Fréttablaðið - 28.11.2004, Síða 15
15SUNNUDAGUR 28. nóvember 2004
Peningabréf eru fjárfestingarsjóður í skilningi laga nr. 30/2003, um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Athygli fjárfesta
er vakin á því að fjárfestingarsjóðir hafa rýmri fjárfestingarheimildir skv. lögunum heldur en verðbréfasjóðir. Um frekari
upplýsingar um sjóðinn, m.a. hvað varðar muninn á verðbréfasjóðum og fjárfestingarsjóðum og fjárfestingarheimildir
sjóðsins, vísast til útboðslýsingar og útdráttar úr útboðslýsingu sem nálgast má í afgreiðslum Landsbanka Íslands hf. auk
upplýsinga á heimasíðu bankans www.landsbanki.is
Kynntu þér ótvíræða kosti Peningabréfa
hjá ráðgjöfum í útibúum Landsbankans
eða í síma 410 4000.
Í
SL
EN
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
63
82
11
/2
00
4
Í
SL
EN
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
63
82
11
/2
00
4
Banki allra landsmanna
7,1%* – Peningabréf Landsbankans
Góð og örugg ávöxtun á lausafé fyrir einstaklinga, fyrirtæki, sveitarfélög og aðra
fjárfesta. Kynntu þér ótvíræða kosti Peningabréfa hjá ráðgjöfum Landsbankans.
* Nafnávöxtun frá 01.10.2004–31.10.2004 á ársgrundvelli.
410 4000 | landsbanki.is
Lexus | Nýbýlavegi 6 | sími 570 5400 | www.lexus.is
Þinn tími er kominn. Glæsilegt tilboð á
rekstrarleigu gerir þér kleift að njóta þess
að aka Lexus IS200, bíl sem sameinar
fegurð og gæði í fullkominni hönnun,
kosti sportbíls og aðalsmerki lúxusbíla.
IS200 sjálfskiptur á 16" felgum
Rekstrarleiga aðeins 49.200 kr. á mánuði
IS200 Limited, sjálfskiptur á 17" felgum
Rekstrarleiga aðeins 53.100 kr. á mánuði
Lexus IS200 er engum öðrum líkur. Þú átt
skilið að upplifa hið besta sem völ er á.
Komdu og reynsluaktu Lexus IS200
BÚÐU ÞIG UNDIR ATHYGLINA
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
26
48
0
1
1/
20
04
Meðal þeirra nýjunga sem Ís-
lendingar eiga nú kost á er að
taka hluta af lánum sínum í er-
lendri mynt. Kostirnir við slíka
lántöku eru þeir að vaxtastig er
nú um stundir mjög lágt í heim-
inum og því er hægt að spara
mikið í vaxtagreiðslum. Hins
vegar fylgir erlendum lánum
áhætta því snarpar breytingar á
gengi krónunnar geta valdið því
að greiðslubyrði af erlendum
lánum getur skyndilega rokið
upp.
Gylfi Magnússon segir að er-
lend lán kunni að vera álitlegur
kostur til að fjármagna til dæm-
is bílakaup og einnig ef nauð-
synlegt er að fjármagna neyslu
til skamms tíma með lánum.
„Skammtímalán í íslenskum
krónum eru óheyrilega dýr,“
segir Gylfi. Hann telur hins
vegar að þegar kemur að stærri
fjárfestingum þar sem lánin eru
til mjög langs tíma sé það vafa-
samt hvort slík lán henta fólki
sem hefur tekjur í íslenskum
krónum og á ekki eignir erlend-
is.
Björn Rúnar Guðmundsson,
hjá greiningardeild Landsbank-
ans, tekur í sama streng. „Það er
augljóst mál að heimilin eiga
ekki að taka að fullu þessi lán.
Þau eiga að miða sín lán við
hvernig þeirra tekjur eru sam-
settar. Sérstaklega gildir þetta í
langtímalánum eins og hús-
næðislánum. Þar skiptir máli að
það sé gott samræmi milli tekna
og skulda,“ segir hann.
Snorri Jakobsson, hjá grein-
ingardeild KB banka, segir hins
vegar að til langs tíma jafnist
sveiflur á genginu að stærstum
hluta út og því geti verið heppi-
legra að taka gjaldeyrislán til
langs tíma heldur en til skamms
tíma. Hann bendir á að stór hluti
af áhrifum gengislækkunar
komi hvort sem er inn í hagkerf-
ið í formi verðbólgu sem hækki
vexti á verðtryggðum lánum í
íslenskum krónum.
Þegar tekin er ákvörðun um
hvort taka skuli lán í erlendri
mynt skiptir máli hvernig stað-
an á gjaldeyrismarkaði er og
hverjar horfur eru til næstu
missera. Nú eru erlendir gjald-
miðlar óvenjulega ódýrir, auk
þess sem vaxtastig í heiminum
er nálægt sögulegu lágmarki.
Þegar gengið er veikara er hægt
að taka lægra lán í erlendu
myntinni til að borga upp lán í
íslenskri mynt.
- þk
þegum kost á því að velja um fasta
vexti eða að þeir séu endurskoðað-
ir á fmm ára fresti. Þar er einnig
hægt að fá lán í erlendri mynt á
lægri vöxtum – allt niður í 2,67 pró-
sent. Landsbankinn hefur enn
fremur þann háttinn á að upp-
greiðslugjald er breytilegt eftir því
hversu mikið er eftir af lánstíma
og lækkar um 0,2 prósentustig á ári
eftir því sem nær dregur samn-
ingslokum. Þannig er uppgreiðslu-
gjald á 40 ára láni 7,8 prósent á ári
eftir að það er tekið en aðeins 0,2
prósent árið áður en lánasamning-
urinn rennur út.
Fleiri möguleikar gleðiefni
Þessar miklu breytingar hafa áhrif
bæði á hagkerfið í heild sinni en
fyrst og fremst skipta þær máli
fyrir einstaklingana sjálfa sem
skyndilega standa frammi fyrir
mýgrút möguleika í fjármálaþjón-
ustu. Fyrir örfáum misserum var
það gefið mál að sá sem ætlaði að
kaupa fasteign fór í Íbúðalánasjóð
og þeir sem þurftu skammtíma-
fjárfestingu tóku víxil eða hækk-
uðu yfirdrátt. Nú geta einstakling-
ar valið úr fjölda kosta sem fela í
sér mismikinn ávinning og mis-
mikla áhættu.
Ásta Helgadóttir, forstöðumað-
ur Ráðgjafastofu um fjármál heim-
ilanna, segir að mikilvægt sé að
fólk leiti sér ráðgjafar í bönkum.
„Þar fæst mjög góð þjónusta og
ráðgjöf,“ segir hún.
Gylfi Magnússon, dósent í hag-
fræði, segir að það sé jákvætt að
fleiri möguleikar standi einstak-
lingum til boða hvað varðar fjár-
mögnun bæði til skamms tíma og
langs tíma. „Það er allajafna gott ef
fólk hefur fleiri valkosti þannig að
þetta er mjög jákvæð þróun. Þó eru
einhverjar viðvörunarbjöllur farn-
ar að klingja, meðal annars mikið
innstreymi á fjármagni og skulda-
söfnun í útlöndum. Það gæti orðið
erfitt ef eitthvað kemur fyrir
eignamarkaði á Íslandi eða gegnið
fellur. Svo geta einstaklingar auð-
vitað lent í vandræðum,“ segir
Gylfi.
Hugsanlegar hættur
Gylfi telur hins vegar að það kunni
að orka tvímælis að flest húsnæðis-
lán bankanna gera ráð fyrir því að
einungis fastir viðskiptavinir hafi
aðgang að þeim. „Það er rétt að
staldra við það að lánakjörin séu
skilyrt því að viðkomandi verði
með megnið af sínum viðskiptum
við stofnunina á lánstímanum. Það
er um margt mjög óheppileg þró-
un. Það gæti gert samkeppnina
mjög stirða þegar fram líða stund-
ir. Þegar megnið af viðskiptavinun-
um er orðið fast í einni stofnun þá
verður samkeppnin skrýtin þar
sem baráttan mun fyrst og fremst
snúast um það að ná nýjum við-
skiptavinum. Það er ekki sérstak-
lega heillandi framtíðarsýn,“ segir
hann. thkjart@frettabladid.is
Gengislán hafa kosti og galla
GYLFI MAGNÚSSON BJÖRN RÚNAR
GUÐMUNDSSON
SNORRI JAKOBSSON