Fréttablaðið - 26.09.2004, Blaðsíða 15
SUNNUDAGUR 26. september 2004
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
N
A
T
25
47
1
09
/0
4
Fyrir
okkur hin
Honey Nut Cheerios
er fyrir okkur sem
viljum morgunkorn
sem gefur náttúru-
legan sætleika og er
jafnframt fullt af hollum
trefjum og vítamínum.
erindi sem fjölmiðlamaður
vegna pólitísks stimpils. „Gísli
Marteinn starfar hér vegna þess
að hann er afburða sjónvarps-
maður. Hann er líka varaborgar-
fulltrúi í Reykjavík. Þess vegna
óskaði hann eftir að fá önnur
verkefni en að starfa í fréttum
eins hann er ráðinn til. Það var
farið yfir ítarlega yfir málið
þegar upp komu vangaveltur
hvort eðlilegt væri að hann
starfaði hér áfram. Í kringum
1970, þegar fréttamenn Ríkisút-
varpsins voru að fara út í póli-
tík, var fengið lögfræðiálit um
réttindi opinberra starfsmanna
og utanaðkomandi álitsgerðir
með tilliti til borgaralegra rétt-
inda og stjórnarskrárákvæða.
Það kom fram að Ríkisútvarpinu
væri ekki stætt á því sem stofn-
un að setja fréttamönnum stól-
inn fyrir dyrnar og vísa úr starfi
tækju þeir opinberlega þátt í
stjórnmálum. Ég tel það líka
meiri hagsmuni Ríkisútvarpsins
að hafa Gísla Martein, þann
hæfileikaríka mann, í þátta-
stjórn en að fórna honum vegna
þess að hann fer öðru hverju inn
á fundi sem varamaður í borgar-
stjórn Reykjavíkur,“ segir
Markús Örn. „Svo er Gísli
Marteinn heldur ekkert að fjalla
um pólitísk málefni í þætti sín-
um. Það vita líka allir hvar þeir
hafa hann“.
Megum ekki króast af
Vetrardagskrá Ríkissjónvarps-
ins liggur fyrir og er mjög fjöl-
breytt. Markús fullyrðir að
engin íslensk sjónvarpsstöð
komist í hálfkvisti við Ríkissjón-
varpið í innlendri dagskrá. Lati-
bær, þættir Magnúsar Scheving,
verða á dagskrá í vetur og verða
einnig sýndir á hinum Norður-
löndunum. Gamanþáttaröðin
Kallakaffi eftir Guðmund Ólafs-
son verður sýnd í leikstjórn
Hilmars Oddssonar. Allir litir
hafsins er spennuþáttaröð í
þremur hlutum sem Anna Th.
Rögnvalsdóttir leikstýrir og
skrifar handrit að. Fjöldi heim-
ildarmynda verða á dagskrá, þar
á meðal mynd um Baróninn á
Hvítárvöllum og Guðný Hall-
dórsdóttir leikstýrir heimildar-
mynd um Ragnar í Smára. Andr-
és Indriðason gerir mynd um
listakonuna Gerði Helgadóttur.
Áramótaskaupið verður vitan-
lega á sínum stað og nú í umsjón
Spaugstofumanna sem fá til liðs
við sig fjölda leikara og lista-
manna. Einnig verða aðrir, fastir
innlendir þættir reglulega á dag-
skrá, meðal annars Óp, nýr þátt-
ur fyrir unglinga. Þetta er ein-
ungis örlítið brot af úrvali inn-
lendrar dagskrárgerðar í vetur.
Stundum er Ríkissjónvarpið
gagnrýnt fyrir of mikla áherslu
á erlendu skemmtiefni eins og
Beðmál í borginni og Frasier,
svo tveir þættir séu nefndir.
„Meginstefna okkar er að sýna
dagskrárefni sem höfðar til
allra aldursflokka og ólíkra
hópa,“ segir Markús Örn. „Því
skyldum við ekki bjóða upp á
margverðlaunaða gamanþætti
sem hafa mikið áhorf um allan
heim? Það á að vera breidd
í dagskránni, við megum ekki
króast af í „menningarhorni“
sem 6-12 prósent neytenda
horfa eða hlusta á að jafnaði. Þá
hljóta að vakna spurningar á
móti: Til hvers er verið að halda
úti svona miðli fyrir almannafé
ef það eru ekki fleiri sem horfa
eða hlusta?“
Sérrásir eru markmið
Kaup Símans á Skjá einum hafa
verið nokkuð til umræðu. „Ég er
í grundvallaratriðum þeirrar
skoðunar að annars vegar eigi
að vera til fyrirtæki sem fram-
leiðir sjónvarps- eða útvarps-
efni til útsendingar en síðan sjái
aðrir aðilar, algjörlega aðskildir,
um dreifinguna,“ segir Markús
Örn. „Ef útvarps- og sjónvarps-
framleiðslufyrirtæki starfar
undir verndarvæng fjarskipta-
fyrirtækis óttast ég að það fari
að njóta einhverra sérréttinda
og hlunninda í þeim samskiptum
og aðrir sitji við skarðan hlut.“
Í sjónvarps- og útvarpssend-
ingum horfa menn nú mjög til
stafræna kerfisins. „Við höfum
yfir okkur þá meginkröfu að
þjóna landsmönnum öllum og til
þess að þjóna öllu landinu telj-
um við að þurfi að byggja upp
stafrænt dreifikerfi, jarðnet
með sendum út um allt land,“
segir Markús Örn. „Samgöngu-
ráðuneytið hefur haft forgöngu
um athuganir á þessum málum
og gert grófar áætlanir um það
hvernig væri hægt að standa að
því. Niðurstaðan var sú að óska
eftir samráði útvarps- og sjón-
varpsfyrirtækjanna annars veg-
ar og fjarskiptafyrirtækjanna,
aðallega Símans, hins vegar, um
það hvort ekki væri hægt að ná
samstarfi og sameinast um eina
stefnu varðandi uppbyggingu á
stafrænu dreifikerfi til alls
landsins. Síminn og Norðurljós
hafa ekki áhuga á því. Hér hjá
RÚV höfum við sagt að við telj-
um lang eðlilegast að sem flest-
ir aðilar taki höndum saman og
til verði eitt kerfi sem bjóði upp
á einn myndlykil til hagræðis
fyrir notendur sem geti þannig
náð öllum rásum sem í boði eru.
Við höfum oft saknað þess að
vera ekki með fleiri en eina
sjónvarpsrás. Markmiðið hlýtur
að vera að sinna innlendri dag-
skrá enn meir en gert er og hafa
sérrásir, til dæmis sérstaka
barnarás með íslensku barna-
efni og erlendu í bland, talsettu
á íslensku, eins og við erum með
í aðaldagskrá og síðan sérstaka
fréttarás með fréttaþáttum og
fréttaskýringum og jafnvel
lengri íþróttasendingum. Ef við
hugsum síðan til alls gamla
safnaefnisins sem alltaf er
gaman að rifja upp og endur-
sýna, gætum við opnað nýja
„gullaldarrás“. Alls kyns mögu-
leikar ættu að opnast.“
Yfirburðir RÚV
Markús Örn leggur mikla
áherslu á mikilvægi Ríkisút-
varpsins í fjölmiðlaflóru lands-
ins. „Stofnunin hefur þá ímynd
að vera traustasti og öflugasti
fjölmiðill landsins. Í nýlegum
könnunum kemur fram að fólkið
í landinu treystir Ríkisútvarp-
inu langbest. RÚV hefur algjöra
yfirburði hvað varðar áhorf á
fréttir í sjónvarpi og hlustun á
útvarpsfréttir. Ég tel að sýn
manna á ótvírætt mikilvægi
Ríkisútvarpsins hafi verið að
skerpast,“ segir hann. „Í hinni
miklu umræðu um fjölmiðla
sem verið hefur undanfarið lítur
fólk til Ríkisútvarpsins sem
akkeris. Fólk vill að vegur þess
vaxi enn frekar og að það hafi
áframhaldandi afl til að sinna
þeim verkefnum sem því hafa
verið falin. Ef einhver hefur
áður efast um þetta viðhorf
þjóðarinnar þá held ég að sá
hinn sami verði að endurskoða
þá afstöðu sína. Og því beini ég
einkanlega til stjórnmálamann-
anna.“
kolla@frettabladid.is
„Ef útvarps- og sjónvarpsframleiðslufyrirtæki starfar undir verndarvæng fjarskiptafyrirtækis
óttast ég að það fari að njóta einhverra sérréttinda og hlunninda í þeim samskiptum og
aðrir sitji við skarðan hlut.“
Meginstefna okkar
er að sýna dagskrár-
efni sem höfðar til allra ald-
ursflokka og ólíkra hópa.
Því skyldum við ekki bjóða
upp á margverðlaunaða
gamanþætti sem hafa mikið
áhorf um allan heim?
,,
Markús Örn Antonsson
útvarpsstjóri
Fæddur: 25. 5. 1943
Maki: Steinunn Ármannsdóttir
skólastjóri
Börn: Sigrún Ása, starfsmaður
Financial Times í London, og
Anton Björn lögfræðingur
Helstu störf:
Fréttamaður og dagskrárgerðar-
maður við Sjónvarpið
1966–1970
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks-
ins í Reykjavík 1970–1985
Forseti borgarstjórnar
1983–1985
Útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins
1985–1991
Borgarstjóri í Reykjavík
1991–1994
Útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins
1998 –
14-15 helgin 25.9.2004 21:23 Page 3