Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.10.2004, Qupperneq 46

Fréttablaðið - 20.10.2004, Qupperneq 46
38 20. október 2004 MIÐVIKUDAGUR Nýr Bingóþáttur undir stjórn Villa Naglbíts hefur göngu sína á Skjá einum um næstu helgi. Þátt- urinn verður um margt óvenju- legur en auk hins hefðbundna bingós getur fólk brugðið á leik í von um að hreppa stóra vinninga. „Þetta verður eiginlega svona stuðbingó með hröðum takti eða kannski furðulegt fjölskyldubingó eða bara brjálað bingó,“ segir Villi sem hefur verið að vinna að þættinum síðustu vikurnar. „Ég mun bæði draga út tölur og búa þær til með ýmsum hætti.“ Bingóþátturinn er að öllu leyti ókeypis. Þátttakendur prenta út eins mörg bingóspjöld og þeir vilja sem þeir sækja inn á heima- síðu Skjás 1, s1.is. Á hverju spjaldi eru þrjár raðir og í hverri röð eru fimm tölur. Fyrst er spilað um eina röð lárétt, því næst tvær raðir lárétt og í lokaleiknum er spilað um allar raðirnar þrjár. Þeir sem fá bingó hringja svo í Villa. „Þeir sem ná í gegn þurfa að velja úr happakössum. Inni í þeim eru allskyns vinningar, allt frá Playstation-tölvum og DVD-spil- urum niður í sokka og trommu- kjuða,“ útskýrir Villi en þar með er sagan ekki öll. „Síðan vel ég eitthvað meira handa sigurvegur- unum og þeir verða allir leystir út með haug af vinningum. Þetta eru bæði flottir og mjög fyndnir vinn- ingar.“ Aðalvinningurinn í hverjum þætti er notaður bíll. „Sá sem fær bingó í lokaleik hvers þáttar fær að snúa lukkuhjóli og hreppir bíl í verðlaun. Þetta eru mjög spes bíl- ar,“ segir Villi en vill þó ekki gefa meira upp um glæsikerrurnar að sinni. Þeir keppendur sem ekki hreppa vinning í bingóinu geta alltaf reynt að fara aðra leið. „Í hverjum þætti verður einn þátt- takandi sem sækir um og segir hvað hann langar í. Ef hann er síð- an tilbúinn að láta tattúera mynd af hlutnum á sig fær hann hann í vinning. Þátttakandinn velur hlut- inn alveg sjálfur og ef hann lang- ar til dæmis í tvöfaldan amerísk- an ísskáp reynum við að græja það,“ segir Villi og bætir við. „Það er upplagt fyrir fjölskylduna að sitja saman fyrir framan skjáinn og hreppa góða vinninga fyrir alla fjölskyldumeðlimi.“ kristjan@frettabladid.is 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 ... fær Hafdís Kristjánsdóttir fyrir að gera sér lítið fyrir og sigra í magadanskeppni í Tyrklandi, þrátt fyrir litla þekkingu á því sviði. HRÓSIÐ Óttast að Bush hafi þetta „Ég vona hjartanlega að Kerry vinni en ég óttast að Bush hafi þetta á endasprettin- um. Kerry hefur öll málefnin með sér. Hann hefur lausnir og þekkingu á efnahags- málum og er fordóma- laus í garð umheims- ins, á meðan endur- kjör Bush fæli í sér vond tíðindi, ekki að- eins fyrir Bandaríkin og Mið-Austurlönd, heldur heim- inn allan. Bush minnir meira á heimóttarlegan hér- aðspólitíkus en heimsforingja. Hann virðist í gíslingu mjög hægrisinnaðra harðtrúarmanna sem líta heiminn allt öðrum augum en flestir aðrir sem í honum búa.“ Stríðsforsetinn vinnur „Ég segi Bush. Hann er stríðsforseti. Bandaríkjamenn eru í eðli sínu íhaldssamir og eru ekki mikið fyrir að breyta. Ég held að þrátt fyrir allar hörmungarnar í Írak muni Amer- í k u m a ð u r i n n segja þegar inn í kjörklefann er komið: „Ég veit hvað ég á og ég veit að Bush er að taka á hryðjuverk- um.“ Persónulega hefði ég verið til- búinn að taka áhættu og gefa Kerry tækifæri.“ Sami forseti og nú „Að fenginn reynslu úr síðustu forsetakosningum má ætla að næsti forseti verði sá sami og nú, þar sem afar mjótt virðist vera á mununum og þegar svo er virð- ast líkur á því að pendúllinn svei- flist yfir til Bush. Mér finnst Kerry vera óttalegur spýtukall en mið- að við það ástand sem Bush er búinn að steypa heim- inum í held ég að Kerry geti ekki orðið verri.“ HVER VERÐUR NÆSTI FORSETI BANDARÍKJANNA? ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON formaður Samfylkingarinnar INGVI HRAFN JÓNSSON útvarpsmaður HILDUR HELGA SIGURÐAR- DÓTTIR blaðamaður „Ég get ekki neitað því að hafa gert þetta. Börnin mín fengu taugaáfall þegar þau sáu augýsinguna,“ segir Guðrún Helgadóttir, rithöfundur og fyrrverandi alþingismaður, sem les inn á sjónvarpsauglýsingu fyrir bílaumboðið KIA. „Mér fannst þetta svolítið fríkað og skemmti- legt en ég veit ekki einu sinni hvernig þessir bílar líta út. Ég gerði þetta fyrir gamlan vin minn Pétur Kjartansson sem flytur þessa bíla inn.“ Það brá mörgum í brún við að heyra auglýsinguna og velta sumir því fyrir sér hvort gamli komminn sé kominn á sveif með kapítalistun- um. „Gamlir kommar eiga líka bíla og það er hugsjón þeirra að allir eigi góða bíla,“ segir Guðrún hlæj- andi. „Ég hef nú ekki fylgst með því hvort söluaukning hafi orðið á bíl- unum en ég hef ekki fengið tilboð um að lesa inn á fleiri auglýsingar.“ Guðrúnu finnst ekki mikið til nýja starfsins koma og ætlar ekki að leggja auglýsingalestur fyrir sig. „Upptökumennirnir voru samt frekar ánægðir með mig. Sögðu að ég hefði gert þetta á stuttum tíma og staðið mig vel,“ segir Guðrún hlæjandi. „Þetta var nógu vitlaust til að hægt væri að hafa gaman af þessu.“ ■ GUÐRÚN HELGADÓTTIR Rithöfundurinn og fyrrverandi alþingismaðurinn les inn á bíla- auglýsingu fyrir KIA-umboðið. Gamall kommi auglýsir bíla – hefur þú séð DV í dag? Strokufanginn gekk berserks- gang á Dominos Lögreglan sagði hann ekki hættulegan ■ VEISTU SVARIÐ? Svör við spurningum á bls. 6 1 3 2 Áfengi. Fangelsinu á Skólavörðustíg. Við Ægisíðu. BINGÓ VILLI Vilhelm Anton Jónsson byrjar með nýjan bingóþátt á sunnudagskvöldið á Skjá einum. Þátturinn verður með furðulegasta móti. VILLI NAGLBÍTUR: BYRJAR MEÐ NÝJAN SJÓNVARPSÞÁTT Á SUNNUDAGINN Furðulegt fjölskyldubingó Lárétt: 2 sælgætistegund, 6 belti, 8 frostskemmd, 9 biblíunafn, 11 í röð, 12 afla, 14 karlfugl, 16 skóli, 17 ílát, 18 hjúpur, 20 samhljóðar, 21 spil. Lóðrétt: 1 undirstaða, 3 jökull, 4 borg til forna, 5 rödd, 7 senumann, 10 læti, 13 eins um r, 15 jörp meri, 16 tafllok, 19 frá. Lausn Lárétt: 2mona,6ól,8kal,9lea,11st, 12fiska,14karri,16ma,17ker, 18ára, 20tp,21tafl. Lóðrétt: 1gólf, 3ok,4nasaret,5alt,7 leikara,10asa,13krk,15irpa,16mát, 19af.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.