Fréttablaðið - 17.11.2004, Síða 10
17. nóvember 2004 MIÐVIKUDAGUR
Falluja:
Stríðsglæpur í rannsókn
AFP/CBS/AP Bandaríski herinn
sagði í gær að rannsókn væri
hafin á ásökun um að hermaður
hefði skotið til bana óvopnaðan,
særðan mann, þar sem hann lá í
mosku í Falluja.
„Hermaðurinn hefur verið
fjarlægður af vígvellinum á með-
an beðið er niðurstöðu rannsókn-
ar,“ sagði í tilkynningu frá
hernum. Rannsaka á hvort her-
maðurinn brást við í sjálfsvörn,
hvort hann braut herlög eða gegn
alþjóðareglum um stríðsátök. Á
mánudag sýndu bandarískar
sjónvarpsstöðvar myndir af því
þegar herdeildin kom inn í mosk-
una þar sem nokkrir vígamenn
lágu særðir og látnir. Önnur her-
deild bandaríska hersins hafði
deginum áður náð yfirráðum yfir
svæðinu en skildi særða eftir á
meðan bardagar voru enn í gangi.
Seinni herdeildin vissi ekki af
því.
Á CBS News mátti heyra sam-
tal hermannanna, þar sem einn
segir að vígamaður sé að þykjast
vera dauður, og annar bætir við
„hann andar“. Þá sést hermaður
skjóta manninn og svo heyrist
„hann er dauður“.
Samkvæmt Genfarsáttmálan-
um skulu særðir og þeir sem hafa
lagt niður vopn sín njóta mannúð-
legrar meðferðar. ■
Menn eiga að
hlýða lögum
Lög eiga að ganga jafnt yfir alla og allir eiga hlýða lögum, hvort sem
um olíufursta eða kennara er að ræða. Verkfall kennara er bannað.
Kennarar eiga að mæta í vinnu. Annars gilda viðurlög samkvæmt lögum.
KENNARADEILAN Í lögum eru
ákvæði um viðurlög sem geta
komið til greina ef fjarvera kenn-
ara undanfarna daga telst brot á
lögum. Starfsmanni er t.d. skylt
að vinna án endurgjalds yfirvinnu
allt að tvöföldum þeim tíma sem
hann hefur verið frá starfi án
gildra forfalla og hlíta því að
dregið sé af launum sem því nem-
ur. Einnig getur komið til brott-
vikningar um stundarsakir eða
fyrir fullt og allt. Óljóst er hvort
skólayfirvöld muni ganga svo
langt að krefjast refsingar yfir
þeim kennurum sem hafa gerst
brotlegir við lög.
Verkföll og aðrar aðgerðir til
að knýja fram aðra skipan kjara-
mála en lög ákveða eru óheimil
samkvæmt lögum ríkisstjórnar-
innar sem sett voru til að stöðva
verkfall kennara. Sigurður Líndal
lagaprófessor segir ljóst að verk-
fallið hafi verið bannað og kenn-
arar verði því að sanna veikindi
sín með læknisvottorði og eigi þá
þann rétt. Annars sé um lagabrot
að ræða.
„Auðvitað er óþolandi að menn
komist upp með að brjóta lögin
jafnvel þó að þeir séu á móti lög-
unum. Menn eiga að hlýða lögun-
um. Ég held að það sé mjög sjald-
gæft að menn brjóti svona lög,“
segir Sigurður. „Mér finnast þessi
hópveikindi ekki mjög sannfær-
andi. Þó að kennarar segist vera
miður sín og illa farnir á taugum
þá trúi ég því ekki að þeir séu
svona illa farnir. Það er ekki eins
og það sé verið að svelta þá. Ef
þeir syltu og þyrftu að leggjast í
ólöglegar aðgerðir til að bjarga lífi
sínu þá gildir kannski öðru máli en
ég held það sé kannski óþarfi að
velta slíku fyrir sér.“ - ghs
■ ASÍA
– hefur þú séð DV í dag?
ÞRIGGJA BARNA MÓÐIR SVIPTI
SIG LÍFI Í KVENNAFANGELSINU
GAT EKKI GREITT SEKT
OG VAR STUNGIÐ INN
INDVERJAR FÆKKA Í KASMÍR Ind-
verski herinn hefst fljótlega
handa við að fækka hermönnum í
Kasmír. Fækkunin er í samræmi
við yfirlýsingu Manmohan Singh
forsætisráðherra sem sagði á
dögunum að friðvænlegra væri í
héraðinu en áður. Búist er við að
fækkað verði um 15 þúsund her-
menn.
KÍNVERJAR BIÐJAST AFSÖKUNAR
Kínverjar hafa beðið Japana af-
sökunar á því að kjarnorkukaf-
bátur þeirra sigldi inn í japanska
lögsögu án þess að tilkynnt væri
um það. Japanar sögðust taka af-
sökunarbeiðnina góða og gilda og
að atvikið hefði engin eftirmál.
LÖGGA BANAÐI TVEIMUR Lög-
reglumaður skaut tvo menn til
bana í þorpinu Weimo í Yunnan-
héraði í suðvestanverðu Kína.
Lögreglumaðurinn var á mótor-
hjóli og keyrði á vegfaranda. Í
stað þess að biðjast afsökunar
öskraði lögreglumaðurinn á veg-
farandann, upphófust deilur sem
lauk með því að lögreglumaður-
inn skaut manninn sem hann
keyrði á og annan vegfaranda.
SIGURÐUR LÍNDAL
„Ég fæ ekki betur séð en að þetta sé mjög nærri því að vera ólöglegt,“ segir hann.
LÖGREGLMÁL Efnahagsbrotadeild
ríkislögreglustjóra hefur aðeins
mannafla til að vinna að rannsókn
mála sem berast henni með kær-
um en getur ekki hafið rannsókn
mála að eigin frumkvæði. Þetta
kom fram í svari Björns Bjarna-
sonar dómsmálaráðherra við fyr-
irspurn Jóhönnu Sigurðardóttur
alþingismanns.
Dómsmálaráðherra telur hins
vegar að það væri æskilegt að
efnahagsbrotadeildin gæti sjálf
hafið rannsókn mála vegna eðlis
þeirra málaflokka sem hún fæst
við. Brotaþolar eigi í flestum til-
vikum erfitt með að gæta sjálfir
réttar síns, ekki síst eigendur lít-
ils hluta hlutafjár, aðilar að lífeyr-
issjóði, skattgreiðendur og greið-
endur vöru og þjónustu sem ekki
eru í aðstöðu til að gæta réttinda
sinna, til dæmis með því að vekja
athygli yfirvalda og kæra til lög-
reglu.
Þá kemur fram í svarinu að
dráttur á rannsókn mála hafi
nokkrum sinnum leitt til þess að
refsingar voru mildaðar. Umfang
mála hafi aukist mikið en starfs-
fólki sem sinnir rannsóknum
fjölgaði úr tíu í fjórtán frá árinu
2001 til 2003. - ghg
SÆRÐUR MAÐUR FELLDUR
Myndin er af myndbandi CNN sem sýndi
þegar hermaðurinn beindi vopni sínu að
tveim særðum Írökum. Ekki var sýnt þegar
skotið reið af.
EMBÆTTI RÍKISLÖGREGLUSTJÓRA
Dráttur á rannsókn mála hefur nokkrum
sinnum leitt til þess að refsingar voru
mildaðar.
Efnahagsbrotadeild:
Getur ekki rannsakað
mál að eigin frumkvæði
10-11 16.11.2004 21:17 Page 2