Fréttablaðið - 27.10.2004, Síða 55
MIÐVIKUDAGUR 27. október 2004
Bob Geldof hafði verið lítt áber-
andi í nokkurn tíma áður en hann
ákvað að semja lag vegna hung-
ursneyðarinnar í Eþíópíu. Hljóm-
sveit hans, The Boomtown Rats,
hafði ekki gefið út vinsælt lag í
fjögur ár í Bretlandi og litið var á
Geldof sem útbrunninn síðpönk-
ara. Lifði hann á fornri frægð lags-
ins I Don’t Like Monday’s sem naut
á sínum tíma mikilla vinsælda. Eft-
ir að Geldof samdi Do They Know
It’s Christmas og stóð fyrir Live
Aid hélt hann áfram í baráttu sinni
gegn hungursneyð í Afríku. Í fram-
haldinu var hann aðlaður í Bret-
landi árið 1986 og kallast því Sir
Bob Geldof. ■
Fyrir utan þátttöku sína í Band Aid
er Midge Ure þekktastur sem
söngvari rafpoppsveitarinnar
Ultravox sem var mikill frumkvöð-
ull á sínu sviði. Sú sveit hætti árið
1987 eftir að hafa starfað í 13 ár,
fyrst undir nafninu TigerLily.
Ure var staddur í búningsher-
bergi sjónvarpskonunnar Paula
Yates, þáverandi kærustu Bob
Geldof, þegar Geldof vildi fá að
heyra í honum í símanum. Þá hafði
Ure nýlokið við að koma fram í
þætti hennar, The Tube. Þrátt fyrir
mikið annríki samþykkti Ure að
hjálpa Geldof við að semja Do
They Know It’s Christmas. Núna,
20 árum síðar, stendur Ure á bak
við endurgerð lagsins sem kemur
út fyrir næstu jól. ■
SMS
LEIKUR
EINTAK Á 199 KRÓNUR?
Sendu SMS skeytið
BTL TBF á
númerið 1900
og þú gætir unnið!
12. hve
r
vinnur!
Ótal
auka-
vinning
ar!
Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind. Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 199 kr/skeytið
Kem
ur 5
.nóv
.
PC CD-ROM
PC CD-R
OM
INNIHELDUR
ÍSLENSKU
DEILDINA!
Aðlaður árið 1986
BOB GELDOF Rokkarinn Bob Geldof horfir á Biniam Alemu, tveggja ára dreng.
Hver er Midge Ure?
MIDGE URE Höfundur Band-Aid lagsins
var söngvari hljómsveitarinnar Ultravox.
» BETRI SJÓNVARPSDAGSKRÁ
Á MIÐVIKUDÖGUM