Fréttablaðið - 26.09.2004, Qupperneq 4
4 26. september 2004 SUNNUDAGUR
ORKUMÁL Verð á olíu í heiminum
hækkaði mikið í liðinni viku og
hefur aldrei verið hærra. Áhyggj-
ur af minnkandi birgðum í Banda-
ríkjunum og fellibylurinn Ívan
eru talin valda hækkuninni að
þessu sinni. Hækkunin nam
fjórum bandaríkjadölum og var
verðið 48,9 dalir á tunnu þegar
markaðir lokuðu á föstudag, litlu
hærra en 19. ágúst í sumar þegar
það náði síðast hámarki.
Georg Bush, forseti Bandaríkj-
anna, hefur heimilað að lánað
verði af neyðarolíubirgðum lands-
ins vegna áfalla sem olíuframleið-
endur við Mexíkóflóa urðu fyrir í
fellibylnum. Um fjórðungur olíu-
og gasframleiðslu Bandaríkjanna
fer fram í flóanum og talið er að
olíuframleiðslan hafi dregist
saman um tíu milljónir tunna
vegna eyðileggingarinnar.
John Kerry, forsetaframbjóð-
andi Demókrata, gagnrýndi Bush
á fimmtudag fyrir að bregðast
ekki fyrr við hækkuninni. Tals-
menn forsetans sögðu hins vegar
að birgðirnar ætti aðeins að nýta í
neyðartilfellum, en ekki til að
hafa áhrif á olíuverð.
Talið er að þær dugi Banda-
ríkjamönnum í rúman mánuð
verði algjör skortur á olíu. ■
Engin þörf á sér
stjórnsýsludómstól
Margt getur leitt til rangra dóma í réttarsölum. Prófessor við lagadeild Háskóla Íslands og
formaður Lögmannafélags Íslands segja enga þörf fyrir sérstakan stjórnsýsludómstól til að taka á
málum sem höfðuð eru á hendur stjórnvöldum, eins og dómsmálaráðherra vill skoða.
STJÓRNMÁL Ekki er nauðsynlegt að
setja á stofn sérstakan stjórn-
sýsludómstól til að taka á málum
sem höfðuð eru á hendur stjórn-
völdum, segja Páll Hreinsson,
prófessor við Lagadeild Háskóla
Íslands og sérfræðingur í stjórn-
sýslurétti og Gunnar Jónsson
hæstaréttarlögmaður og for-
maður Lögmannafélags Íslands.
Á málþingi Lögfræðingafélags
Íslands fór Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra hörðum orð-
um um Hæstarétt sem hann segir
hafa gert afdrifarík mistök, vegna
vanþekkingar á störfum og starfs-
háttum stjórnvalda. Af þeim sök-
um hafi ríkisstjórnin neyðst til að
bregðast vð með lagasetningu.
Hann teldi rétt að skoða hvort
ástæða væri til að setja á fót
stjórnsýsludómstól.
Gunnar segir það ekki sitt að
dæma hvort gagnrýni dómsmála-
ráðherra sé við hæfi. Sjálfur beri
hann almennt meira traust til
dómstóla en stjórnvalda. Hann
segir að í málum fyrir Hæstarétti
þurfi meira eða minna sérfræði-
þekkingar við. Lögmenn leggi
grundvöll málanna fyrir í
réttinum.
„Í sjálfu sér getur ugglaust
hver sem er, á hvaða sviði sem
er, kveinkað sér undan því að
ekki sé nægri sérþekkingu
á þeirra málefni til að
dreifa. Örugglega er
hægt að nota sömu
rök um aðra
málaflokka,“
segir Gunn-
ar.
Páll segir gagnrýni á dóma oft
ranglega beint að dómurunum.
„Það getur einnig átt sér stað að
málin séu ekki lögð fyrir á réttan
hátt og ekki vel flutt. Það er
margt sem kemur til greina
þegar eitthvað fer
úrskeiðis.“
Páll lagði
fram hug-
myndir á
m á l -
þingi Lögfræðingafélagsins um
hvernig mætti styrkja núverandi
dómskerfi án þess að setja á
fót stjórnsýsludómstól. „Annars
vegar með því að deildaskipta
Héraðsdómi Reykjavíkur.
Ákveðnir héraðsdómarar færu þá
nærri eingöngu með málin og öðl-
uðust þannig sérfræðiþekkingu
og reynslu á sviði stjórnsýslurétt-
ar. Á hinn bóginn með því að setja
inn í réttarfarslögin sérstök
ákvæði um meðferð mála þar sem
er krafist ógildingar ákvarðana
stjórnvalda.“ Páll segir að einnig
mætti hugsa sér deildaskiptingu í
Hæstarétti. Leiðin sé ein
margra og þekkt hjá ná-
grannaþjóðum okkar. Hún
leiði oft til vandaðri
meðferða mála.
gag@frettabladid.is■ LÖGREGLUFRÉTTIR
Eiga stjórnvöld að grípa inn í
verkfall kennara?
Spurning dagsins í dag:
Eiga kennarar að veita undanþágu
vegna kennslu fatlaðra barna?
Niðurstöður gærdagsins
á visir.is
49%
51%
Nei
Já
KJÖRKASSINN
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
Ártúnsbrekka:
Bíll hrapaði
fimm metra
LÖGREGLA Bifreið fór út af á Ártúns-
brekku aðfaranótt laugardags
þegar ökumaður hennar keyrði í
gegnum vegrið og fór niður af
brúnni við Elliðaár.
Maðurinn missti stjórn á bíln-
um með þeim afleiðingum að bíll-
inn snerist og rann yfir þrjár
akreinar til austurs. Bíllinn hrap-
aði niður fimm metra og lenti á
göngustíg fyrir neðan brúna. Kalla
þurfti á tækjabíl til að klippa
manninn út úr bílnum og var hann
þá sendur á slysadeild. Maðurinn
var ekki alvarlega slasaður en gisti
á skurðdeild um nóttina og var út-
skrifaður á laugardagsmorgun. ■
OLÍUFRAMLEIÐSLA Í MEXÍKÓFLÓA
Dróst saman um tíu milljónir tunna vegna Ívans grimma.
Olíuverð:
Hækkar í kjölfar
Ívans grimma
DÓMSMÁL Tuttugu og tveggja ára
kona hefur verið dæmd í fimm
mánaða skilorðsbundið fangelsi
fyrir bílstuld. Dómurinn var
kveðinn upp í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær.
Í fyrrasumar stal konan bíl
stjúpmóður sinnar sem var í bif-
reiðageymslunni við flugstöð Leifs
Eiríkssonar. Faðir konunnar og
stjúpmóðir hennar voru þá erlend-
is. Á leið sinni frá flugvallarsvæð-
inu tók konan fram úr annarri bif-
reið á Njarðargötu þrátt fyrir
óbrotna varúðarlínu sem bannar
framúrakstur. Lögreglan stöðvaði
konuna í kjölfarið og þá kom í ljós
að hún hafði ekki ökuréttindi.
Konan játaði fyrir dómi að hafa
tekið ólöglega fram úr og að hafa
ekki ökuréttindi. Hún sagðist hins
vegar hafa fengið bílinn lánaðan.
Bæði faðir konunnar og sambýlis-
kona hans neituðu því fyrir dómi
að hafa lánað bílinn.
Með brotunum rauf konan skil-
orð. Við dómsuppkvaðningu tók
dómurinn tillit til ungs aldurs
konunnar og þótti refsing hæfileg
vera fimm mánaða skilorðsbundið
fangelsi. ■
Kona fékk fimm mánaða skilorðsbundinn dóm:
Stal bíl stjúpmóður sinnar
FRÁ LEIFSSTÖÐ
Faðir konunnar og stjúpmóðir hennar voru erlendis þegar bílnum var stolið. Myndin teng-
ist fréttinni ekki með beinum hætti.
ÓK Á LÖGREGLUBÍL Ökumaður
sinnti ekki stöðvunarmerkjum
við eftirför lögreglu í gærmorg-
un. Hann nam ekki staðar fyrr en
hann ók á ómerkta lögreglubif-
reið. Maðurinn var ölvaður við
akstur og grunaður um að hafa
fíkniefni undir höndum. Maður-
inn hefur játað brot sitt.
BROTIST INN Á HVAMMSTANGA
Brotist var inn í iðnaðarhús á
Hvammstanga aðfaranótt laugar-
dags og nokkrum verðmætum
stolið. Innbrotsþjófurinn spennti
upp lás á dyrum og tók með sér
nokkuð magn af verkfærum.
FRÁ SLYSSTAÐ
Litlu munaði að bíllinn endaði ofan í
Ellliðaánum.
HÆSTIRÉTTUR ÍSLANDS
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra sagði
á málþingi Lögfræðingafélags Íslands að
fyllilega réttmætt væri að velta fyrir sér
hvort setja ætti á fót stjórnsýsludómstól
enda væru fingurbrjótar Hæstaréttar áber-
andi og sumir alvarlegri en aðrir. Van
þekking á störfum og starfsháttum stjórn-
valda gæti brenglað allar forsendur fyrir
niðurstöðum dómstóla og haft alvarlegar
afleiðingar fyrir lagaframvæmdir á þeim
sviðum sem þær snerti.
04-05 25.9.2004 21:58 Page 2