Fréttablaðið - 29.11.2004, Síða 61
SMS
LEIKUR
Þitt VERÐ 199 kr
Frægasti, latasti og feitasti köttur í heimi er kominn á DVD
11. hver vinnur
Sendu SMS skeytið BTL GKB á númerið 1900 og þú gætir unnið.
Í VINNING ER:
Grettir á DVD & VHS.
Aðrar DVD myndir.
Og margt fleira.
Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind. Kópavogi: Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb BT. SMS kostar 199 kr.
19MÁNUDAGUR 29. nóvember 2004
Í júní 1950 ruddust hersveitir
leiðtogans mikla í Norður-
Kóreu, Kim Il Sungs, suður yfir
38. breiddarbaug sem skildi að
ríkin tvö á Kóreuskaga.
Rússar voru um það leyti í
eins konar verkfalli frá þátttöku
í öryggisráði SÞ, móðgaðir yfir
því að Vesturveldin vildu ekki
hleypa Kínverska alþýðulýð-
veldinu í Sameinuðu þjóðirnar
en Formósa Chang Kai Cheks sat
í sæti Kína í samtökunum. Því
gátu þeir ekki beitt neitunar-
valdi þegar Bandaríkjamenn
beittu sér fyrir því að herlið á
vegum SÞ færi til Kóreu og
berðist við lið Kim Il Sungs.
Þrátt fyrir það hefur ævin-
lega verið litið svo á að Banda-
ríkin hafi verið annar aðilinn að
stríðinu.
Truman forseti fól hetju úr
tveimur stríðum, Douglas Mac-
Arthur, herstjórn í Kóreu. Skipti
engum togum að hann hrakti lið
Sungs næstum upp að kínversku
landamærunum. Er almennt
talið að hann hafi hrakið þá svo
langt í hálfgildings óþökk forset-
ans og hafi jafnvel ætlað sér inn
fyrir kínversku landamærin.
Víst er að í Bandaríkjunum
fundust menn sem töldu að láta
hefði átt kné fylgja kviði og
fylkja hersveitum frelsins alla
leið til Beijing. Kínverska
stjórnin lét hins vegar á sér
skilja að hún teldi sér ögrað. Og
í október fóru kínverskar her-
sveitir suður yfir landamærin.
Um þetta leyti voru Kínverjarn-
ir búnir að hrekja bandamenn
suður fyrir 38. breiddarbauginn.
Gamli hershöfðinginn átti í stöð-
ugum ágreiningi við stjórnina í
Washington um hvað gera
skyldi. Sumir hafa haldið því
fram að hann hafi viljað beita
kjarnorkuvopnum gegn Norður-
Kóreu. Af því varð ekki og
reyndar var hann leystur frá
þjónustu og kallaður heim í apríl
1951. Þótt ágreiningur hans við
forsetann hafi vakið nokkra at-
hygli við heimkomuna dvínaði
áhugi manna fljótt og vonir Mac-
Arthurs um að geta notað stríðs-
frægð sína til þess að fleyta sér
inn í Hvíta húsið urðu að engu.
Hann dó öllum gleymdur í New
York 1964. Þegar loks var samið
um vopnahlé í Kóreu voru landa-
mæri ríkjanna tveggja ákveðin
við 38. breiddarbauginn, eins og
verið hafði fyrir stríðið. En enn
er ekki lokið áhyggjum manna af
kjarnavopnum í Kóreu. Lengi
var talið, samkvæmt upplýsing-
um bandaríska varnarmálaráðu-
neytisins, að rúmlega 54 þúsund
Bandaríkjamenn hefðu fallið í
Kóreu en nýlega hefur komið í
ljós að sú tala er röng. Í raun
féllu 36.500 manns. Pentagon
hafði nefnilega bætt við fyrri
töluna öllum sem farist höfðu í
hernum á tímabilinu, hvort sem
þeir dóu í bílslysum í Þýskalandi
eða á vígvöllum í Asíu. ■
KÓREUSTSRÍÐIÐ Sumir hafa haldið því
fram að MacArthur hafi viljað beita kjarn-
orkuvopnum gegn Norður-Kóreu.
Kóreustríðið færist nær lokareit
INDÍÁNI Einn af stoltum frumbyggjum
Norður-Ameríku.
Morðin
í Sandgili
Þennan dag fyrir réttum 140
árum réðust hvítir menn á frið-
sæla byggð Cheyenne-indíána
við Sandgil, eða Sand Creek, í
Colorado.
Flokkurinn sem framdi ódæð-
ið var undir stjórn manns að
nafni Chivington, sem var að
reyna að öðlast frama í stjórn-
málum og taldi baráttu gegn
indíánum geta aflað sér vinsælda
meðal hvítra landnema. Indíán-
arnir sem drepnir voru höfðu
ekkert sér til saka unnið og voru
á leið til staðar sem þeim hafði
verið bent á af Bandaríkjaher.
Sjöhundruð manns voru í flokki
Chivingtons og margir þeirra
voru drukknir. Þeir myrtu á ann-
að hundrað manns, þar af hund-
rað konur og börn. Ódæðið hafði
þær afleiðingar að magna um all-
an helming skæruárásir indíána
á hvíta menn. ■
Á FIMMTUDÖGUM
Auglýsingasíminn
er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is
- mest lesna blað landsins -