Fréttablaðið - 28.11.2004, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 28.11.2004, Blaðsíða 10
10 Tekjuskattur verður lækkaður úr 25,75 prósentum í 21,75 prósent á næstu þremur árum. Persónuafsláttur fylgir al- mennum hækkunum kjarasamninga og skattleysismörkin hækka um 20 prósent vegna lækkunar skattprósentunnar. Eignaskattur verður felldur niður árið 2005, barnabætur hækka og vaxtabæt- ur lækka. Hver eru áhrifin á fjölskyldurnar? Skattabreytingin hefur mest áhrif á þá sem greiða tekjuskatt og þá sem eiga ung börn. Þeir tekjuhærri og þeir sem eiga flest börnin hafa meiri ávinning í krónum talið en þeir tekjulægri. Vegna launaþróunar fram til 2007 má búast við að hlutfallsleg skattbyrði þeirra tekjulægstu lækki minna en þeirra tekjuhærri. Afnám hátekjuskattsins hef- ur líka í för með sér að skattbyrði þeirra tekjuhæstu lækkar meira en annarra tekjuhópa. Breytingar á barnabótunum fela þó í sér tekjujöfnun. Hækkun skerðingarmarka koma helst þeim tekjulágu og þeim sem eru með lægri millitekjur til góða. Hver eru efnahagsleg áhrif breytinganna? Tekjur ríkissjóðs verða líklega rúmum 29 milljörðum lægri árið 2007 en þær yrðu héldust skattareglur óbreyttar. Þunginn af skattkerfisbreytingunum kemur ekki fram fyrr en 2007 þar sem hætta er á ofþenslu í hagkerfinu sam- hliða stóriðju- og virkjanaframkvæmd- um. ASÍ telur þetta ekki rétt. Verðbólga hafi þegar verið yfir verðbólgumarkmiði í nokkra mánuði. Hætta sé á að hærri verðbólguvæntingar festist í sessi og því þurfi frekari aðgerðir til að ná verðbólg- unni niður að markmiðinu. Verði verð- bólgan ekki hamin geti það leitt til endurskoðunar á launalið kjarasamn- inga næsta haust. ASÍ telur æskilegt að hafa meira aðhald í ríkisfjármálum, bæði á skatta- og út- gjaldahlið, og óttast að viðskiptahalli geti grafið undan gengi krónunnar næstu árin. Helst ætti að fresta fyrirhug- uðum skattalækkunum árið 2006 til 2007. Þetta kemur fram í minnisblaði hag- deildar ASÍ. Fresta ætti skattalækkunum FBL GREINING SKATTABREYTINGAR RÍKISSTJÓRNARINNAR 28. nóvember 2004 SUNNUDAGUR Enn vel þekktur þótt stöðugt fenni í sporin Ásgeir Sigurvinsson landsliðsþjálfari uppsker enn augngotur gamalla aðdáenda í Stuttgart í Þýskalandi. Honum finnst gott að vera kominn heim og langar ekki að flytja aftur út, þótt hann útiloki það ekki. Hann boðar breyttan leik landsliðsins, meiri vörn en sókn. Ferðamálaráð Þýskalands er farið að kynna landið í tengslum við Heimsmeistarakeppnina í fótbolta sem fram fer árið 2006. Nokkrir leikir í keppninni fara fram þar í landi, þar á meðal fimm á leikvangi sem verið er að endurbyggja í Frankfurt. Ferðamálaráðið bauð nokkrum blaða- og fréttamönnum til lands- ins til að kynna framkvæmdir í Frankfurt og fleiri hluti. Með í för var Ásgeir Sigurvinsson, landsliðs- þjálfari fótboltaliðs Íslands, en hann var í eina tíð þjóðhetja í Þýskalandi fyrir snilli sína í boltan- um. Hann var meðal annars kosinn leikmaður ársins í Þýskalandi árið 1984. Ásgeir lék meðal annars með liði Stuttgart, en í ferðinni gafst honum og föruneytinu færi á að bregða sér á völlinn í Stuttgart og sjá liðið fá til sín í heimsókn lið Borussia Mönchengladbach. Leik- urinn þótti reyndar ekki mjög til- þrifamikill, en lið Stuttgart náði þó að knýja fram eitt núll sigur með marki í seinni hálfleik. Stuttgart varð Þýskalandsmeistari í fyrra, en Ásgeir átti ekki von á því að svo yrði líka í ár, liðið væri ekki upp á sitt besta. „Ég spái þeim þriðja til sjötta sæti núna,“ sagði hann. Gamlir aðdáendur Ásgeir neitar því ekki að leitað hafi verið eftir liðsinni hans við að efla Stuttgart-fótboltaliðið. „Ég fundaði með þeim hérna en sagði þeim að ég teldi að þeir hefðu fundið rétta manninn í starfið. Matthias Sam- mer er rétti maðurinn í starfið, gerði áður góða hluti með Dort- mund og svo hefur hann líka spilað með Stuttgart og þekkir því liðið og allar aðstæður,“ sagði hann og bætti við að þar færi því maður með reynslu. „Það er alltaf rosalega gaman að koma til Stuttgart. Þetta er eins og að koma heim,“ sagði Ásgeir og bætti við að enda hafi hann verið búsettur í Þýskalandi í ein fimmtán ár. „Það er mjög gaman að koma svona á leik og hitta alla gömlu fé- lagana. Hérna er ég líka enn með góð sambönd.“ Ásgeiri var enda vel tekið á vellinum, stöku áhorf- andi benti á hann brosandi og sum- ir gengu svo langt að kalla upp yfir sig gælunafn hans „Siggi!“ og faðma hann að sér. Sömu sögu var að segja á móttökusvæði þar sem velunnarar liðsins, eigendur og gamlir leikmenn, komu saman. Þar fóru menn ekki hratt yfir með Ás- geiri, sem stöðugt þurfti að taka í höndina á einhverjum og spjalla. Ásgeir segir samt heldur minna um það nú orðið að hann sé stopp- aður á götu í Stuttgart. „Það fennir smátt og smátt yfir sporin, það er orðið svo langt síðan maður var hér að spila.“ Markaðsvæddur bolti Töluverðar breytingar hafa orðið á aðstæðum stjörnuleikmanna í fót- bolta síðan Ásgeir var upp á sitt besta í þýska boltanum. „Þetta voru nú bara smáaurar sem við vorum að fá miðað við þessar upp- hæðir sem leikmenn eru að fá í dag,“ segir hann. Markaðsvæðing fótboltans er enda mun meiri en áður var og óhemjuupphæðir sem verið er að semja um fyrir útsend- ingarrétt frá fótboltaleikjum. Ás- geir segir þróunina hættulega, það geti ekki verið leikmönnum hollt að vera með laun upp á hundrað þúsund pund, eða um tólf milljónir króna, í vikulaun. Þá gera fót- ÓLI KRISTJÁN ÁRMANNSSON, BLAÐAMAÐUR FRÉTTAVIÐTAL LANDSLIÐSÞJÁLFARINN TEKINN TALI ÁSGEIR SIGURVINSSON Í STUTTGART Í hálfleik var staðan enn núll núll í leik Stuttgarts á heimavelli gegn Borussia Mönchengladbach. Ásgeir Sigurvinsson landsliðsþjálfari var ekki alveg nógu ánægður með gamla liðið sitt, en því tókst þó að skora eitt mark í seinni hálfleik og merja sigur. FR ÉT TA B LA Ð IÐ Ó KÁ Stúdentar við HÍ hafa mótmælt hverju málinu á fætur öðru að undanförnu, svosem leikskólagjöld- um, skólagjöldum og afgreiðslutíma Þjóðarbókhlöðunnar. Jarþrúður Ás- mundsdóttir er formaður Stúdenta- ráðs. Er ómögulegt að vera í Háskóla Ís- lands? Nei. Það er frábært að vera í Há- skóla Íslands. Skólinn hefur þá sér- stöðu að vera rannsóknarskóli og hann byggir á mjög gömlum grunni. Einnig eru þar starfandi kennarar og fræðimenn sem eru fremstir á sínu sviði, jafnvel í heiminum. En það er greinlega margt að. Nei, það er ekki mikið að en það eru ákveðnir hlutir sem við höfum þurft að benda á að betur mættu fara og komið upp mál í vetur sem við höf- um þurft að beita okkur gegn. Og yfirleitt með góðum árangri. Ekkert ámóta heyrist frá nemendur annarra háskóla, þó þeir séu ríkis- háskólar. Kanntu skýringu á því? Nei, ég kann ekki skýringu á því. JARÞRÚÐUR ÁSMUNDSDÓTTIR Frábært að vera í HÍ ÓÁNÆGJA Í HÁSKÓLANUM SPURT OG SVARAÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.