ekki atriðið. Það er bara þarna,“ og bætti svo snögglega við án þess að skipta skapi: „Það angrar mig ekki einu sinni.“ Grant var handtekinn árið 1995 ásamt vændiskonunni Divine Brown í Los Angeles. Hann var í kjölfarið sektaður um 800 dollara eða tæpar sjötíu þús- und krónur. Málið vakti mikla athygli en Grant var með leik- konuni Liz Hurley þegar hann var gripinn. The Edge of Reason er fram- haldið af Dagbók Bridget Jones sem kom út árið 2001 og sló þá í gegn. Það er sem fyrr Renée Zellweger sem fer með aðalhlut- verkið í myndinni. ■ 35MIÐVIKUDAGUR 20. október 2004 SÍMI: 551 9000 www.regnboginn.is FRÁBÆR SKEMMTUN Man On Fire KL. 10 B.I. 16 NOTEBOOK KL. 5.40 SÝND KL. 8 og 10:15 HAROLD AND KUMAR kl. 8 B.I. 14 Sýnd kl. 6 og 8 Sýnd kl. 10 B.I. 16 Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.I. 16 SÝND kl. 6 og 8 HHHH S.V. MBL HHH1/2 V.G. DV SÝND kl. 5.40, 8 og 10.20 B.I.16 ára Þær eru mættar aftur...enn blóðþyrstari! Kyngimagnaður spennutryllir sem fær hárin til að rísa. Svakalegur Spennutryllir! Með ensku tali kl. 4 og 6 Með íslensku tali kl. 4 og 6 Nýjasti stórsmellurinn frá framleiðendum Shrek. Toppmyndin í USA í dag. Sýnd með íslensku og ensku tali. j i ll i l i . i í í . í l li. HHH DV HHH DV HHH1/2 Kvikmyndir.is HHH1/2 Kvikmyndir.is ANCHORMAN kl. 10 Sýnd kl. 5.40 - 8 - 10.20. B.I. 16 FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA SÝND kl. 8 B.I. 16 SÝND kl. 6 SÝND kl. 5.45 HHH 1/2 kvikmyndir.is „Ég anda, ég sef, ég míg ... Tónlist" Bubbi Morthens Til heljar og til baka með atómbombunni Bubba Morthens „ , s f, í ... list" i rt s il lj r til t i rt s SÝND kl. 8 og 10 HHHH kvikmyndir.is HHH Ó.H.T. Rás 2 Á SALTKRÁKU SÝND KL. 4 ÍSLENSKT TAL. MIÐAVERÐ KR. 500,- Bakvið martraðir hans leynist óhugnalegur sannleikur FORSÝND KL. 8 Frá leikstjóra Silence of the Lambs TOM CRUISE JAMIE FOXX Fór beint á toppinn í USA! ■ FÓLK HUGH GRANT Hann var handtekinn árið 1995 þegar hann nýtti sér þjónustu vænd- iskonu. Grant og vændiskonur Eftir að hafa stimplað sig inn með stæl með frábæru nafni og frum- raun fyrir tveimur árum hafa margir beðið eftir annarri breið- skífu The Music með þó nokkri eftirvæntingu. Þessir gæjar voru aðeins rétt rúmlega 18 ára þegar síðasta plata kom út. Samt bauð hún upp á háþróaðan sambræðing Zeppelin- og transrokks. Eins og Page og Plant hefðu verið undir áhrifum frá The Verve eða The Stone Roses. Á síðustu plötu var eitthvað stuðst við forritanir, en slíkt fúsk er alveg látið vera núna. Á nýju plötunni eru Zeppelin- áhrifin ríkari, sérstaklega í gítar- leik og söng, en núna þykist ég líka heyra gítarriff sem gætu hæglega verið úr smiðju bresku þunga- rokksveitarinnar The Cult. Trommuleikarinn og bassaleik- arinn eru gjörsamlega samvaxnir við mjöðm, grúvið er í fyrirrúmi og það er líklegast ómögulegt að sjá þessa sveit á tónleikum án þess að fá dansfiðringinn í tærnar. Þannig virkar þessi sveit lífsglað- ari en áhrifavaldar sínir. Ekkert unglingaþunglyndi, þrátt fyrir að liðsmenn séu líklegast enn að kljást við unglingabólur. Skrækur en sálarfullur söngur gáfu mér svo gæsahúð í laginu Fight the Feel- ing. Þessum mönnum finnst augljós- lega gaman að spila saman og eng- in ástæða til þess að ætla annað en að þessi sveit muni vaxa með hver- ri útgáfu. Platan líður þó aðeins fyrir það að bestu lögunum er kas- tað fremst. Með öðrum orðum, hún fer full hratt frá fimmtudags- kveldi yfir á laugardagskvöld, og eyðir svo óþægilega löngum tíma á þunnudegi. Engu að síður vel af sér vikið. Ég mun hafa auga með þessari sveit áfram. Birgir Örn Steinarsson Múúú sig? MUSIC WELCOME TO THE NORTH NIÐURSTAÐA: Ungliðarnir í The Music standast pressuna og skila af sér annarri frábærri breið- skífu. Heildin heldur þó ekki athyglinni eins lengi og frumburður þeirra gerði. [ TÓNLIST ] UMFJÖLLUN Kvikmyndaleikstjórinn Ingmar Bergman hefur viðurkennt að hann eigi dóttur sem hann átti á laun með sænskri konu á sjötta áratugn- um. Bergman gengst við barn- inu í nýrri æviminningabók sem hann skrif- aði ásamt dóttur sinni Maríu, sem hann átti með Ingrid Van Rosen árið 1959. Ingrid vissi sjálf ekki að Bergman væri faðir henn- ar fyrr en hún var orðin 22 ára. Bergman giftist Van Rosen árið 1971 en hún varð fimmta eiginkona hans. Hún lést úr krabba- meini árið 1995. Van Rosen og Berg- man voru bæði gift þegar þau fóru að stin- g a nefjum saman. Í nýju bókinni, Three Diaries, lýsir Bergman því hvernig hann ákvað að leysa upp hjónaband sitt. Í bókinni er fléttað saman dagbókum Berg- mans, Van Rosen og Maríu á þeim tíma sem Van Rosen lá banaleguna. ■ INGMAR BERG- MAN Sænski kvik- myndaleikstjórinn á fleiri börn en hann hefur þorað að við- urkenna fyrr en nú. ■ FÓLK ROBBIE WILLIAMS Hann ætlar að gefa út plötu á minniskubbi, sem er ný aðferð sem tónlistarútgefendur binda miklar vonir við. ■ TÓNLIST Robbie á minniskubb Við ná um í v ör us en din ga r f yr ir há de gi og ök um þe im út til fy rir tæ kja eft ir há de gi sa m a d ag og til ei ns tak lin ga um kv öld ið. Ek ki bíð a a ð ó þö rfu . Fá ðu se nd ing un a s am dæ gu rs m eð P ós tin um . www.postur.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S IS P 23 96 1 1 0/ 20 04 Þa ð e r e kk er t s vo lé ttv æg t a ð þ að ge ti be ðið ti l m or gu ns Leynidóttir Bergmans

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.