Fréttablaðið - 26.09.2004, Qupperneq 19
ATVINNA
TILKYNNINGAR
TILKYNNINGAR
NÁMSKEIÐ
NÁMSKEIÐTIL SÖLU
Sólbaðsstofa með fimm ljósabekki og aðstöðu
fyrir naglafræðing er til sölu. Hentar vel sem
fjölskyldufyrirtæki eða fyrir tvo samhenta
einstaklinga. Húsnæði getur selst með.
Góður tími framundan.
UPPLÝSINGAR Í SÍMA 898 0885 OG 8984344.
FJÖLSKYLDUFYRIRTÆKI
Smiðir, verkamenn og vanir vélamenn
Skuggahverfi
Getum enn bætt við okkur mannskap.
Vantar smiði, verktaka eða smíðagengi ásamt
verkamönnum næg vinna framundan.
Upplýsingar veitir Arinbjörn í síma 822-4430.
Hringbraut
Óskum eftir vönum manni á skotbómulyftara
ásamt verkamönnum.
Upplýsingar veitir Höskuldur í síma 822-4411.
Fjölskylduskóli
Hafnarfjarðar
haustmisseri 2004
Sjálfsstyrking – sjálfstraust
Röð námskeiða fyrir börn, unglinga og foreldra
Fjölskylduskólinn, Foreldrahúsið, Regnbogabörn og
forvarnarfulltrúi Hafnarfjarðar standa saman að
sjálfsstyrkingarnámskeiðum fyrir börn og unglinga á
ýmsum aldri.
Leiðin til velgengni - fjármálanámskeið
Gott námskeið fyrir þá sem vilja ná tökum á fjár-
málum sínum. Hagnýtt og skemmtilegt námskeið
sem kemur á óvart, enda hefur það skilað þátttak-
endum ótrúlegum árangri.
Barnið okkar
Námskeið fyrir foreldra 0-3 ára barna.
Vönduð fræðsla fjögurra reyndra sérfræðinga sem
fara á hnitmiðaðan hátt gegnum þarfir barna fyrstu
æviárin.
Snerting, jóga og slökun
Markmið námskeiðsins er að gera foreldra og aðra
sem sjá um uppeldi hæfari til að tengjast börnum á
yfirvegaðan hátt.
Nánari upplýsingar um öll námskeið á vegum Fjölskyldu-
skólans má m.a. finna á heimasíðu Hafnarfjarðarbæjar,
www.hafnarfjordur.is og eða á vef Námsflokka
Hafnarfjarðar www.namsflokkar.hafnarfjordur.is.
Kennsla fer fram í gamla Lækjarskólanum.
Skráning hjá námsflokkunum í s: 585 5860.
Í Hafnarfirði búa um 21 þúsund manns. Bærinn stendur í fallegu
umhverfi hrauns og kletta. Hafnarfjörður hefur þá bæjarsál sem
einkennir búsetu við sjó og státar um leið af hagkvæmni stærðar-
innar og staðsetningar í jaðri höfuðborgarsvæðisins. Það er gott að
búa og starfa í Hafnarfirði.
FJÖLSKYLDUSKÓLI
HAFNARFJARÐAR
RÉTTINDANÁMSKEIÐ
FYRIR BÍLSTJÓRA UM
FLUTNING Á
HÆTTULEGUM FARMI
Fyrirhugað er að halda eftirfarandi námskeið
ef næg þátttaka fæst, fyrir stjórnendur
ökutækja sem vilja öðlast réttindi
(ADR-skírteini) til að flytja tiltekinn
hættulegan farm á vegum á Íslandi og innan
Evrópska efnahagssvæðisins:
Reykjavík:
Flutningur á stykkjavöru (fyrir utan
sprengifim efni og geislavirk efni):
4. - 6. október 2004.
Flutningur í/á tönkum:
11. - 12. október 2004.
Flutningur á sprengifimum farmi
(sprengiefnum):
13. október 2004.
Skilyrði fyrir þátttöku á námskeiðum fyrir
flutning í tönkum og flutning á sprengifimum
farmi er að viðkomandi hafi setið
grunnnámskeið (stykkjavöruflutningar) og
staðist próf í lok þess.
Þeir sem ætla á eitt eða fleiri af fyrrgreindum
námskeiðum verða að vera búnir að ganga frá
skráningu og greiðslu fyrir kl. 16:00 þann
29. september.
Skráning og nánari upplýsingar hjá
umdæmisskrifstofu Vinnueftirlitsins, Reykjavík,
Bíldshöfða 16, sími: 550 4600.
ALÞJÓÐAHÚSIÐ boðar til málþings
þriðjudaginn 28. SEPTEMBER
í KORNHLÖÐUNNI, BANKASTRÆTI kl. 20-22
Frummælendur eru:
INGIBJÖRG HAFSTAÐ, eigandi Fjölmenningar, hún hefur
mikla reynslu af kennslu íslensku fyrir útlendinga m.a.
inna fyrirtækja. Hún talar um hvernig best sé að haga ís-
lenskukennslu svo að hún nýtist sem best og sem flest-
um.
EMILIA MLYNSKA, kennari og mannfræðingur frá Pól-
landi, sem hefur gengið í gegnum það að læra íslensku.
Auk þess kennir hún pólskum börnum bæði íslensku og
pólsku.
AKEEM OPPONG, fræðslufulltrúi, hann hefur fylgst vel
með pólitískri umræðu um málefni innflytjenda svo sem
lagaskyldu um 150 tíma íslenskunám, kostnað sem því
fylgir o.þ.h.
INGA SIGURÐARDÓTTIR, formaður Kvasis, Samtaka sí-
menntunar-miðstöðva á landsbyggðinni, hún segir frá ís-
lenskunámi fyrir útlendinga á landsbyggðinni.
Kaffi og umræður á eftir.
Fundarstjóri:
ANNA GUNNHILDUR ÓLAFSDÓTTIR, blaðamaður.
Allir velkomnir
TUNGUMÁLIÐ -
LYKILL AÐ
SAMFÉLAGINU
Hvar stöndum við, hvert stefnum við?
Hvað er gott og hvað þarf að gera betur?
Árshátíð SÁÁ
Árshátíð SÁÁ verður haldin
í Súlnasal Hótel Sögu,
föstudaginn 8. október 2004.
Húsið opnar kl. 19.00 og hefst
borðhald kl. 20.00.
Fjölbreytt skemmtidagskrá
og dans til 02.00.
Sala aðgöngumiða og borðapantanir
frá og með 28. september á skrifstofu
SÁÁ að Ármúla 18.
Nánari upplýsingar í síma
530 7600 og 824 7610
SÁÁ
Samtök áhugafólks
um áfengis- og
vímuefnavandann
Framhaldsnám sjúkraliða í
öldrunarhjúkrun
Fjölbrautaskólinn við Ármúla / Heilbrigðis-
skólinn auglýsir eftir umsóknum um fram-
haldsnám sjúkraliða í öldrunarhjúkrun á
vormisseri 2005. Námið er í samræmi við
námskrá frá því í nóvember 2001. Námið
hentar sjúkraliðum sem hafa reynslu og
áhuga á hjúkrun aldraðra. Að námi loknu
verða umsækjendur hæfari til þess að
takast á við margvísleg verkefni í öldrunar-
og félagsþjónustu. Námið skiptist í tveggja
anna bóklegt nám og 8 vikna vinnustaða-
nám, sem fer fram í maí og júní.
Inntökuskilyrði eru þau, að viðkomandi
hafi unnið að lágmarki fjögur ár sem
sjúkraliði. Við val umsækjenda verður höfð
hliðsjón af einkunnum á sjúkraliðaprófi,
starfsreynslu, meðmælum frá vinnuveit-
enda og hvort umsækjandi hafi fengið
námsleyfi frá vinnuveitanda. Umsóknar-
frestur er til 20. október og skal skila um-
sókn á skrifstofu skólans og skulu fylgja
henni afrit af prófskírteini vegna sjúkraliða-
náms, starfsferilsskrá og meðmæli frá
vinnuveitenda.
Að þessu sinni verður einungis boðið upp
á námið í staðbundinni kennslu. Næst
verður boðið upp á námið í fjarnámi með
fjarfundasniði á vorönn 2006. Allar nánari
upplýsingar um námið er hægt að finna á
heimasíðu Fjölbrautaskólans við Ármúla /
Heilbrigðisskólans, sjúkraliðabraut, fram-
haldsnám sjúkraliða, www.fa.is og hjá
kennslustjóra sjúkraliðabrautar, netfang
ghr@fa.is eða í síma 5814022.
Skólameistari
18-19 allt/atvinna 25.9.2004 15:54 Page 3