Fréttablaðið - 28.11.2004, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 28.11.2004, Blaðsíða 38
Regnbogi við Sundin./Ljósmynd: Teitur SJÓNARHORN SVIPMYND GRANADA: BORG Í ANDALÚSÍU-HÉRAÐI Á SUÐUR-SPÁNI. EINKENNI: Frábær arkitektúr í virkjum og höllum Máranna frá fjórtándu öld. Höll- in Alhambra er aðalferðamannastaðurinn sem Márarnir byggðu. Hæstu fjallatinda er einnig að finna á Granada-svæðinu en þeir eru í Sierra Nevada-fjallagarðinum. ÍBÚAFJÖLDI: 790 þúsund í héraðinu en 275 þúsund í borginni sjálfri. GJALDMIÐILL: Evra. MEÐALHITI: Fimmtán gráður. TUNGUMÁL: Kastilíska er opinbert tungumál en margir marókkóskir innflytjendur hafa búið sér stað í Granada. MENNING: Iðandi mannlíf á götum úti, tapas-smáréttir á öllum börum og mikil stúdentaborg. SKEMMTILEGT AÐ VITA: Nafnið á borginni er dregið af ávextinum granatepli. Í borg- inni eru síðan litlar járnstengur meðfram götum með ávöxtunum ofan á úr járni. FERÐAMENN Á ÁRI: Yfir 2,5 milljónir ferðamanna heimsækja Granada á hverju ári. Lifir eins og blómi í eggi Það besta við sunnudaga Ég er bara mjög sáttur við sunnudaga, það eru fínir dagar. Reyndar eftir að ég hætti að vinna þá eru allir dagar hjá mér sunnudagar þar sem ég byrja hvern dag á því að hitta félagana á Kaffivagninum kl. 8 og fá mér kaffi. Ég lifi bara eins og blómi í eggi á sunnudögum sem og á öðrum dögum. Það versta við sunnudaga Svo sem ekki neitt. Hérna áður fyrr var ég að leika fyrir börn á sunnudögum og þótti það gaman. Það sem mér þótti verst við það var að yfirgefa mín eigin börn á sunnudögum þegar aðrir gátu farið út að leika með börnin sín. Í dag er þetta náttúrulega ekki vandamál þar sem þau eru öll orðin fullorðin og lítið þarf að sjá fyrir barnabörnunum því þau eiga svo marga að. Tvö þeirra eru reyndar að leika í Dýrunum í Hálsaskógi á sunnudögum. Árni Tryggvason telur sunnudagana fína daga og lítið við þá að athuga lengur BESTA OG VERSTA 28. nóvember 2004 SUNNUDAGUR12 Vissir þú ... … að það er safn í Conwy í Wales sem er tileinkað tekötlum? … að árið 525 fyrir Krist vann Persakonungurinn Cambyses Eg- ypta með her af hundum? … að það að skora fólk á hólm er ennþá löglegt í Úrúgvæ? … að banvænn bardagi var háður árið 1843 í Frakklandi með billj- ard-kúlum? … að tennur pírana-fiskanna eru notaðar sem örvaoddar í Suður- Ameríku? … að það snjóaði þrisvar sinnum í júlí í Nýja-Englandi árið 1816 eins og stóð í spá í tímariti einu sem var sett inn sem grín? … að árið 1978 féllu 50.000.000.000.000.000 snjókorn á Boston í Massachusetts í Banda- ríkjunum í einum snjóstormi? … að bílalúguveitingastaður Maggie Patterson í Niles í Michig- an í Bandaríkjunum býður upp á skyndibita fyrir hunda? … að vatn í brunni nálægt Beres- ford í Dale á Englandi verður heit- ara þegar kólnar í veðri? … að fyrsti bíllinn með þrem gír- um var fundinn upp af W.H. James á Englandi árið 1832?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.