Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.11.2004, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 09.11.2004, Qupperneq 24
Morgunbla›i› 04.01. 2004 Hvítlaukstöflur úr ferskum hvítlauk eru þeim mun virkari sem þær innihalda meira af virka efninu ALLICIN. Bestur árangur í rannsóknum hefur náðst með töflum sem innihalda yfir 3,6 mg af allicin. Þess vegna eru 4 mg af allicin í hverri hvítlaukstöflu frá Heilsu. Þær eru engu að síður lyktarlausar. Það er leitun að sterkari hvítlaukstöflu. Nánari upplýsingar um hvítlauk má finna í Nýju íslensku lyfjabókinni (Lyfjabókaútgáfan), Bætiefnabókin (Mál og menning) og www.heilsa.is/bætiefni 4 9. nóvember 2004 ÞRIÐJUDAGUR Keppendur í Galaxy Fitness: Styttist í stóra daginn Nú styttist óðum í Galaxy Fitness keppnina en forkeppnin var síðastliðinn sunnudag. Sjálf keppnin er svo um næstu helgi, 13. til 14. nóvember í Laugardalshöll. Þetta er því síðasta vikan sem kepp- endurnir hafa í undirbúningi en margt hefur gerst síðan Fréttablaðið talaði við þá síðast. Ívar Guð- mundsson æfir enn af krafti en því miður þurfti Sólveig Einarsdóttir að skrá sig úr keppni vegna meiðsla á öxl. Sólveig var búin að æfa mjög stíft fyrir keppnina en þarf að hætta keppni vegna meiðsla. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M „Ég er mjög fínn og allt er í góð- um gír hjá mér. Nú er síðasta vik- an fyrir keppni og þá er mikil- vægt að hvíla sig vel. Ég tek síð- ustu æfinguna mína í dag eða í fyrramálið og hvíli síðan fram að keppninni. Ég verð að fá góða hvíld svo ég geti komið óþreyttur í keppnina,“ segir Ívar Guð- mundsson, annar keppendanna sem Fréttablaðið hefur fylgst með síðustu vikur. „Ég held mataræðinu mjög stífu alveg fram á keppnisdag. Það er ekki gott að breyta út af vananum því þá gæti maður lent í vondum málum. Ég stunda létta hreyfingu eins og til dæmis göngu til að halda mér við,“ segir Ívar en síðasta vikan er mikið til fínpússning fyrir keppnina. „Núna hætti ég í ljós- um og fer að snúa mér að brú- nkukreminu. Maður þarf að byrja að gera tilraunir með það þrem dögum áður. Það er viss brúnn litur sem ég verð að ná sem sýnir mestan skurð.“ Ívar hlakkar að vonum mikið til keppninnar og lætur ekkert stöðva sig. „Þetta verður mjög gaman og það jákvæða er að keppnin er mjög skemmtileg. Keppendur hafa gaman af og styðja og hvetja hvern annan þó þetta sé keppni. Lykilatriði í svona keppni er náttúrlega stemningin og áhorfendurnir spila þar stórt hlutverk. Oft eru heilu stuðnings- mannaliðin með sumum keppend- um, sem er mjög gaman.“ Hættir í ljósum og fer í brúnkukremið Ívar segir að hvíldin sé mikilvægust og reynir því að taka því rólega þessa dagana. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L. Dottin úr keppni „Ég er frekar sár því allt sem ég hef unnið að er ónýtt. Ég meiddist á öxl og er dottin úr keppninni. Ég hef farið tvisvar sinnum úr axlarlið áður. Sam- kvæmt læknisráði væri heimska að fara í keppnina og gera einhverjar tíu eða fimmt- án armbeygjur. Líf mitt náttúr- lega hrundi þegar þetta gerðist og mér leið ömurlega. Þetta eyðilagði algjörlega andann hjá mér,“ segir Sólveig Einarsdótt- ir, sem þurfti að hætta keppni vegna meiðsla. Sólveig er samt ekki af baki dottin og ætlar að fara á keppn- ina og fylgjast með hinum spreyta sig. „Það kemur mót eftir þetta mót og auðvitað fer ég á keppnina og horfi á hina.“

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.