Fréttablaðið - 28.11.2004, Side 19
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 4
Flokkar
Bílar & farartæki
Keypt & selt
Þjónusta
Heilsa
Skólar & námskeið
Heimilið
Tómstundir & ferðir
Húsnæði
Atvinna
Tilkynningar
Frjáls íbúðalán
vextir
100
%
veð
set
nin
gar
hlu
tfa
ll
Engin skilyrði um önnur bankaviðskipti
Lánin eru verðtryggð og bera fasta 4,15% vexti sem eru endurskoðaðir
á fimm ára fresti. Hægt er að greiða upp án uppgreiðslugjalds þegar vextir
koma til endurskoðunar. Engin hámarksupphæð og er lánstími allt að 40 árum.
Krafa er gerð um fyrsta veðrétt íbúðarinnar. Lánshlutfall er allt að 80%
við endurfjármögnun fasteigna (engin hámarksupphæð) og 100% við kaup
fasteignar (hámarksupphæð 25 milljónir króna).
Hægt er að nota lánin til íbúðarkaupa, til að stokka upp fjármálin
eða í eitthvað allt annað.
Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar. Þú getur litið inn í Ármúla 13a,
hringt í síma 540 5000 eða sent tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is www.frjalsi. is
H
i
m
i
n
n
o
g
h
a
f
Hólmgeir Hólmgeirsson
rekstrarfræðingur er lánafulltrúi
á viðskiptasviði
Ragnheiður Þengilsdóttir
viðskiptafræðingur er lánafulltrúi á viðskiptasviði.
Lánstími 5 ár 25 ár 40 ár
4,15% vextir 18.485 5.361 4.273
*Lán með jafngreiðsluaðferð án verðbóta
Dæmi um mánaðarlega greiðslubyrði af 1.000.000 kr.*
Góðan dag!
Í dag er sunnudagurinn 28. nóv.,
333. dagur ársins 2004.
Reykjavík 10.38 13.16 15.53
Akureyri 10.44 13.01 15.17
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Markaðsstjóri hjá stóru fyrirtæki
heldur í marga þræði.
„Ég get svo sem ekki svarað fyrir kollega
mína almennt, en mitt starf er fjölbreytt
og skemmtilegt. Sem betur fer fylgir því
mikið álag og áreiti, því ég þrífst best í
slíku umhverfi,“ segir Stefán Hrafn Haga-
lín, markaðsstjóri Skýrr hf., og kveðst
vera ansi háður símanum. „Þetta er eigin-
lega spurning um að fá síma græddan inn
í eyrað,“ segir hann hlæjandi.
Starf Stefáns Hrafns er afar tilbreyt-
ingarríkt. „Við hjá markaðssviði Skýrr
berum ábyrgð á ásýnd fyrirtækisins út á
við gegnum auglýsingar, greinaskrif,
kynningar og ráðstefnur. Við sinnum líka
samskiptum við viðskiptavini, fjölmiðla,
fjárfesta og starfsfólk og svo eru á okkar
könnu ýmiss konar kannanir meðal við-
skiptavina, þróun nýrra sölu- og viðskipta-
tækifæra og þátttaka í áætlanagerð,
greiningarvinnu og nýsköpun. Það eru
margir þræðir í þessum vef.“
Stefán kveðst þurfa að forgangsraða
grimmt til að kaffærast ekki í áreitisflóð-
inu og vegna reynslu sinnar sem blaða-
maður er hann líka penni fyrirtækisins.
„Sjaldnast finn ég næði til skrifta fyrr en
heima á kvöldin og um helgar,“ segir hann
og bætir við. „En maður sækir innblástur
og kraft til fjölskyldunnar, því ég er að
verða svo væminn með aldrinum. Næst á
dagskrá er að eignast köflótta flókainni-
skó og sjö manna skutbíl. Allt kúl er á bak
og braut. Synd og skömm!“ ■
Þyrfti að fá síma
græddan í eyrað
tilbod@frettabladid.is
Stefán Hrafn nýtir kraft, skipulagshæfileika og hugmyndaflug í sínu
starfi og kveðst sækja andlegan innblástur í fjölskyldulífið.
Smáauglýsingar
á 995 kr.
visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TILBOÐ NEYTENDUR o.fl.
KRÍLIN
Pabbi!
Gettu hvað
ein vídeóspóla
er löng?
Feður í fæðingarorlofi
BLS. 3
][
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
» BETRI SJÓNVARPSDAGSKRÁ
Á SUNNUDÖGUM