Fréttablaðið - 28.11.2004, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 28.11.2004, Blaðsíða 12
Það er æði mörgum gefið að læra. Læra mikið. Og læra yfir sig. En svo er ekki um alla. Ekki síst vegna þess að skólak- erfið er þeirrar gerðar að flokka fólk; dæma það fyrirfram, meta það á forsendum þess sem vantar en ekki þess sem er til staðar. Man eftir mínum barnaskóla. Tossabekkurinn var í kjallara hússins. Inn um aðaldyrnar fóru efri bekkirnir, en tossarnir urðu að láta sér það lynda að ganga inn um bakdyr til að komast í skóla- stofuna. Í kjallaranum bakatil. Þetta voru ákveðin skilaboð. Börn á þessum sjöunda áratug síðustu aldar voru hrædd með þeim orðum að ef þau stæðu sig ekki nógu vel í að ryðja út sér Gunn- arshólmanum upp við krítartöfluna yrðu þau umsvifalaust send niður í kjallara. Og það var botninn. Enn er skólakerfið helsti dómstóll lands- manna. Þar eru börnin dæmd daglega. Og dómsorðin eru ýmist þau að börnin geti mik- ið, minna, eða nokkurn- veginn ekki neitt. Á for- sendum fullorðinna fræðimanna eru lífs- tækifæri þeirra ákveðin á fyrstu árunum út frá því hvort þau geti deilt 16 í 240 eða fundið upp- tök Fnjóskár og hvort hún sé bergvatnsá eða jökulá. Lífsmöguleik- arnir eru sumsé ákveðnir út frá skil- greindri greind. Og greindin a tarna er mið- uð við minni og lestur máls og talna. Fólk er misjafnt. Þar á meðal börn. Og þau þroskast misjafnlega. Það sem getur verið veikleiki eins á áttunda ári getur verið styrkleiki hans um ferm- ingu. Og öfugt. Samt lýtur allt lög- málum hinna samræmdu prófa. Hinn endanlegi sannleikur um vit- ið í börnunum okkar er fenginn með stöðluðum spurningum sem eiga að heita jafn sanngjarnar, hvernig svo sem þroskanum líður, hvernig svo sem karakterinn er, hvernig svo sem heimilisaðstæð- um líður. Þetta er freklegt vald. Afspyrnu freklegt. Í grunnskólum landsins eru börnin metin á forsendum þess sem þau geta en ekki hver þau eru. Krakki með þröngar sérgáfur sem geta hæglega nýst honum til mikilla afreka síðar á lífsleiðinni á endilega ekkert erindi inn í svona skóla. Og líklega verður honum einfaldlega strítt; líkast til verður hann fórnarlamb eineltis. Krakki sem einfaldlega hefur ekki áhuga á stærðfræði en þeim mun meiri áhuga á íslensku – jafnvel yfirmáta áhuga á ljóðum – hann er ekki endilega á heima- velli í grunnskólum landsins. Hann er furðuverk. Og svo er það krakkinn sem aldrei átti mögu- leika á að blómstra í leikfimi og því síður að standa uppi við krít- artöfluna og þylja upp úr sér þjóð- skáldið, af því einfaldlega að hann er feitur og óframfærinn; ja, hvaða möguleika á hann? Grunnskólinn er kassalaga. Þeir sem púslast ekki rétt í þenn- an grunn að möguleikum lífsins standa einatt utangátta. Þeir eru einfaldlega ekki samræmdir. Þeir henta ekki stöðluðum prófum. Og eru dæmdir til að falla; sjálfu kerfinu til ómældrar réttlætingar. Því próf eru þeirrar náttúru að ef enginn fellur á þeim, eru þau of létt. Hver fann upp á því að til væri samræmd greind íslensk? Hver er talsmaður staðlaðrar visku? Hver kýs einsleitt samfélag? Og vitaskuld er spurningin miklu alvarlegri: Hver getur tekið sér það vald að afgreiða við- kvæmt barn sem vitleysing – á þeirri einu forsendu að staðlaðar þrautir henti ekki hugsun þess. Afhverju í ósköpunum er grunnskóli landsmanna ekki starfræktur á forsendum fjöl- breytileikans? Afhverju í ósköp- unum eru tækifæri barnanna ekki metin út frá styrkleikum þeirra? Af hverju þarf mest allt skóla- starf að ráðast að veikleikum þeirra og refsa þeim fyrir það sem þau kunna ekki? Styrkur hvers þjóðfélags er fjölbreytileikinn. Fátt er samfé- lögum jafn mikilvægt og að þar þrífist ólíkir persónuleikar sem fá að njóta sín í starfi og leik. Ekkert samfélag er jafn óspennandi og það sem hampar einsleitninni; klæðir menn í sama búning, sömu hugsun, sömu gjörðir. Sumsstaðar í heiminum hefur það verið reynt en það er gamalt sovét og svívirðilegt. Frelsi einstaklingsins í grunnskólum landsins er álíka mikið og hagsæld gúlagsins. Líklega er þetta orðum aukið – en ... ein- hvernveginn dettur manni í hug að samræmd próf séu hugarsmíð sovéskra fanta sem þoldu ekki dynti mannshugans. En kannski er þetta borðum aukið. Hvað með það. Grunnskólinn tekur sér gríðarlegt vald. Og sam- ræmd próf eru hamarinn sem gellur í þegar að ög- urstundu er komið. Feiti strákurinn og feimni sessunautur hans, eða ein- ræna stelpan úti við glugga, ætluðu sér kannski aldrei stóra hluti í íslensku, en eitthvert þeirra er ef til vill svo af- bragðs gott í stærðfræði að stórfyrirtæki munu berjast um starfskrafta þess. Svona fólk mun kannski aldrei láta það hvarfla að sér að halda ræðu á árshátíðum fyrirtækisins, en það þykir engu að síður af- bragðs starfsfólk. Nema hvað frami þess varð kannski aldrei að frama. Og ástæðan einföld. Af því það féll á samræmdu prófunum. Í ein- hverju fagi sem barasta hentaði ekki karakter þess. Eða er búið að finna um sam- ræmt líf? Hefur staðlað lífs- munstur einhvern tíma komið greina? Við eigum að taka á móti börn- unum okkar eins og þau eru – ekki eins og þau gætu verið út frá fyrirfram stöðluðu mati á meðal- manni. Það er enginn meðalmaður til. Það eru allir öðruvísi. Og hver einasti maður er öðrum undrunar- efni og ágiskun. ■ V estur í Bandaríkjunum hefur það valdið nokkru uppnámiað á markaðinn er kominn tölvuleikur sem býður upp áþá „afþreyingu“ að endurtaka morðið á John F. Kennedy, forseta landsins, í nóvember 1963. Framleiðendur leiksins virð- ast hissa á aðfinnslunum sem uppátækið hefur sætt; finnst þetta saklaus skemmtun sem að auki getur þjálfað viðbragðsflýti og skerpt rökhugsun þátttakenda. Sennilega kannast þeir ekki við hugtakið siðferði nema þá sem einhvers konar samheiti yfir for- sjárhyggju og afturhaldssemi. Það má þó hrósa Bandaríkja- mönnum fyrir að stjórnvöld þar í landi gera sér grein fyrir því að tölvuleikir sem byggjast á ofbeldi, klámi og virðingarleysi fyrir helstu siðferðislegu gildum samfélagsins hafa slæm áhrif á börn og unglinga. Lög þar í landi banna sölu slíkra leikja til þeirra sem ekki hafa náð átján ára aldri. Fréttablaðið birti í gær viðtal við móður drengs í Reykjavík sem án fyrirstöðu hafði keypt sér vinsælan ofbeldisleik í einni af tölvubúðum borgarinnar. Hún var slegin yfir því að barnið skyldi komast yfir slíkt efni. Enn verra þótti henni að uppgötva að það þýðir ekkert að kvarta eða kæra söluaðila. Hér á landi gilda engar reglur um sölu tölvuleikja með ofbeldisefni. Þær takmarkanir sem eru við lýði byggjast eingöngu á framtaki og siðferði seljenda vörunnar. Fram kemur í umfjöllun Fréttablaðsins í gær að Þórhildur Líndal, umboðsmaður barna, hefur margsinnis sent beiðni til menntamálaráðuneytisins með ósk um að reglur verði settar um sölu tölvuleikja til barna og unglinga. Eftir henni er haft að svo virðist sem pólitískan vilja skorti. Getur það verið satt? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra er sjálf móðir ungra barna og ætti því að eiga auðvelt með að setja sig í spor áhyggjufullra foreldra. Hér er mál sem hún á að hafa for- ystu um að fái viðunandi athygli og afgreiðslu. Afstaða Alþingis til þessa máls er annars umhugsunarverð. Þingmenn úr öllum flokkum hafa fimm sinnum á undanförnum árum flutt tillögu til þingsályktunar um aðgerðir til að draga úr ofbeldisdýrkun og framboði ofbeldisefnis, meðal annars í formi tölvuleikja. Tillagan hefur aldrei fengið afgreiðslu. Enginn neit- ar því að erfitt er að semja lög og reglur um þetta í nútímaþjóð- félagi. En úr því að stórþjóðir eins og Bandaríkjamenn hafa fundið leiðir til að reyna að takmarka þann skaða sem börn og unglingar verða fyrir af völdum ofbeldisfullra tölvuleikja er okkur Íslendingum engin vorkunn að gera slíkt hið sama. Á endanum er það, eins og alltaf í dæmum af þessu tagi, af- staða og hugarfar okkar sjálfra sem máli skiptir. Uppeldi barna og unglinga er á ábyrgð foreldra og annarra forráðamanna. Það efni sem verslanir afhenda börnum og unglingum yfir búðar- borð er á ábyrgð starfsmanna og eigenda viðkomandi verslana. Ef þessir aðilar gera skyldu sína er óþarfi að setja opinberan regluramma um tölvuleiki. En meðan svo er ekki þurfa stjórn- völd að taka á málum. Boð og bönn eru óhjákvæmileg þegar börn og unglingar eiga í hlut. Enn mikilvægara er þó að færa umræður um þessi efni inn í skóla landsins og á annan þann vettvang þar sem hægt er að koma boðskap til unga fólksins til skila með áhrifaríkum hætti. ■ 28. nóvember 2004 SUNNUDAGUR SJÓNARMIÐ GUÐMUNDUR MAGNÚSSON Stjórnvöld og foreldrar þurfa að bregðast við ofbeld- isfullum tölvuleikjum. Börn og ofbeldisleikir FRÁ DEGI TIL DAGS Frí í 40 daga Samkvæmt starfsáætlun Alþingis verð- ur gert hlé á þingstörfum 10. desem- ber og kemur þingið ekki saman aftur fyrr en 20. janúar 2005. Þetta þýðir að þingmenn fá fjörutíu daga jólafrí. Ætli óbreyttum launþegum þessa lands þætti það ekki alveg viðunandi? Ekki síst þegar tekið er tillit til rausnarlegs orlofs þingmanna yfir sumartímann. Kannski verkalýðsfélögin fari að taka vinnutíma þessara forystumanna þjóð- arinnar til fyrirmyndar í kjarasamning- um? Ætlast mun til þess að þingmenn gefi sér tíma til að heyra hljóðið í kjós- endum í þinghléinu en í reynd fer lítið fyrir slíku enda jólatíminn ekki beint heppilegur fyrir stjórnmálafundi. Um- hugsunarefni er hvort ekki sé kominn tími til að Alþingi endurskoði starfstíma sinn. Núverandi fyrirkomulag á rætur sínar í allt annarri þjóðfélagsgerð, þeg- ar þingmennska var ekki fullt starf og meirihluti þingmanna bændur sem þurftu tíma til að skreppa frá og sinna skepnunum. Doði yfir þinginu Annars er ekki allt fengið með því að þingið sitji. Þingmenn þurfa að hafa eitthvað fyrir stafni. Þeir þurfa að hafa skoðanir, hugsjónir og áform. Leitun mun vera á jafn at- hafnalitlu þingi og því sem nú situr. Aðeins tvenn lög hafa verið samþykkt frá því að Alþingi kom saman í haust. Fá stjórnarfrumvörp liggja fyrir til af- greiðslu og flest þeirra eru frekar létt- væg. Stjórnarandstaðan sem í þingbyrj- un sórst í fóstbræðralag hefur ekki not- ið sín. Margir velta því fyrir sér hverju þetta sæti. Er allt í himnalagi í þjóðfé- laginu og fátt eða ekkert til að ræða um? Getur verið að breytingin á ríkis- stjórnarforystunni í haust spili eitthvað inn í þetta? Að stjórnarmeirihlutinn sé leiður og áhugalaus? En þó svo væri getur það ekki afsakað stjórnarand- stöðuna sem ekki hefur ekki sýnt tilþrif það sem af er þinginu. gm@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: Frétt ehf. RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRAR: Sigurjón M. Egilsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FULLTRÚI RITSTJÓRA: Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir AUGLÝSINGASTJÓRI: Þórmundur Bergsson RITSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG DREIFING: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is SETNING OG UMBROT: Frétt ehf. PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 Má bjóða ykkur samræmt líf? TÍÐARANDINN SIGMUNDUR ERNIR RÚNARSSON FR ÉT TA B LA Ð IÐ /T EI KN IN G : H EL G I S IG U RÐ SS O N
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.