Fréttablaðið - 26.09.2004, Qupperneq 10
Ein vinsælasta stóðrétt landsins,
Laufskálarétt í Hjaltadal, var
haldin í gær. Þar er jafnan margt
um manninn og mikið fjör en að
þessu sinni var enn meira um
dýrðir en venjulega þar sem í ár
fagna menn 50 ára afmæli Lauf-
skálaréttar. Réttin var vígð 20.
september 1954 en afmælishátíð-
arhöldin hófust á föstudagskvöld
þegar slegið var upp veislu í
Reiðhöllinni á Svaðastöðum.
„Réttin á sér í raun lengri sögu
en það eru 50 ár frá vígslu réttar-
byggingarinnar,“ segir Ingimar
Ingimarsson hjá Hestamiðstöð Ís-
lands. „Það má alveg fara 20 til 30
ár aftur fyrir þann dag en þá voru
réttirnar þegar orðnar töluverður
mannfagnaður. Þó það hafi verið
nokkuð um aðkomufólk á árum
áður voru hrossin í aðalhlutverki
og þau miklu fleiri en mannfólkið.
Þetta hefur algerlega snúist við
og þegar talning var gerð fyrir
tveimur árum voru rétt innan við
3000 manns á staðnum.“
Ingimar segir að það ríki bein-
línis karnivalstemning í héraðinu.
Heimamenn taki vitaskuld virkan
þátt og gestir og aðkomumenn
séu hátt á annað þúsund og marg-
ir láta sjá sig ár eftir ár. „Þetta
eru mikið sömu andlitin sem sjást
aftur og aftur. Menn tala um það í
Skagafirði að þetta séu farfuglar
með öfugum formerkjum, það er
að segja að þeir komi á haustin.
Þetta er mjög stöðugur kjarna-
hópur sem lætur sig aldrei vanta.
Þetta er heilmikil traffík og
mikið líf og fjör. Söngurinn
hljómar dátt og einn og einn
lyftir réttapelanum eins og geng-
ur.“
Fjöldi fólks fór ríðandi í Kol-
beinsdal í gærmorgun til að smala
stóðinu en réttarstörf hófust
klukkan 13. „Þetta er hálfgerð
málamyndasmalamennska,“ segir
Ingimar. „Það er búið að smala í
stórt hólf í neðanverðum Kolbeins-
dal og það er vinsælt að ríða þang-
að, sæka hrossin og reka til réttar.
Það er þó nokkuð um að fólk komi
að sunnan með hestana sína í kerr-
um, leggi á og ríði upp í dalinn og
smali. Síðan fer það bara aftur
heim eftir um það bil tveggja tíma
reiðtúr. Það er mikið sport í þessu.“
thorarinn@frettabladid.is
10 26. september 2004 SUNNUDAGUR
T.S. ELIOT
Þetta margslungna skáld fæddist á þessum
degi árið 1888.
Líf og fjör í Laufskálarétt
LAUFSKÁLARÉTT HEFUR VERIÐ MIÐSTÖÐ MANNFAGNAÐA Í SKAGAFIRÐI Í ÁRATUGI.
„Mannkynið þolir ekki of mikið af raun-
veruleika.“
– T.S. Eliot reyndi að halda aftur af raunveruleikanum með þeim
árangri að fólk á enn í ógnarbasli með að skilja hann.
timamot@frettabladid.is
ANDLÁT
Þorgerður Þorbjörnsdóttir, Kirkjuvegi 5,
Keflavík, lést 8. september. Útförin hefur
farið fram í kyrrþey.
Hákon Sveinsson; frá Hofsstöðum, lést
20. september.
Ágústa Margrét Ólafsdóttir, Úthlíð,
Biskupstungum, lést 20. september.
Gaukur Jörundsson, frá Kaldaðarnesi,
lést 22. september.
Grétar Haraldsson; Berjalandi 2, Hafn-
arfirði, lést 22. september.
Berta Eiðsdóttir, Stekkjarflöt 8, Garða-
bæ, lést 23. september.
LAUFSKÁLARÉTT Þessi vinsæla rétt varð 50 ára á mánudaginn og af því tilefni gerðu menn sér óvenju glaðan dag í kringum smalamennskuna þó það sé að vísu alltaf glatt á hjalla
þegar hestar og menn koma saman í réttinni.
„Ég verð tvær vikur í Japan og
tvær í Kína,“ segir Halldóra Rut
Bjarnadóttir sem lagði af stað til
Tókýó í gærmorgun en hún tekur
þátt í fegurðarsamkeppninni Miss
International í Kína 16. október.
„Við komum allar saman í Tókýó
og kynnum lönd okkar og þjóð á
Miss Japan keppninni, komum
fram í þjóðbúningum og þess
háttar.“
Halldóra Rut segir að dagskrá
vikunnar í Japan sé þéttskipuð hjá
sér en hún mun sækja blaðamanna-
fundi og taka þátt í ýmsum góð-
gerðarsamkomum ásamt stall-
systrum sínum sem keppa á móti
henni í Miss International. „Það
taka einhvers konar lífverðir á
móti okkur á flugvellinum í Tókýó
en við lendum flestar á sama tíma.
Við fáum strax tækifæri til að hitt-
ast og kynnast aðeins en síðan
tekur fyrsti blaðamannafundurinn
strax við.“
Halldóra Rut hefur aldrei farið
til útlanda áður og segist því að
vonum vera spennt. „Ég hef ekki
einu sinni farið á Þjóðhátíð í Eyjum
og er búin að búa mig undir meiri-
háttar menningarsjokk. Ég er búin
að vera að kynna mér Kína og Jap-
an undanfarið svo ég viti eitthvað
um þessi lönd þegar ég kem þangað
en við förum í alls konar ferðalög
og fáum að skoða menningarslóðir
og förum til dæmis að Kínamúrn-
um sem ég er mög spennt fyrir.“
Hugurinn hafði borið Halldóru
hálfa leið og hún segist hafa verið
fyrir löngu búin að pakka áður en
hún lagði af stað. „Það er líka búið
að vera brjálað að gera og ég er
búin að vera að snúast heilmikið í
kringum þetta, fékk meðal annars
styrk frá sveitarfélaginu því það
fylgir þessu nokkur kostnaður sem
við verðum sjálfar að bera,“ segir
Selfossmærin unga sem mun
meðal annars taka þátt í auglýs-
ingaherferð fyrir Toyota á meðan
hún er í Japan. ■
VIKAN SEM VERÐUR
HALLDÓRA RUT BJARNADÓTTIR BYRJAR VIKUNA Í TÓKÝÓ
Fyrsta utanlandsferð fegurðardísar
26. september 1995
Á þessum degi árið 1995 hóf saksóknari
lokaræðu sína í málinu sem ákæruvaldið
höfðaði á hendur fyrrum ruðningshetjunni
og kvikmyndaleikaranum O.J. Simpson en
Simpson var grunaður um að hafa myrt
fyrrum eiginkonu sína Nicole Brown og
vin hennar Ron Goldman.
Réttarhöldin höfðu staðið í rúma níu
mánuði en sækjandi og verjandi kláruðu
lokaræður sínar á þrem dögum og eftir það
var málið komið í hendur kviðdómenda sem
komust að þeirri niðurstöðu að O.J. væri
saklaus. Öll sönnunargögn bentu þó til þess
að O.J. hefði banað parinu á subbulegan hátt
með veiðihníf. Í kjölfarið hófust miklar um-
ræður um hvort bandarískt réttarkerfi
virkaði yfirleitt þar sem þeir sem ættu nóga
peninga virt-
ust geta
komist upp
með morð.
O.J. setti
vænan skild-
ing í vörn
sína og tefldi
fram harð-
snúnustu og
d ý r u s t u
verjendum
sem sögur
fara af .
Hann er
frjáls maður í dag en öllu fátækari en áður
en hann var handtekinn. ■
O.J. SIMPSON Slapp með skrekk-
inn eftir að kviðdómur hafði hlýtt á
lokaræður sækjanda og verjanda í
máli hans.
ÞETTA GERÐIST
ÁKÆRUVALDIÐ ÞJARMAR AÐ O.J. SIMPSON
MERKISATBURÐIR
1955 Verðbréfamarkaðurinn í
New York varð fyrir sínu
versta áfalli frá hruninu
mikla árið 1929 þegar til-
kynnt var að Eisenhower,
Bandaríkjaforseti, hefði
fengið hjartaáfall.
1960 Fyrstu sjónvarpskappræð-
urnar á milli forsetafram-
bjóðendanna Richard M.
Nixon og John F. Kennedy
fóru fram í Chicago.
1985 Háhyrningurinn Shamu
fæddist í Sea World í
Orlando á Flórída. Shamu
var fyrsti háhyrningurinn
sem fæddist í dýragarði og
komst á legg.
1986 Dallas þátturinn þar sem
Bobby Ewing sneri aftur
frá dauðum fór í loftið í
Bandaríkjunum.
Messað yfir O.J.
sem lést 19. september, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju
miðvikudaginn 29. september kl. 10.30.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi
Kolbeinn Guðjónsson
Álfheimum 48
Kristín Kristinsdóttir, Guðjón Kolbeinsson, Jónína Pálsdóttir,
Gunnvör Kolbeinsdóttir, Garðar R. Árnason og barnabörn.
Ástkær eiginkona, móðir og dóttir
Emilía Kofoed-Hansen Lyberopoulos
sem lést föstudaginn 17. september, verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 27. september kl. 15.
Þeim sem vilja minnast hennar, er bent á Barnaspítalasjóð Hringsins.
Constantin Lyberopoulos, Irena og Yannis Lyberopoulos, Björg Kofoed-
Hansen.
Afmæli
Kristján Árnason bókmenntafræðingur,
þýðandi og rithöfundur er 70 ára í dag
og af því tilefni gefur Bókmenntafræði-
stofnun Háskóla Íslands, sem hann veitti
forstöðu um skeið, út á bók helstu rit-
gerðir hans um bókmenntir, þýðingarlist
og heimspeki sem hann hefur ritað í
tímarit á undanförnum áratugum, auk
kynningarorða hans með fáeinum
bókum. Afmælisritið ber nafnið Hið
fagra er satt eftir inngangsgrein bókar-
innar. Bókinni verður til hagræðis skipt í
fimm efnisflokka: heimspeki, skáldskap-
arlist, íslenskan skáldskap, erlendan
skáldskap og þýðingar ñ og er að mestu
leyti raðað í tímaröð innan hvers flokks
um sig; þó er greinum um sama efni
eða svipað skipað saman.
Reynir Jónasson harmonikuleikari er 72
ára.
Ásgerður Júníusdóttir söngkona er 36
ára
Brynhildur Guðjónsdóttir leikkona er
32 ára.
HALLDÓRA RUT BJARNADÓTTIR
10-11 Timamot 25.9.2004 19:44 Page 2