Fréttablaðið - 28.11.2004, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 28.11.2004, Blaðsíða 4
4 28. nóvember 2004 SUNNUDAGUR Geir H. Haarde um skattalækkanir ríkisstjórnarinnar: Reynt að rangtúlka SKATTALÆKKANIR „Það er búið að lækka skatta stórlega á fyrirtæki og það hefur skilað ríkissjóði auknum tekjum því fyrirtækin efldust. Nú er komið að venju- legu vinnandi fólki,“ sagði Geir H. Haarde fjármálaráðherra í er- indi á fundi með sjálfstæðis- mönnum á Grand Hotel í gærmorgun. Geir sagði að skattalækkan- irnar væru stærsta þingmál kjörtímabilsins og hefðu ekki fengið verðskuldaða athygli heldur verið gert lítið úr því og reynt að rangtúlka það. Hann sakaði stjórnarandstæðinga um hringlandahátt í gagnrýni sinni. Allir munu hagnast á skatta- lækkunum ríkisstjórnarinnar, að mati Geirs, sérstaklega einstæð- ir foreldrar, aldraðir og lágtekju- fólk. Hann tók sem dæmi að í lok kjörtímabilsins myndi hagur hjóna með tvö börn undir sjö ára aldri og með um sex milljónir samanlagt í tekjur batna um því sem nemur 470 þúsund krónum á ári vegna skattalækkana og hækkunar barnabóta. Þá muni niðurfelling eignaskatts og hækkun skattleysismarka gagn- ast eldra fólki sérstaklega þar sem helmingur þeirra sem greiða eignaskatt er eldri en 60 ára. - bs SÝKINGAR Auglýst hefur verið eft- ir upplýsingum um gamlar grafir þar sem skepnum hefur verið fargað vegna miltisbrands. Sig- urður Sigurðarson, dýralæknir á Keldum, segir að merkja þurfi þessi svæði til að koma í veg fyr- ir að hreyft verði við sýktri jörð, því ef miltisbrandssýktar dýra- leifar komi upp á yfirborðið kunni bakteríur að berast í menn og dýr. Því þurfi að sýna aðgát þegar grafið sé fyrir skólpræs- um, húsum og slíku. Sigurður segir að miltisbrand- ur sé bráð og lífshættuleg sýking sem valdi garnabólgum og blæð- ingum úr vitum dýra. Miltis- brandur geti líka valdið lífshættulegu drepi hjá mönnum berist hann í sár. Almenningur á þó ekki að vera í teljandi hættu á að sýkjast. Síðast kom upp miltisbrands- sýking hér á landi árið 1965, þeg- ar einar fimm kýr drápust og tveir menn fengu útbrot á hand- leggi. Sýkingin reyndist ekki banvæn, enda eru til virk lyf við henni. Sigurður segir að sýkingin hafi gengið á landinu í hundrað ár, frá 1865 til 1965. Hún náði nokkurri útbreiðslu á nítjándu öld í búpeningi og náði hámarki um aldamótin 1900. Þá barst miltisbrandur hingað með inn- fluttum ósútuðum húðum sem komu alla leið frá Afríku í gegn- um Danmörku. Þá drápust nokkrir tugir skepna. Síðar náð- ist að hefta sýkinguna með því að banna innflutning á húðunum. Mikið hefur verið fjallað um miltisbrand í Bandaríkjunum á undanförnum árum. Þar hafa óvandaðir menn sent hann með pósti til einstaklinga, stofnana og fyrirtækja. ghg@frettabladid.is GRETZENBACH Björgunarmenn hífa slasaðan slökkviliðs- mann úr rústunum. Eldsvoði í Sviss: Fimm létust SVISS, AP Fimm slökkviliðsmenn létu lífið í eldsvoða í bílastæða- húsi þegar loft þess hrundi í Gretzenbach í Sviss í gær. Lík mannanna fundust í rúst- unum þegar langt var liðið á kvöld eftir tíu tíma leit í þykkum reykn- um. Í gærkvöldi voru tveir slökkviliðsmenn enn ófundnir. „Svo lengi sem við vitum ekki fyrir víst að þeir séu dánir, þá höldum við áfram leitinni,“ sagði Paul Haus, slökkviliðsstjóri. Alls voru ellefu slökkviliðsmenn inni í bílastæðahúsinu þegar það hrundi, þrír sluppu ómeiddir og þeim fjórða var bjargað og hann fluttur á sjúkrahús með reykeitr- un. ■ Ertu byrjaður að kaupa jólagjafir? Spurning dagsins í dag: Á að flytja bandaríska sendiráðið úr miðborginni? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 56% 44% Nei Já KJÖRKASSINN Farðu inn á fréttahluta visir.is og segðu þína skoðun Empire State í New York: Stökk af 86. hæð NEW YORK Maður framdi sjálfsmorð í New York með þeim hætti að hann stökk fram af 86. hæð Empire State byggingarinnar sem er einn fjölfarnasti ferðamannastaður Manhattan, samkvæmt CNN. Maðurinn þurfti að klifra yfir öryggisgirðingu til þess að stökkva niður og lést hann samstundis við fallið. Engin persónuskilríki fund- ust á manninum. Að minnsta kosti 31 maður framið sjálfsvíg með því stökkva fram af byggingunni sem laðar að sér yfir 3,8 milljónir manna á hverju ári. ■ Aðdraganda Njálsbrennu lýst með hraða og spennu myndasögunnar. Brennan er sjálfstætt framhald verðlauna- bókarinnar Blóðregns. Bergþórshvoll brennur! 2. sæti Börn og unglingar Penninn Eymundsson og Bókabú›ir MM 17. – 23. nóv. TAJ MAHAL Ástarhofið í Indlandi verður nú opið al- menningi fimm kvöld í mánuði auk venju- legs opnunartíma á daginn. Taj Mahal á Indlandi: Opið á nóttunni INDLAND, AP Nú hefur verið ákveðið að hafa ástarhofið í Indlandi, Taj Mahal, einnig opið almenningi á nóttunni samkvæmt BBC. Þetta hefur ekki verið leyft í 20 ár vegna öryggisráðstafana. Hofið sem er nú orðið 350 ára gamalt verður því opið á nóttunni fimm sinnum í mánuði en ekki fá fleiri aðgang að hofinu en 400 manns í einu. Hofið sem keisarinn Shah Jahan lét byggja fyrir konu sína er einn best varðveitti staður í Ind- landi og vegna breytingarinnar á opnunartíma hofsins hefur örygg- isgæsla verið aukin til muna. ■ SAUÐFÉ FARGAÐ Dýralæknar vilja kortleggja hvar miltisbrandssýktum húsdýrum hefur verið fargað svo koma megi í veg fyrir að hreyft verði við jörðinni. GEIR H. HAARDE Segir flesta þeirra sem greiða eignaskatt vera aldraða. ■ EVRÓPA ENGISPRETTUR Á KANARÍEYJUM Stjórnvöld á Kanaríeyjum hafa gefið út viðvörðun vegna hættu á að engisprettufaraldur sem geis- að hefur í Afríku berist til eyj- anna. Þegar hafa um fimm þúsund engisprettur fundist og óttast stjórnvöld að þúsundir komi í viðbót. Það skapi mikil óþægindi fyrir íbúa og ferða- menn sem sóla sig á ströndum Kanaríeyja. Síðast geisaði engi- sprettufaraldur á Kanaríeyjum sjötta áratug síðustu aldar. Miltisbrandur kann að berast í menn Miltisbrandur kann að leynast í jarðvegi þar sem sýktum dýrum hefur verið fargað. Nú er reynt að kortleggja slíka urðunarstaði til að koma í veg fyrir að bakterían berist í menn og dýr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.