Fréttablaðið - 28.11.2004, Síða 54
■ VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 6
1
3
2
Jónmundur Guðmarsson.
Á Lýsislóðinni við Grandaveg.
Sendiráðið í London.
34 28. nóvember 2004 SUNNUDAGUR
Bingóþátturinn hans Villa nagl-
bíts virðist vera að slá í gegn hjá
landanum þar sem gríðarlega
margir stunda það að prenta út
bingóspjöld á netinu fyrir hvern
þátt. Bingóspjöldin fylgdu í eitt
skiptið Fréttablaðinu inn á öll
heimili og auk þess eru prentuð
um sextíuþúsund bingóspjöld af
netinu fyrir hvern þátt. Í eitt
skiptið lagðist svo símkerfið niður
í hálftíma og bara á þeim stutta
tíma hringdu alls nítíu þúsund
manns inn, sem hlýtur að teljast
gott.
Í þættinum er Villi hressari en
Hemmi Gunn á góðum degi og ríf-
ur áhorfendur upp úr sófanum og
í bingógírinn.“Þetta er að ganga
alveg fáránlega vel og ég er ekki
frá því að bingó sé að verða
þjóðaríþrótt Íslendinga,“ segir
Villi og hlær.
Í verðlaun er margt skemmti-
legt og furðulegt og mjög líklega
misvinsælt hjá verðlaunahöfum.
„Við höfum gefið ævibirgðir af
kókópöffsi, risa toblerone, tíu
mannsævabirgðir af matarolíu,
birgðir af kúmeni, einn fékk
hundrað kíló af Tilda hrísgrjónum
og hann á eflaust eftir að borða
grjónagraut á hverjum degi það
sem eftir er. Við gefum líka flott-
ari vinninga eins og playstation-
tölvur, dvd-spilara, rafmagns-
hlaupahjól og alls konar leikföng.
Við gefum líka alltaf einn vel not-
aðan bíl í hverjum þætti.“
Einn skemmtilegasti og jafn-
framt furðulegasti liðurinn í
þættinum er þegar einhver mæt-
ir og lætur tattúvera á sig mynd
af einhverju tæki eða tóli og í
staðinn fær hann samskonar tæki
í verðlaun. Á meðal þeirra hluta
sem fólk hefur látið tattúvera á
sig eru skjávarpi, frystikista,
sófi, risasjónvarp og ferðatölva.
„Við vissum ekkert hvernig
þessi liður myndi ganga en svo
gengur hann bara mjög vel. Fólk
er að biðja um ótrúlegustu hluti,
allt frá húsgögnum og ferðalög-
um upp í allskyns hluti. Þeir Jari
og Pétur hanna húðflúrin og Búri
flúrar og vinna þeir vinnu sína af
mestu snilld. Þessi húðflúr eru
ekkert ljótari en tribal-munstrin
sem fólk hefur verið að fá sér í
hrönnum og varla verra að vera
með ísskáp á öxlinni í framtíðinni
heldur en eitthvað munstur sem
er löngu komið úr tísku.“
Villi segir að fólk úti um allan
bæ komi saman, haldi bingó-
kvöld og horfi á þáttinn. „Þetta er
holl og góð fjölskylduskemmtun
fyrir alla aldurshópa, krakkarnir
dýrka þetta, það eru allskyns
glæsilegir vinningar í boði og það
kostar ekkert að prenta út spjald
á netinu. Bingó er sko aldeilis
ekki bara fyrir gamla fólkið.“
Þátturinn er á dagskrá Skjás eins
á sunnudagskvöldum klukkan
átta.
hilda@frettabladid.is
SKJÁR EINN: Í BINGÓÞÆTTI VILLA NAGLBÍTS LÆTUR FÓLK HÚÐFLÚRA Á SIG HINAR ÝMSU MYNDIR
Bingó-Villi að slá í gegn
...fær Jóhannes Jónsson kaup-
maður í Bónus fyrir að færa
Mæðrastyrksnefnd og Hjálpar-
stofnun kirkjunnar 20 milljónir
að gjöf, en peningarnir eru hugs-
aðir sem stuðningur fyrir minnstu
bræður okkar í von um að þeir
geti átt kærleiksrík, gnóttar- og
gleðileg jól.
HRÓSIÐ
RAFLAGNA
ÞJÓNUSTA
RAFSÓL
Skipholti 33 • 105 Reykjavík
Sími:
553 5600
E
i
n
n
t
v
e
i
r
o
g
þ
r
í
r
2
6
6
.0
0
2
lögg i l tu r ra fverk tak i
Hvernig ertu núna? Afar svöl.
Augnlitur: Grænn.
Starf: Ritstjóri Iceland Review og Atlantica.
Stjörnumerki: Hrútur.
Hjúskaparstaða: Gift.
Hvaðan ertu? Úr Reykjavík með einhverjar ættir til Vest-
fjarða og danska langömmu.
Helsta afrek: Börnin mín; afar sæt og góð.
Helstu veikleikar: Frestunarárátta, súkkulaði, kampavín
og stígvél.
Helstu kostir: Held ég sé mjög kurteis.
Uppáhaldsmatur: Gæsalifur, líbanskur, taílenskur og elda
feikigóða marókkóska tagine.
Uppáhaldsveitingastaður: Ban Thai.
Uppáhaldsborg: Tókýó og New York eru báðar spennandi.
Mestu vonbrigði lífsins: Dettur ekkert í hug. Meira af
nokkrum smáum vonbrigðum.
Áhugamál: Bækur, tónlist, myndlist, hönnun, ferðalög.
Viltu vinna milljón? Já, takk. Strax!
Jeppi eða sportbíll: Jeppi, en er ekki Landcruiser-týpan.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Ætlaði
að bjarga sjaldgæfum dýrum frá útrýmingu og búa í Afr-
íku eins og Karen Blixen.
Hver er fyndnastur/fyndnust? Peter Sellers í The Party
og tveggja ára sonur minn.
Hver er kynþokkafyllst(ur)? Harrison Ford sem Indi-
ana Jones.
Hvaða dýr vildirðu helst vera? Köttur.
Hvaða dýr vildirðu ekki vera? Kakkalakki.
Besta kvikmynd í heimi: Lost in Translation.
Besta bók í heimi: Bróðir minn Ljónshjarta hefur
lengst af átt stóran stað í hjartanu.
Næst á dagskrá: Gefa út næsta blað svo ég geti farið
að snúa mér að jólaundirbúningnum.
HIN HLIÐIN
ANNA MARGRÉT BJÖRNSSON RITSTJÓRI SÝNIR Á SÉR HINA HLIÐINA
Ekki Landcruiser-týpan
24.03.72
ANNA MARGRÉT
BJÖRNSSON
Þorsteinn Guðmundsson leikari
heiðraði MR-inga með nærveru
sinni nýlega og gerði sér lítið
fyrir og vígði formlega bókaskáp
fyrir þá.
Bókaskápurinn kallast Rex
Maximum og er staðsettur í hin-
um glæsilegu húsakynnum Bók-
menntafélags MR, Casa Nova.
Hann las einnig upp úr skáldsögu
sinni Fífli dagsins ásamt
ungskáldunum Eiríki Erni Norð-
dahl og Hauki Ingvarssyni. Í MR
leynast einnig mörg efnileg skáld
sem lásu upp ljóð sín. Er von Þor-
steins að bækurnar geti styrkt
meðlimi Bókmenntafélagsins sem
og aðra lesendur innan Mennta-
skólans í Reykjavík í þeirri trú að
bókmenntir víkki hugann og bæti
manninn.
Þorsteinn ánafnaði einnig
bókaskápnum myndarlegum
bókasjóði sem útgefandi hans,
Mál og Menning, styrkir. ■ ÞORSTEINN GUÐMUNDSSON Vígir hér bókaskáp MR-inga, Rex Maximum.
Þorsteinn vígði bókaskáp
VILHELM ANTON JÓNSSON Betur
þekktur sem Villi naglbítur sér um
Bingóþáttinn og rífur landann í bingó-
gírinn á hverju sunnudagskvöldi.
Átök bókaút-gefenda á
jólavertíðinni eru
jafnan hörð og
það þætti því lík-
lega stórfrétt ef
útgáfustjóri eins
forlags nefbryti
annan forleggj-
ara. Slíkt gerðist
þó á dögunum en hefur ekki farið
mjög hátt enda var það óviljaverk
þegar útgáfustjóri hjá Eddu nefbraut
Snæbjörn Arngrímsson, forleggjara
hjá Bjarti, í fótboltaleik. Sagan af nef-
brotinu er reifuð á heimasíðu Bjarts,
bjartur.is, og þar er uplýst að ónafn-
greindur útgáfustjóri hafi tekið fasta
spyrnu að marki sem Snæbjörn kaus
að stöðva með nefinu. Afleiðingin
var að þetta tígulega nef, sem hefur
þefað uppi gullkálfa á borð við Harry
Potter og Da Vinci lykilinn, brotn-
aði. Eftir því sem dagarnir liðu varð
það ljósara að nefið væri illa úr lagi
gengið og Snæbjörn endaði því á
læknisbekk í sársaukafullri nefrétt-
ingu. Hann var þó fljótur að jafna sig
og veit aftur lengra en nef hans nær
en sú náðargáfa getur skipt sköpum
á hörðum bókamarkaðnum.
FRÉTTIR AF FÓLKI