Fréttablaðið - 28.11.2004, Side 2
2 28. nóvember 2004 SUNNUDAGUR
Verðandi borgarstjóri:
Verður að finna annan stað
fyrir bandaríska sendiráðið
SENDIRÁÐ „Við erum komin á
þann tímapunkt að það þarf að
ræða það alvarlega við utan-
ríkisráðuneytið að finna banda-
ríska sendiráðinu annan stað,“
segir Steinunn Valdís Óskars-
dóttir, tilvonandi borgarstjóri.
Nágrannar sendiráðsins eru
æfir vegna aukinna öryggisráð-
stafana í kringum sendiráðið og
vilja að það sé flutt annað. Stein-
unn segist skilja áhyggjur íbú-
anna við Laufásveg. „Ástandið
gengur ekki svona til lengdar.“
Pia Hanson, upplýsingafull-
trúi sendiráðsins, segir starfs-
menn sendiráðsins vilja flytja
en það vanti frumkvæði frá
Washington. Þá taki það tíma að
finna nýja lóð fyrir sendiráðið.
Steinunn Valdís bendir á að í
gegnum tíðina hafi margar lóðir
í útjaðri borgarinnar verið skoð-
aðar en alltaf vantað fé að utan.
Í fyrra þrýstu hollensk
stjórnvöld á bandarísk yfirvöld
um að finna sendiráðinu í Haag
annan stað af svipuðum ástæð-
um og þeim sem hér um ræðir.
Steinunn segir ekki ákveðið
hvort það sama verði reynt hér.
„Við förum yfir málið innan
borgarkerfisins eftir helgi og
sjáum til hvað kemur út úr því.“
Full samstaða er um málið innan
R-listans og Kjartan Magnús-
son, borgarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins, segir sinn flokk fúsan
til að ræða málið.
Ekki náðist í Davíð Oddsson
utanríkisráðherra vegna máls-
ins. - bs
Kosningar endur-
teknar fyrir áramót
Líkur eru á að boðað verði til nýrra kosninga í Úkraínu fyrir áramót.
Þingið lýsti forsetakosningarnar ógildar í gær og samþykkti vantraust á
yfirkjörstjórnina. Viktor Júsjenko vill að kosið verði aftur 12. desember.
ÚKRAÍNA Úkraínska þingið hefur
lýst forsetakosningarnar sem
fóru fram um síðustu helgi ógild-
ar. Þá samþykkti þingið einnig
vantrausttillögu á yfirkjörstjórn-
ina sem á miðvikudaginn staðfesti
sigur Viktors Janukovitsj í kosn-
ingunum. Það gerði yfirkjör-
stjórnin þrátt fyrir gríðarleg mót-
mæli hundruð þúsunda úkra-
ínskra borgara og vestrænna rík-
ja sem telja að Janukovitsj hafi
svindlað í kosningunum á kostnað
Viktors Júsjenko.
Þó að þingið hafi lýst kosning-
arnar ógildar með samþykki 255
þingmanna af 429 er samþykktin
ekki lagalega bindandi. Hún er
hins vegar talinn vera mikill sigur
fyrir stjórnarandstöðuna. Van-
traustið á yfirkjörstjórnina hefur
heldur ekki neina lagalega þýð-
ingu en þykir auka þrýstinginn á
Janukovitsj.
Evrópusambandið hefur farið
fram á að kosningarnar verði end-
urteknar fyrir áramót og er talið
líklegt að það verði niðurstaðan.
Javier Solana, utanríkisráðherra
sambandsins, hefur tekið þátt í
viðræðum um friðsamlega lausn
deilunnar. Hann segir að ef kosn-
ingarnar verði ekki endurteknar
muni það hafa afdrifaríkar afleið-
ingar fyrir samband Úkraínu við
Evrópusambandsríkin.
Tugir þúsunda stuðningsmanna
Júsjenko hafa mótmælt á götum
Kænugarðs, höfuðborgar Úkraínu,
síðan á sunnudaginn. Júsjenko,
sem vill efla tengslin við Vestur-
lönd, ávarpaði fjöldann í gær og
sagði að aðeins ein lausn kæmi til
greina og hún væri að boða til
nýrra kosninga. Hann vill að kosið
verði aftur sem allra fyrst og hefur
nefnt 12. desember sem hentuga
dagsetningu. Júsjenko hvatti fólkið
til að halda mótmælunum áfram
allt þar til lausn fengist í málið.
Janukovitsj, sem vill bæta
samskiptin við Rússland í stað
þess að efla tengslin við Vestur-
lönd, hefur gagnrýnt framferði
Júsjenko í vikunni. Hann segir að-
gerðir hans jafngilda tilraun til
valdaráns.
trausti@frettabladid.is
Samgönguráðherra:
Vill flugvöll
í Reykjavík
FLUGVÖLLUR Sturla Böðvarsson
samgönguráðherra segist ekki
telja að flytja eigi innanlandsflug-
ið til Keflavíkur.
„Innanlandsfluginu er best
fyrir komið í Reykjavík,“ segir
Sturla. „Ef við
þurfum að
taka á okkur
miklar skuld-
bindingar við
rekstur Kefla-
víkurflugvall-
ar eru hins
vegar allt aðr-
ar forsendur.
Við verðum þá
hugsanlega að
stokka spilin
upp að ein-
hverju leyti.“
Sturla segir að eins og staðan
sé nú sé flugvöllurinn rekinn á
forsendum varnarsamningsins.
„Þetta er ný mynd sem þarna
myndi skapast. Aðalatriðið er það
að við munum meta stöðuna þegar
niðurstaðan liggur fyrir.“ - ás
„Jú, ef garðurinn er ekki hernaðar-
aðgerð gagnvart grannanum.“
Erlingur Gíslason leikari býr gegnt bandaríska
sendiráðinu og er ekki hrifinn af „blómakerjum“
sem hefur verið komið fyrir fyrir framan sendiráð-
ið af öryggisástæðum.
SPURNING DAGSINS
Erlingur, er ekki garður granna
sættir?
Brottnámið í Kópavogi:
Sjö menn
yfirheyrðir
BROTTNÁM Maðurinn sem lokkaði
níu ára gamla stúlku upp í bíl til
sín í Kópavogi og skildi hana eftir
á Mosfellsheiði á miðvikudaginn
var enn ófundinn þegar blaðið fór
í prentun í gærkvöldi. Lögreglan í
Kópavogi hefur yfirheyrt alls sjö
menn vegna málsins og segir
rannsókn vera í hefðbundnum
farvegi.
Lögreglunni hefur borist fjöldi
ábendinga vegna málsins og fylg-
ir þeim nú eftir.
Stúlkan lýsir manninum sem
tvítugum, sköllóttum, með svört
gleraugu og skegg undir vörinni
og segir að hann hafi ekið rauðum
fólksbíl með skotti. Þeir sem telja
sig geta veitt einhverjar upplýs-
ingar eru beðnir um að hafa sam-
band við lögregluna í Kópavogi.
- bs
Yfirvöld í Pakistan:
Hafa hætt
leitinni að
bin Laden
PAKISTAN Stjórnvöld í Pakistan
hafa ákveðið að láta af hernaði í
héraðinu Suður-Waziristan þar
sem pakistanski herinn hefur
barist við al-Kaída og talíbana.
Svæðið meðfram landamærum
Afganistans var talið einn af
mögulegum felustöðum Osama
bin Laden og kom tilkynningin
frá stjórnvöldum degi eftir að
herforingi frá Pakistan lýsti því
yfir að ítrekuð leit á svæðinu
hefði ekki borið árangur.
„Bin Laden er með stóran
flokk í kringum sig sér til vernd-
ar. Ef hann hefði verið hérna á
svæðinu þá hefði hann ekki farið
framhjá okkur,“ sagði Safdar
Hussain, herforingi í norðvestur-
hluta Pakistan. ■
Uppreisnarhópur í
Kólumbíu:
Ætluðu að
drepa Bush
KÓLUMBÍA, AP Uppreisnarmenn í
hópi marxista í Kólumbíu hugð-
ust drepa George W. Bush þegar
hann heimsótti borgina Carta-
gena í síðustu viku. Öryggisgæsla
var gífurleg við heimsókn Bush
og engin óhöpp urðu.
Forsetinn stoppaði stutt í
Kólumbíu 22. nóvember á leið
hans aftur til Washington frá
Santiago í Chile. Yfir 16.000 með-
limir eru í uppreisnarhópnum
FARC og er hópurinn stærsti,
elsti og best búni uppreisnarhóp-
ur marxista í Kólumbíu. ■
STEINUNN VALDÍS ÓSKARSDÓTTIR
Segist skilja áhyggjur íbúa við Laufásveg og
ástandið gangi ekki svona til lengdar.
STURLA
BÖÐVARSSON
Innanlandsflugi best
fyrir komið í borginni.
JÚSJENKO ÁVARPAR FJÖLDANN
Tugir þúsunda stuðningsmanna Viktors Júsjenko mótmæltu í Kænugarði í gær. Júsjenko
hvatti fólk til að halda mótmælunum áfram þar til lausn fengist í málið.
BÆJARSTJÓRNARMÁL Í næstu viku
verður tekin í bæjarstjórn Kópa-
vogs ákvörðun um framtíð verk-
smiðju Mjallar-Friggjar á lóð fyr-
irtækisins við höfnina á Kársnesi
í Kópavogi. Gunnar I. Birgisson,
formaður bæjarráðs, segir tillög-
ur fram komnar um hvernig haga
skuli starfseminni. „Við erum að
lesa þær tillögur yfir og svo verð-
ur málið afgreitt til heilbrigðis-
nefndar sveitarfélagsins í næstu
viku,“ segir hann.
„Fyrirtækið er með leyfi í
Reykjavík og fer eftir þeim ör-
yggiskröfum sem þar voru sett-
ar.“ Gunnar segir vilja til þess að
hafa fyrirtækið í Kópavogi, en
það verði þá að fylgja þeim örygg-
iskröfum sem þar eru settar. Inn-
an bæjarstjórnarinnar eru uppi
raddir sem efast um að starfsemi
þar sem hætta gæti verið á meng-
unarslysi eigi heima svo nálægt
byggð, eins og raunin er á Kárs-
nesinu. „Við getum náttúrlega
ekkert verið á móti þessu ef
fyllsta öryggis er gætt og hættan
er engin. Þetta er fyrirtæki sem
veltir milljarði á ári og er með
tugi manna í vinnu og því fengur
að hafa það,“ segir Gunnar. - óká
Starfsleyfi Mjallar-Friggjar í Kópavogi:
Vilja hafa fyrirtækið í Kópavogi
HÆTTUSVÆÐI VEGNA KLÓRGASMENGUNAR
Í umsögn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins vegna starfsleyfis Mjallar-Friggjar á Kársnesi
segir að klórgasið sé mjög hættulegt, bæði ætandi og eitrað.
KO
RT
/B
O
RG
AR
VE
FS
JÁ