Fréttablaðið - 28.11.2004, Side 44

Fréttablaðið - 28.11.2004, Side 44
24 28. nóvember 2004 SUNNUDAGUR Við hrósum... ...handknattleiksdeild Hauka fyrir að horfast í augu við staðreyndir málsins og selja heimaleik sinn í Evrópukeppni bikarhafa. Stuðningsmenn liðsins hafa ekki flykkst á Ásvelli þótt boðið hafi verið upp á hvert stórliðið á fætur öðru í meistaradeildinni og morgunljóst að króatíska liðið frá Zagreb myndi ekki trekkja að. sport@frettabladid.is HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 21 22 23 24 25 26 27 Laugardagur SEPTEMBER HANDBOLTI Íslandsmeistarar Hauka í handknattleik munu ekki leika á heimavelli gegn króatíska liðinu Medvescak Infosistem Zagreb í Evrópukeppni bikarhafa. Þess í stað hafa þeir selt Króötunum heimaleikinn og munu liðin því mætast ytra 4. og 5. desember næstkomandi. Ástæðan fyrir þessari ákvörð- un Hauka er sú að mætingin á leiki félagsins hefur alls ekki ver- ið nógu góð. „Við höfum orðið fyrir miklum vonbrigðum með mætinguna. Það er ekki hægt að neita því,“ sagði Þorgeir Haraldsson, formaður handknattleiksdeildar Hauka. „Þetta er eini alvöruhandboltinn sem boðið er upp á hér í vetur þar sem það eru engir landsleikir og því er alveg skelfilegt að fá engan í húsið.“ Þorgeir vildi að það kæmi skýrt fram að Haukar hefðu ekki farið þessa leið hefðu þeir átt seinni leikinn heima en fyrir lá að þrír leikmanna liðsins gætu ekki spilað útileikinn þar sem þeir eru að þreyta próf í háskólanum á sama tíma. Með því að spila báða leikina úti sömu helgi geta allir leikmenn spilað. Engu að síður liggja einnig fjárhagslegar ástæð- ur að baki þessari ákvörðun enda spara Haukarnir sér töluvert fé með því að selja Króötunum heimaleikinn. „Við komum alltaf til með að tapa peningum á þessari þátttöku en með því að selja leikinn minnk- um við tapið um eina milljón, sem er talsvert. Það hefur ýmislegt breyst og til að mynda hefur dóm- arakostnaður hækkað um helming frá því í fyrra. Að sama skapi hafa greiðslur fyrir þátttöku lækkað,“ sagði Þorgeir en það kostar ekk- ert lítið að flytja misgóða dómara til landsins. „Meðalkostnaður við að fá dómara hingað er í kringum 350-400 þúsund krónur, sem er svakalega mikið. Innkoman af þeim leikjum sem við höfum spil- að hingað til dugar ekki einu sinni fyrir dómarakostnaði í þeim leikj- um.“ Þessi ákvörðun var tekin í fullu samráði við þjálfara liðsins, Pál Ólafsson, sem hefur ekkert út á hana að setja. „Við erum búnir að gefast upp. Það mætir bara eng- inn á þessa leiki, eins sorgleg staðreynd og það er,“ sagði Páll frekar svekktur en það segir sig sjálft að það rýrir verulega mögu- leika Hauka á að komast áfram að spila báða leikina úti. henry@frettabladid.is TÓMUR KOFI Þessi mynd úr íþróttahúsi Hauka segir meira en mörg orð um ástandið þessa dagana. Það mætir enginn Íslandsmeistarar Hauka hafa selt heimaleik sinn í Evrópukeppninni að hluta til þar sem mæting á leiki liðsins hefur verið skelfileg. Innkoman á heimaleikjunum dugar ekki fyrir dómarakostnaði. Hin finnska Tanja Poutiainen barsigur úr býtum á heimsbikarmóti í stórsvigi kvenna sem fram fór í Colorado í Banda- ríkjunum aðfaranótt laugardags. Þetta var fyrsti sigur Poutiainen í stór- svigi á ferlinum en hún skaut hinni sænsku Anju Pärsson, sem varð heimsbikarmeistari í stórsvigi á síð- asta tímabili og Janicu Kostelic frá Króatíu ref fyrir rass. Poutiainen var 9/100 hlutum úr sekúndu á undan Pärsson en Kostelic má vel við una í þriðja sætinu því hún var að keppa á sínu öðru móti eftir að hafa misst af öllu síðasta keppnistímabili vegna hnémeiðsla. Jose Mourinho, hinn portúgalskiknattspyrnustjóri Chelsea, segir ekkert til í þeim sögusögnum að fé- lagið ætli að kaupa enska landsliðs- manninn Jermain Defoe frá Totten- ham fyrir fimmtán milljónir punda þegar leikmanna- markaðurinn opnar á nýjan leik í janúar. „Mér finnst Defoe vera frábær leik- maður en við þörfnumst ekki fram- herja núna. Ég er með Mateja Kezman, Eið Guðjohnsen og Didier Drogba. Það er nóg,“ sagði Mourin- ho við enska fjölmiðla í gær. Riccardo Agricola, læknir ítalskastórliðsins Juventus, var í gær dæmdur í 22ja mánaða fangelsi fyrir að hafa dreift hinu ólöglega blóðauk- andi lyfi EPO á meðal leikmanna liðsins fyrir nokkrum árum. Auk þess var Antonio Giraudo, einn af yfirmönnum Juventus sýknaður af sömu ákæru. Agricola hyggst áfrýja dómnum en hann mun ekki fá að starfa sem læknir þessa 22 mán- uði jafnvel þótt hann fái fangelsis- dómnum hnekkt. Indiana Pacers græðir um átta millj-ónir dollara á því að þrír leikmenn liðsins, Ron Artest, Jermaine O’Neal og Stephen Jackson, voru dæmdir í löng bönn fyrir slagsmál í leik Indi- ana og Detroit Pi- stons á dögunum. Leikmennirnir fá ekki laun á meðan þeir eru í banni og tapa um 10,8 millj- ónum dollara á því en NBA-deildin fær aðeins um 2,9 milljónir dollara af launum þeirra. Artest tapar fimm milljónum dollara, O’Neal rúmum fjórum milljónum og Jackson rúmri einnin og hálfri millj- ón. ÚR ÍÞRÓTTAHEIMINUM Íþróttabækurnar koma frá Hólum GULLKORN ÚR KNATT- SPYRNUHEIMINUM – Hér eru þau saman komin í eina bók skemmtilegustu mismælin og fleygustu setningarnar sem oltið hafa út úr þjálfurum, leikmönnum og knattspyrnulýsendum í gegnum tíðina. Hvert gullkornið rekur annað. ALLTAF Í BOLTANUM – bók sem fær þig til að grenja úr hlátri. BESTU KNATTSPYRNU- LIÐ EVRÓPU – Stórkostleg bók um bestu knattspyrnuliðin í Evrópu. Rakin er saga þeirra í máli og myndum, hver knattspyrnustjarnan af annarri skýst fram í sviðsljósið og útkoman er mögnuð. BESTU KNATTSPYRNULIÐ EVRÓPU er bók sem enginn knattspyrnuunnandi lætur framhjá sér fara. BÓKAÚTGÁFAN HÓLAR Róbert Gunnarsson er vinsæll þessa dagana: Orðaður við Flensburg HANDBOLTI Forráðamenn danska handknattleiksliðsins Aarhus GF segjast ætla að gera allt sem í sínu valdi stendur til ad halda í Róbert Gunnarsson, línumann liðsins og íslenska landsliðsins. Frammistaða Róberts með ís- lenska liðinu á heimsbikarmótinu í Svíþjóð sem og með Aarhus í dönsku úrvalsdeildinni í vetur hefur vakið áhuga stærstu liða Þýskalands og Spánar, en Róbert er langmarkahæsti leikmaður dönsku deildarinnar með tæp 10 mörk að meðaltali í leik, en lið Aarhus hefur komið gríðarlega á óvart í vetur og situr á toppi úr- valsdeildarinnar um þessar mundir. Þá var Róbert einnig markahæsti leikmaður heimsbik- armótsins í Svíþjóð. Um áramótin mun Aarhus GF sameinast öðru handknatt- leiksliði bæjarins, AGF, og mun sá samruni styrkja fjárhag hins nýja félags til muna. Henrik Jak- obsen, framkvæmdastjóri Aar- hus GF, segir að fyrsta verk hins nýja félags verði að bjóða Ró- berti nýjan og betri samning. „Við höfum ekki fjárhagslegt bol- magn til að keppa við þá allra stærstu en við viljum gjarnan halda Róberti í herbúðum okkar og munum gera allt sem í okkar valdi stendur til þess. Við vitum jafnframt að við getum ekki hindrað hann í að fara til stærra liðs í sterkari deild,“ segir Jakob- sen, en þess má geta ad þýska stórliðið Flensborg er sagt eitt af mörgum sem líta hýrum augum til kappans. -vig RÓBERT GUNNARSSON Forráðamenn danska liðsins Aarhus GF vilja gjarnan halda honum en það gæti orðið erfitt þar sem stórlið á borð við þýsku meistarana Flensburg hafa áhuga á kappanum. ■ ■ LEIKIR  15.00 Breiðablik og Þór Ak. mætast í Njarðvík í Bikarkeppni KKÍ og Lýsingar í körfubolta karla.  15.30 Ljónin og Dalvík mætast í Njarðvík í Bikarkeppni KKÍ og Lýsingar í körfubolta karla.  16.00 HHF og Ármann/Þróttur mætast í Hagaskóla í Bikarkeppni KKÍ og Lýsingar í körfubolta karla.  16.00 Valur og Grindavík mætast í Valsheimilinu í Bikarkeppni KKÍ og Lýsingar í körfubolta karla.  16.30 Keflavík B og Stjarnan mætast í Keflavík í Bikarkeppni KKÍ og Lýsingar í körfubolta karla.  17.30 Haukar og Afturelding mætast á Ásvöllum í norðurriðli 1. deildar karla í handbolta.  18.00 Leiknir R. og Breiðablik mætast í Hagaskóla í Bikarkeppni KKÍ og Lýsingar í körfubolta karla.  19.15 Skallagrímur og ÍR mætast í Borgarnesi í Bikarkeppni KKÍ og Lýsingar í körfubolta karla.  19.15 Keflavík og Snæfell mætast í Keflavík í Bikarkeppni KKÍ og Lýsingar í körfubolta karla.  19.15 Valur og Grótta/KR mætast í Valsheimilinu í suðurriðli 1. deildar karla í handbolta.  20.00 ÍR og Stjarnan mætast í Austurbergi í suðurriðli 1. deildar karla í handbolta. ■ ■ SJÓNVARP  12.35 Meistaradeildin í fótbolta á Sýn. Útsending frá leik PSV Eindhoven og Arsenal í meistaradeildinni í fótbolta.  14.00 Enski boltinn á Skjá einum. Bein útsending frá leik New- castle og Everton í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.  14.50 World Series of Poker á Sýn.  16.00 Enski boltinn á Skjá einum. Bein útsending frá leik Liverpool og Arsenal í ensku úrvalsdeild- inni í fótbolta.  17.20 Meistaradeildin í fótbolta á Sýn. Fréttaþáttur um meistara- deildina í fótbolta.  17.50 Spænski boltinn á Sýn. Bein útsending frá leik Real Madrid og Levante í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta.  19.55 Ítalski boltinn á Sýn. Bein útsending frá leik Inter Milan og Juventus í ítölsku A-deildinni í fótbolta.  21.35 Helgarsportið á RÚV.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.