Fréttablaðið - 28.11.2004, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 28.11.2004, Blaðsíða 14
14 28. nóvember 2004 SUNNUDAGUR vidskipti@frettabladid.is nánar á visir.is „Það er rétt að staldra við það að lánakjörin séu skilyrt því að viðkomandi verði með megnið af sínum viðskiptum við stofnunina á lánstímanum. Það er um margt mjög óheppileg þróun,“ segir Gylfi Magnússon. Það hefur ekki farið fram hjá neinum að á síðustu mánuðum hefur margt breyst í fjármögnun íbúðakaupa hjá fólki. Upphaf breytinganna má rekja til þess að 1. júlí sl. hætti Íbúðalánasjóður útgáfu húsbréfa en gerðist í stað- inn lánastofnun. Þannig opnuðust dyr samkeppni á húsnæðislána- markaðinum upp á gátt. Bankarnir fljótir til Bankarnir voru ekki lengi að stökkva inn um gættina. Þann 23. ágúst boðaði KB banki til blaða- mannafundar þar sem tilkynnt var að bankinn byði íbúðalán á 4,4 prósent vöxtum og hægt væri að fá lánað fyrir áttatíu prósent af verðmæti íbúðar. Við þau tíðindi var sem skrúfað væri frá flóðgátt. Allir bankar og sparisjóðir svör- uðu nánast samdægurs með sam- bærilegum lánum. Nú hafa vextir bankanna lækkað niður í 4,15 pró- sent og víðast hvar er hægt að fá lán fyrir andvirði allrar eignar- innar, en Íslandsbanki var fyrstur til að bjóða 100 prósenta lánin þann 5. nóvember. Þessi hraða þróun í átt til fjölg- unar valmöguleika og harðari samkeppni hefur komið á óvart. Talsmenn Íbúðalánasjóðs benda á að hin harða samkeppni um lánsfé landsmanna sé fyrst og fremst komin til vegna breytinga sem sjóðurinn gerði 1. júlí. Talsmenn bankanna hafa hins vegar gagn- rýnt Íbúðalánasjóð fyrir að taka þátt í samkeppni og þvælast fyrir bönkunum þar sem þeir slást um að ná til sín sem flestum við- skiptavinum. Nýjasta útspil bank- anna í þeim efnum er kæra til EFTA-dómstólsins þar sem farið er fram á að Íbúðalánasjóði verði meinað að veita almenn 90 prós- enta lán eins og fyrirtætlanir sjóðsins og ríkisstjórnarinnar standa til. Margir íhuga skuldbreytingu Fjölmargir einstaklingar hafa nú þegar breytt skuldasamsetningu hjá sér og enn fleiri hafa slíkt í hyggju. Í nýlegri könnun á vegum Samtaka banka og verðbréfa- fyrirtækja kom í ljós að rúmlega fimmtungur íhugar slíkar breyt- ingar. Miðað við það hversu hratt vextir og skilmálar breytast má gera ráð fyrir að margir séu hugsi yfir því hvenær réttur tími sé til slíkra aðgerða. Eitt af því sem heldur aftur af fólki er kostnaður við skuldbreytingar sem felst bæði í þjónustugjöldum til bank- anna og stimpilgjöldum sem renna til ríkissjóðs. Þessi kostnað- ur getur eytt mögulegum ávinn- ingi af skuldbreytingu, auk þess sem fólk óttast að festa sig í ákveðnum kjörum til langs tíma og missa því af tækifæri til enn frekari hagræðingar í framtíð- inni. Ólíkir skilmálar Bankarnir gera allir kröfu um að viðskiptavinir sem fá íbúðalán á 4,15 prósenta vöxtum séu með stóran hluta viðskipta sinna hjá bankanum. Íslandsbanki setur reyndar ekki fram slíka kröfu heldur geta þeir sem eru í svo- nefndri vildarþjónustu hjá bank- anum eða eru með tryggingar sín- ar hjá Sjóvá Almennum (dótturfé- lagi Íslandsbanka) tekið húsnæð- islán bankans. Íslandsbanki býður þar að auki upp á nokkuð meiri sveigjanleika en aðrir þar sem hægt er að fá lán til fimm eða fjörtíu ára en í hinum bönkunum þarf að velja um lán til 25 eða 40 ára. Þá geta viðskiptavinir Ís- landsbanka greitt upp skuld sína á fimm ára fresti án kostnaðar, og gegn 2 prósent gjaldi ella, en hjá hinum bönkunum fer upp- greiðslugjald eftir gjaldskrá á hverjum tíma. Á móti kemur að vextir Íslandsbanka eru ekki fast- ir heldur koma til endurskoðunar á fimm ár fresti. Landsbankinn býður upp á fimm ólíkar leiðir og gefur lán- DAGSKRÁ 12.30 Skráning. 13.00-13.15 Setning: fiór›ur Fri›jónsson, forstjóri Kauphallar Íslands. 13.15-14.00 Fri›rik Már Baldursson, prófessor vi› Vi›skipta- og hagfræ›ideild Háskóla Íslands. „Sjávarútvegur í Kauphöll Íslands: Saga og greining.“ 14.00-14.15 Árni Mathiesen, sjávarútvegsrá›herra. „Fjárfestingar í íslenskum sjávarútvegi: Innlendar og erlendar.“ 14.15-14.35 Kaffihlé. 14.35-14.50 Kristján fi. Daví›sson, a›sto›arforstjóri HB Granda hf. „Byr hl‡tur a› rá›a.“ 14.50-15.05 Yngvi Örn Kristinsson, framkvæmdastjóri ver›bréfasvi›s Landsbanka Íslands. „Fækkun sjávarútvegsfyrirtækja í Kauphöll – höfnun e›a e›lileg grisjun?“ 15.05-15.15 Fyrirspurnir og svör. 15.15-16.00 Pallbor›sumræ›ur. fiátttakendur eru: Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Síldarvinnslunnar, fiór›ur Pálsson, forstö›uma›ur Greiningardeildar KB banka, Gylfi Magnússon, dósent vi› Vi›skipta- og hagfræ›ideild Háskóla Íslands og Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morgunbla›sins. 16.00 Rá›stefnuslit. Fundarstjóri: Edda Rós Karlsdóttir, forstö›uma›ur Greiningardeildar Landsbanka Íslands. Rá›stefnan er öllum opin en tilkynna flarf flátttöku á netfangi› skraning@icex.is e›a í síma 511-1230 fyrir hádegi mánudaginn 29. nóvember. Rá›stefnugjald er kr. 4.900.- Rá›stefna Kauphallar Íslands um sjávarútveg: Er hlutabréfamarka›urinn vann‡tt au›lind? Haldin á Nordica hotel, flri›judaginn 30. nóvember, kl. 13.00-16.00 Með auknum valmöguleikum í lánamálum eykst svigrúm ein- staklinga til þess að skuldsetja sig og öðlast aðgang að auknu fjár- magni sem þeir geta varið í neyslu. Þetta hefur þau áhrif að erfiðara er fyrir Seðlabankann að hafa stjórn á því hversu mikið fjármagn er í umferð. Seðlabankinn notar vaxtastig til þess að stýra því hversu mikið af fjármagni er í umferð. Þegar Seðlabankinn telur hættu á þenslu og verðbólgu grípur hann til þess ráðs að hækka vexti í þeirri von að fyrirtæki og einstaklingar spari fremur en eyði. Þar sem bankar, og jafnvel einstaklingar, hafa nú aðgang að lánsfé frá út- löndum hefur dregið úr áhrifa- mætti Seðlabankans. Björn Rúnar Guðmundsson segir að til skamms tíma kunni innkoma bankanna að skapa vanda fyrir Seðlabankann en hins vegar skipti einnig máli að inn- koma bankanna auki stöðugleika í fjármálalífinu og veiti bönkunum tryggari starfsgrundvöll. - þk Byltingin á íslenskum lánamarkaði Á síðustu mánuðum hefur fjármálaumhverfið á Íslandi tekið stakkaskiptum. Einstaklingum standa nú til boða fleiri möguleikar í lánamálum og lægri vextir. Mikilvægt er að fólk fari vandlega yfir stöðu mála og valkosti áður en það tekur ákvörðun því það getur verið dýrt að skipta oft um skoðun þegar lánamál eru annars vegar. BYLTINGIN BOÐUÐ Skriða nýrra valkosta í lánamálum einstaklinga fór af stað þegar KB banki tilkynnti að hann byði viðskiptavinum sínum á höfuðborgarsvæðinu íbúðalán á 4,4 prósenta vöxtum. Síðan hefur samkeppnin harðnað, vextir lækkað og valkostum fjölgað. Hreiðar Már Sigurðarson forstjóri boðaði innkomu KB banka þann 23. ágúst. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L Áhrif á hagstjórn FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.