Fréttablaðið - 28.11.2004, Qupperneq 16
Stefán Gunnlaugsson og synir
hans Finnur Torfi, Gunnlaugur og
Guðmundur Árni hittust í Alþing-
ishúsinu við Austurvöll í fyrra-
dag og áttu þar saman góða
stund. Allir hafa þeir feðgarnir
verið kjörnir á þing og þarf að
fara nokkrar kynslóðir aftur í
tímann til að finna hliðstæðu.
Jón á Gautlöndum og synir
hans Kristján, Pétur og Stein-
grímur sátu allir á þingi á sinni
tíð.
Stefán Gunnlaugsson var á
þingi frá 1971 til 1974 fyrir Al-
þýðuflokkinn og fetuðu synirnir
þá slóð. Finnur Torfi og Gunnlaug-
ur sátu stutta þingið frá 1978-79 og
Gunnlaugur var aftur kjörinn til
kjörtímabilsins 1991-1995. 1993
tók Guðmundur Árni sæti á þingi
og situr þar enn. Finnur Torfi er
tónskáld og Gunnlaugur prestur í
Heydölum í Breiðdal.
Guðmundur Árni sýndi bræðr-
um sínum og föður ný og breytt
húsakynni þingsins en starfs-
aðstaða öll hefur batnað til muna
frá því sem var. Að hans sögn
hafði Stefán lengi langað að eign-
ast mynd af sér og sonunum í
þinginu og af því hefur sumsé
orðið. - bþs
16 28. nóvember 2004 SUNNUDAGUR
JOHN BUNYAN
Einn frægasti höfundur kristilegra rita
á ensku, John Bunyan, fæddist þennan dag 1628.
Hann sat í fangelsi fyrir predikanir en bók hans
um vegferð pílagrímsins hefur verið þýdd á
fleiri tungumál en önnur kristileg fræði ensk.
Feðgar á þingi hittast
ALÞINGI: FJÖLSKYLDUFUNDUR
Ef við eigum ekki rósemi hugans gera ytri
þægindi okkur ekki meira gagn en gylltur
inniskór á gigtveikan fót.
- Hann sá ekki fyrir ofgnótt nútímans.
timamot@frettabladid.is
ANDLÁT
Kristjana Guðlaugsdóttir frá Sand-
brekku, Fáskrúðsfirði, lést fimmtudaginn
25. nóvember.
Gunnar Guðmundsson framkvæmda-
stjóri lést fimmtudaginn 25. nóvember.
Helga Þórðardóttir, Aðallandi 1, lést
fimmtudaginn 25. nóvember.
Ragnheiður Finnsdóttir, fyrrv. kennari
og skólastjóri, er látin.
Eiríkur Guðmundsson, Ytra-Vatni,
Skagafirði, lést þriðjudaginn 9. nóvem-
ber. Jarðarförin hefur farið fram.
Sigríður E. Halldórsdóttir frá Hnífsdal,
Þrastarási 6, Hafnarfirði, lést fimmtudag-
inn 25. nóvember.
Haraldur Gestsson, Mánavegi 9, Sel-
fossi, lést fimmtudaginn 25. nóvember.
FEÐGARNIR SAMAN Stefán, Finnur Torfi, Gunnlaugur og Guðmundur Árni.
Þennan dag árið 1520 náði portú-
galski landkönnuðurinn Ferdinand
Magellan til Kyrrahafsins með þrjú
skip. Rúmu ári áður hafði hann lagt
af stað frá Spáni í því skyni að finna
siglingarleið til hinnar kryddauðugu
Indónesíu. Leiðangurinn gekk ekki
ævinlega vel. Eftir misheppnaða leit
að siglingarleið upp Plata-ána, settist
hann um kyrrt um veturinn þar sem
nú heitir St. Julian. Á páskadags-
morgun gerði hluti manna hans upp-
reisn en honum tókst að bæla hana
niður. Einn uppreisnarskipstjóranna
var hengdur og annar skilinn eftir í
St. Julian, þegar Magellan hélt áfram för í ágúst.
Honum heppnaðist að finna skipunum leið milli
syðsta odda meginlandsins og Tierra del Fuego
þar sem nú heitir Magellanssund.
Það tók skipin 38 daga að sigla
þessa ótryggu leið til þessa nýja
úthafs, sem þeir nefndu Kyrrahaf,
vegna kyrrviðris sem þeir hrepptu
á siglingu sinni yfir hafið sem tók
99 daga. Á endanum voru þeir
orðnir vistalausir og átu skinnið
úr klæðum sínum til þess að
halda lífi. Sjötta mars 1521 náðu
þeir landi á eynni Guam og tíu
dögum seinna vörpuðu þeir an-
kerum við Filipseyjar. Það átti
ekki fyrir Magellan að liggja að
sjá kryddeyjuna Indónesíu, sem
var rúmlega sex hundruð kílómetra í burtu, því
hann féll fyrir eitraðri ör innfædds stríðsmanns á
eyjunni Mactan. Hann dó 27. apríl 1521.
28. NÓVEMBER 1520
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1582 William Shakespeare og
Anne Hathaway kaupa sér
leyfisbréf til giftingar.
1700 Nýi stíll, tímatalið sem við
notum enn, gengur í gildi á
Íslandi.
1895 Fyrsta skipulega kappakst-
urskeppnin fer fram í Chi-
cago í Bandaríkjunum.
1905 Stjórnmálaflokkurinn Sinn
Fein stofnaður á Írlandi.
Nafnið er geliska og þýðir
„Við sjálf“.
1920 Douglas Fairbanks slær í
gegn í myndinni „Gríma
Zorrós“. Hann giftist Mary
Pickford ári seinna.
1942 Ford-bílaverksmiðjurnar
hefja fjöldaframleiðslu á
sprengjuflugvélinni B-24
„Liberator“.
1954 Enrico Fermi, eðlisfræðing-
urinn ítalski, sem fyrstum
tókst að kljúfa atómið, deyr
í Chicago.
Magellan nær til Kyrrahafsins
Rúnar
Geirmundsson
Sigur›ur
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Síðastliðin 14 ár höfum við feðgar aðstoðað
við undirbúning útfara.
Símar 567 9110, 893 8638 og 897 3020
Þegar andlát ber að
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Gunnar Guðmundsson
framkvæmdastjóri,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli fimmtudaginn 25. nóvember.
Eiríkur Gunnarsson, Valgerður Stefánsdóttir, Trausti Gunnarsson,
Berglind Sveinsdóttir, Hildur Gunnarsdóttir, Guðjón Pétur Ólafsson,
Ragnheiður Gunnarsdóttir, Bjarni Snæbjörnsson, Unnur Gunnarsdóttir,
Auður Gunnarsdóttir, Hjörtur Jakobsson, barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og vinarhug
vegna andláts og útfarar
Þóru Guðrúnar Valtýsdóttur
er lést þann 9. nóvember. Sérstakar þakkir til Kjartans Örvars
læknis og starfsfólks St. Jósefsspítala í Hafnarfirði fyrir frábæra
umönnun í veikindum Þóru og enn fremur til starfsfólks líknar-
deildar LSH í Kópavogi.
Valgerður Jónsdóttir, Reynir Bergmann Birgisson, Víðir Bergmann
Birgisson, Hlynur Bergmann Birgisson og aðrir aðstandendur.
Í lok nóvember 1948 kom fyrsti
Landrover-jeppinn til Íslands en
Sigfúsi Bjarnasyni í Heklu hafði
tekist með harðfylgi örfáum vikum
fyrr að fá umboðið og hafði líka afl-
að sér innflutningsleyfis fyrir
fyrsta bílnum.
Sýningarbíllinn vakti mikla at-
hygli og pantanir streymdu inn. En
þetta voru dagar innflutningshafta
og gjaldeyrisleyfa. Í hinni ágætu
bók Sigurðar Hreiðars er frá því
greint að allt árið 1949 hafi einung-
is 163 bílar verið fluttir til landsins.
Næstum þrjú ár liðu áður en
Heklu tókst að afla leyfa fyrir
fyrstu sendingunni. Árið 1951
komu aðeins 128 bílar til Íslands og
af þeim voru rúmlega 90 Land-
rover. Næstu tíu árin tókst að kría
út örfá leyfi fyrir innflutningi á
Landrover en ekki var það allt tek-
ið út með sældinni. Þannig greinir
frá því í hinni ágætu bók Sigurðar
Hreiðars „Saga bílsins á Íslandi
1904-2004“ að ekki hafi fengist
leyfi til þess að flytja inn jeppa
með húsi. Sigurður vitnar í Morg-
unblaðið: Landroverinn kemur
„með blæjuhúsi og kostar þá 27.500
krónur ... Verksmiðjan framleiðir
sjerstök hús úr alúminíumblöndu,
en Fjárhagsráð sá sjer ekki fært að
veita leyfi fyrir þessum húsum. –
Hins vegar er hægt að flytja þau
inn fyrir bátagjaldeyri og kosta þá
um 3.500 krónur.“ Og í Vikunni
kemur fram: „Hins vegar leyfði
Fjárhagsráð að miðstöðin yrði
keypt með öllum bílunum ...“
Þessar frásagnir, sem líka eru
raktar í ágætri bók Vilhelms G.
Kristinssonar um Sigfús í Heklu,
koma nútímamönnum undarlega
fyrir sjónir. Þegar innflutningshöft
á bílum voru afnumin 1961 fjölgaði
Landrover mikið. Um 1970 kom
lengri útgáfa af honum og 1971
kom svo lúxusútgáfa, Range Rover.
Ekki voru allir á eitt sáttir um
ágæti Landroversins og hann átti í
harðri samkeppni við Rússajepp-
ann, Austin Gipsy (sem kom
seinna) að ekki sé talað um fyrir-
myndina, Willys. Land Rover hefur
á seinni dögum gengið í endur-
nýjun lífdaga, þótt hann sé nú
skyldari yngri bróður sínum,
Range Rover. Fyrir stuttu var
meira að segja stofnað sérstakt
félag Landrover-aðdáenda, sem
efnir til hópferða og funda með fé-
lagsmönnum. ■
AFMÆLI
Elín G. Ólafsdóttir,
fyrrv. kennari, er 71 árs
í dag.
Sieglinde Kahmann óperusöngkona er
73 ára í dag.
Margrét Bóasdóttir er 52 ára í dag.
Tryggvi Agnarsson
lögfræðingur er
fimmtugur í dag.
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli, andlát
og jarðarfarir í smáletursdálkinn hér að ofan má
senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5000. FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
Landrover kemur til landsins
SIGFÚS BJARNASON Í HEKLU við fyrsta Landroverinn í nóvember 1948