Fréttablaðið - 28.11.2004, Side 20

Fréttablaðið - 28.11.2004, Side 20
Skartgripir Í vinnuviðtölum er mikilvægt að koma vel fyrir og þá skiptir klæðnaður ansi miklu máli. Ekki vera með mikið af skartgripum. Helst bara einn til tvo hringa og alls ekki stór og klunnaleg armbönd, eyrnalokka eða hálsmen.[ Undirbúningur fyrir starfslok Sigurður Á. Friðþjófsson, upplýsinga- og fræðslufulltrúi BSRB. BSRB býður félagsmönnum sínum upp á starfslokanám- skeið þar sem tekið er á öll- um þáttum starfsloka. „Námskeiðinu er ætlað að undir- búa fólk vel fyrir starfslok og fara vel yfir öll þau atriði sem tekist er á við á þeim tímamótum,“ segir Sigurður Á. Friðþjófsson, upplýs- inga- og fræðslufulltrúi BSRB. Félagsmönnum BSRB og mökum þeirra býðst að sækja þessi nám- skeið sér að kostnaðarlausu og hafa þau verið gríðarlega vinsæl. Yfirleitt er eitt námskeið haldið á ári en í ár var það haldið tvisvar og lýkur seinna námskeiðinu eftir helgi. „Að mörgu leyti geta starfslok- in reynst fólki jákvæð breyting þar sem það getur sinnt áhuga- málum sínum betur en áður. Hins vegar getur þetta líka einangrað fólk mjög mikið ef það hefur ekki undirbúið sig vel,“ segir Sigurður. Hann segir námskeiðið vera byggt þannig upp að það sé haldið þrjá seinniparta og eru ólíkir fyrirlesarar á hverju kvöldi. Þar á meðal er fulltrúi frá Félagsþjón- ustunni í Reykjavík, formaður samtaka aldraða, öldrunarsál- fræðingur, fulltrúi frá Trygginga- þjónustunni og félagsráðgjafi sem fer yfir alla þjónustu við aldraða í Reykjavík, bæði félags- lega og efnahagslega. „Þátttakendur koma af öllu höfuðborgarsvæðinu og þó svo mest sé farið yfir þjónustu á Reykjavíkursvæðinu þá er hún með svipuðu móti í nágranna- bæjarfélögunum og er aðeins far- ið yfir þau mál líka,“ segir Sigurð- ur og bætir því við að BSRB hafi einnig skipulagt þessi námskeið úti á landi þó þau séu ekki haldin jafnoft og í höfuðborginni. ■ Verkalýðsfélag í Bretlandi gerði árlega könnun á dögunum um heilsu- og öryggisstaðal á vinnu- stöðum á Bretlandseyjum eins og kemur fram á fréttasíðu BBC. Meiri en helmingur starfsmanna þjáist af streitu sem er örlítið aukning frá síðasta ári. Enn frem- ur hefur tíðni bakverkja og endur- tekinna átaksmeiðsla aukist sam- kvæmt könnuninni. Færri en sex af hverjum tíu starfsmönnum eru ánægðir með þetta öryggismat en næstum því einn af hverjum tíu athugunar- mönnum á vegum verka- lýðsfélagsins sagði að vinnuveitandi gerði ekk- ert öryggismat. Önnur öryggismál sem báru á góma voru langir vinnutímar og ofbeldi á vinnustað, bæði andlegt og líkamlegt. Kannanir af þessum toga geta minnkað áhættu á vinnustað. ■ Meiri en helmingur stressaður Ný könnun á vinnustöðum í Bretlandi leiðir ýmislegt í ljós. Margir Bretar þjást af streitu sökum vinnuaðstæðna. ] Atvinnuleysi meðal félags- manna Verzlunarmannafélags Reykjavíkur minnkaði á milli áranna 2003 og 2004 og á sama tíma fjölgaði félagsmönnum talsvert. Þessi þróun er af- skaplega jákvæð og er merki um að þenslan sé farin að skila sér til höfuðborgarinnar. Atvinnuleysi meðal félags- manna minnkaði um sjö prós- ent milli októbermánaðar árið 2003 og sama tíma á þessu ári. Atvinnuleysi meðal félags- manna var enn fremur 27 pró- sentum minna í október síðast- liðnum en í mánuðinum þar á undan. Á sama tíma varð tólf prósenta aukning í greiðslu félagsgjalda sem þýðir um fimm til sex prósenta fjölgun félagsmanna. ■ BSRB hefur til fjölda ára haldið starfslokanámskeið fyrir félagsmenn sína og maka þeirra. Atvinnuleysi minnkar Félagsmönnum í VR hefur fjölgað Atvinnuleysi meðal félagsmanna Verzlunarmannafélags Reykjavíkur hefur minnk- að milli ára. Eiginmenn eru með mun hærri laun en karlar sem búa einir. Þetta kemur fram í könnun sem Hagfræðistofnun Háskóla Ís- lands gerði fyrir VR um þróun launa félagsmanna. Karlar sem voru kvæntir eða skráðir í sambúð höfðu að jafn- aði 25% hærri tekjur en aðrir karlar árið 2003. Þetta mun vera staðreynd um allan hinn vest- ræna heim, ekki bara á Íslandi. Skýrsluhöfundar finna á þessu ýmsar skýringar, ein skýringin er sú að vinnuveitendur beri meiri velvild til þeirra karla sem hafa fyrir fjölskyldu að sjá og önnur að sama manngerðin veljist í hálaunastörf og hjóna- band, og þar skipti ábyrgðartil- finning og sjálfsagi höfuðmáli. Athygli vekur að lítill munur er á launum giftra kvenna og ein- hleypra. ■ Eiginmenn með hærri laun Fleiri en ein skýring í gangi [ FYRIRLESTUR Á VEGUM VR ] Erfiðir viðskiptavinir Að takast á við erfiða viðskiptavini nefnist fyrirlestur sem haldinn er í í tengsl- um við herferð VRÝ sem miðar að því að auka virðingu fyrir verslunarfólki en sú herferð er nýhafin. Rétt viðbrögð við óánægðum viðskiptavinum geta skipt sköpum fyrir viðskiptavininn, en ekki þó síður verslunarmanninn en fyrirlestur- inn er sérstaklega ætlaður verslunarfólki. Á fyrirlestrinum verður farið yfir hvað það er sem skapar ójafnvægi í samskiptum verslunarmanna við svokallaða „erfiða viðskiptavini“ og hvernig á að leysa málið þannig að báðir aðilar geti unað við. Fyrirlesari er Eyþór Eðvarðsson, MA í vinnusálfræði og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun. Fyrirlesturinn verður haldin í húsnæði VR, Húsi verslunarinnar á 0. hæð, og er verslunarfólki að kostnaðarlausu.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.