Fréttablaðið - 17.11.2004, Page 1
● málar í frístundum
Alan Borgvardt:
▲
SÍÐA 38
Lykilmaður í Ís-
landsmeistaraliði FH
● verður árlegur viðburður
Hrönn Marinósdóttir:
▲
SÍÐA 30
Alþjóðlega kvikmynda-
hátíðin í Reykjavík
● world cup hófst í gær
Íslenska handboltalandsliðið:
▲
SÍÐA 26
Tap gegn
Þjóðverjum
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
MIÐVIKUDAGUR
ALÞJÓÐADÓMSTÓLAR Málstofa
um þróun á vettvangi alþjóðadómstóla
verður haldin í Lögbergi klukkan 12.15.
Þórdís Ingadóttir, lögfræðingur í dóms-
og kirkjumálaráðuneytinu, mun meðal
annars fjalla um helstu álitaefni sem hafa
risið í tengslum við aukna starfsemi og
aukið umfang alþjóðadómstóla.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
17. nóvember 2004 – 315. tölublað – 4. árgangur
VILJA ÚR BANDALAGINU Stjórnar-
andstaðan krafðist þess á Alþingi í gær að
Ísland segði sig úr bandalagi hinna stað-
föstu í Írak. Sjá síðu 2
UPPSAGNIR KENNARA Kennarar á
Hólmavík og Fáskrúðsfirði hafa sagt upp
störfum. Kennarar um allt land íhuga upp-
sagnir. Ætla að halda uppsögnunum til
streitu náist ekki samkomulag um viðun-
andi laun. Sjá síðu 4
LÉST EFTIR HNEFAHÖGG Danski
hermaðurinn lést vegna heilablæðingar
sem varð vegna höggs á hægri kjálka. Scott
Ramsay hefur játað að hafa slegið mann-
inn. Sjá síðu 6
MILLJÓNIR Í BÆTUR Kvikmyndafyrir-
tækið Sögn var í Héraðsdómi Reykjavíkur í
gær dæmt til að greiða Síldarvinnslunni
73,4 milljónir króna vegna bruna sem varð
í frystihúsinu í Neskaupstað. Sjá síðu 8
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 22
Sjónvarp 28
Sigurður Hreiðar Hreiðarsson:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Saga bílsins
á bók
● bílar
FROST OG VÍÐA ÉL Síst þó suðvestan
til. Víða talsverður vindur með morgninum,
lægir smám saman en búast má við stormi
suðaustan til fram á kvöld. Sjá síðu 4
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
25-50 ára
Me›allestur dagblaða
Allt landið
Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallups október '04
71%
46%
MorgunblaðiðFréttablaðið
SKÓLAMÁL Sveitarfélögin á höfuð-
borgarsvæðinu hafa leitað sam-
eiginlegrar lausnar á deilu kenn-
ara og sveitarfélaganna og eru
sveitarstjórnarmenn bjartsýnir á
að hún sé að leysast samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins. Full-
trúar samninganefndar sveitar-
félaga og kennara voru enn á
fundi seint í gærkvöld þegar
Fréttablaðið fór í prentun. Þá
höfðu þeir setið sleitulaust á fundi
síðan klukkan tíu um morguninn.
Sigurður Geirdal, bæjarstjóri
Kópavogs, segir að reynt verði til
þrautar að semja í dag: „Hvort
tekst að semja er ekki hægt að
segja til um fyrir fram. Ef ekki
semst gerist ekki annað en að það
verður einn dagur enn. Menn ætla
að vinna alla vikuna og leita allra
leiða.“ Undir það tekur Stefán Jón
Hafstein, formaður Fræðsluráðs
Reykjavíkur. Hann væntir mikils
af fundi samninganefndanna í
dag. Hvers sé að vænta vill hann
ekki svara: „Það er rík ástæða
fyrir því að menn tali varlega.
Hún er sú að það vill enginn vera
ábyrgur fyrir því að lestin fari út
af sporinu síðasta spölinn.“
Um helmingur grunnskóla-
kennara í Reykjavík mætti til
starfa í gær. Brestir voru víða í
skólastarfi á höfuðborgarsvæð-
inu. Aðeins einn af þrjátíu kennur-
um Álftanesskóla í Bessastaða-
hreppi mætti. Víða hafa kennarar
sagt upp störfum og hafa hópupp-
sagnir orðið í grunnskólum Mos-
fellsbæjar, Hólmavíkur og Fá-
skrúðsfjarðar. Skólastjórar um
allt land segja kennara slegna.
Grunnskólakennarar ákváðu á
fundum í gær að mæta aftur til
vinnu. Ingunn Snædal, kennari í
Borgarskóla í Reykjavík, segir að
erfitt hafi verið að sannfæra
kennara í mörgum skólum að
mæta aftur til starfa og augljóst
sé að skólastarf geti ekki gengið
með eðlilegum hætti. Kennarar
séu ekki undirbúnir. Þeir geti ekki
unnið eftir úreltum kennslu-
áætlunum.
„Það er bara ekki hægt að taka
upp þráðinn að nýju. Í nauðungar-
vinnu leggur maður ekki á sig
neina sjálfboðavinnu til að bæta
það sem upp á vantar,“ segir Ing-
unn. Það liggi í augum uppi að
ekki verði hægt að halda sam-
ræmd próf í vor: „Ég veit ekki um
neinn sveitarstjórnarmann sem er
tilbúinn að borga kennurum þá
yfirvinnu sem til þarf til að prófin
geti farið fram.“
- gag
Írak:
Hassan
tekin af lífi
ÍRAK, AP Íraskir gíslatökumenn hafa
myrt Margaret Hassan, stjórnanda
hjálparsamtakanna CARE, sam-
kvæmt arabísku sjónvarpsstöðinni
Al-Jazeera. Sjónvarpsstöðin sagðist
í gær vera með
myndbandsupp-
töku af morðinu
undir höndum en
birti hana ekki.
Jihad Ballout,
talsmaður Al-
Jazeera, sagði
sjónvarpsstöðina
hafa fengið upp-
tökuna fyrir
nokkrum dögum.
Nú hafi verið
gengið úr skugga um að kona sem
var skotin í höfuðið á myndbandinu
hafi verið Hassan. Hassan var rænt
í Bagdad 19. október. Engin samtök
hafa lýst ábyrgð á hendur sér. ■
SNJÓ KYNGDI NIÐUR Á SUÐVESTURHORNINU Mikið snjóaði á höfuðborgarsvæðinu í gær, umferðarþunginn var mikill og gat tekið
langan tíma að komast á milli staða. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík voru það helst þeir sem enn voru á sumardekkjum sem töfðu fyrir
ökumönnum á betur búnum bílum. Frá hádegi og fram yfir kvöldmat urðu 25 árekstrar í Reykjavík.
Sveitarstjórnarmenn
eru bjartsýnir á lausn
Kennarar snúa aftur til starfa í dag. Sveitarstjórnarmenn eru bjartsýnir á lausn deilunnar en
segja fátt svo lestin fari ekki út af sporinu síðasta spölinn. Grunnskólakennari segir ekki að vænta
að skólastarf verði með eðlilegum hætti. Í nauðungarvinnu sé ekki unnin sjálfboðavinna.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
MARGARET
HASSAN
Hassan var rænt
19. október síðast-
liðinn.
Falluja:
Umdeild
dráp í mosku
BANDARÍKIN, AP Bandaríski herinn er
að rannsaka hvers vegna bandarísk-
ur hermaður skaut Íraka sem lá
særður inni í mosku í Falluja.
Drápið var sýnt á sjónvarpsstöð-
inni NBC í gær og hefur vakið gríðar-
lega hörð viðbrögð. Á myndunum
sést maðurinn liggja nánast hreyf-
ingarlaus á gólfi moskunnar þegar
hermaðurinn skýtur hann. Bandarísk
hermálayfirvöld segjast ætla að
rannsaka málið með tilliti til þess
hvort hermaðurinn hafi skotið mann-
inn í sjálfsvörn. Af myndunum að
dæma er ekki hægt að sjá að það hafi
verið reyndin. Drápið virðist vera
brot á alþjóðalögum og hefur her-
manninum verið vikið úr starfi á
meðan rannsóknin fer fram. ■
Fundur Davíðs Oddssonar með Colin Powell:
Varnarliðið verður hér
VARNARSAMNINGUR Stórt skref var
stigið í þá átt að varnarliðið í
Keflavík verði áfram hér á landi.
Þetta sagði Davíð Oddsson utan-
ríkisráðherra í viðtali við Ríkis-
sjónvarpið eftir fund hans með
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, í Washington í
gær.
Davíð sagði að ákveðið hefði
verið að halda viðræðunum
áfram í janúar en þá munu emb-
ættismenn ríkjanna funda. Á
þeim fundi verður gengið form-
lega frá því hvernig vörnum Ís-
lands verður háttað í samræmi
við varnarsamning ríkjanna.
Davíð sagði að Powell hefði gefið
það sterklega til kynna að ekki
kæmi til greina að taka varnarlið-
ið héðan.
Fundur Davíðs með Powell
hófst í gær klukkan 18.30 að ís-
lenskum tíma og lauk skömmu
eftir klukkan 19. Davíð mun næst
hitta utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna á ráðherrafundi Atlants-
hafsbandalagsins í desember. ■
RÁÐHERRAR HEILSAST
Davíð Oddsson utanríkisráðherra fundaði
með Colin Powell í gær.
01 Forsíða 16.11.2004 22:39 Page 1