Fréttablaðið - 17.11.2004, Síða 12
12 17. nóvember 2004 MIÐVIKUDAGUR
Stjórnmálaflokkar:
Vill opið bókhald
STJÓRNMÁL Bókhald stjórnmála-
flokka á að vera opið og aðgengilegt
að mati Ólafs Ólafssonar, stjórnar-
formanns Samskipa. Hann telur það
setja fyrirtæki í erfiða stöðu þegar
þau styðja félagsstarf þar sem eitt-
hvert pukur er í gangi. „Alþingi á að
taka það upp hjá sjálfu sér að skýra
leikreglurnar þannig að það sé ekki
verið að hringja í fyrirtæki úti í bæ
til að spyrja hvort þau hafi styrkt
stjórnmálaflokkana. Upplýsingar
um það eiga ekki að vera leyndar-
mál því það kallar bara á tortr-
yggni.“ ■
Átök milli lögreglu og íbúa þegar hús voru rýmd:
Hrakin burt
með valdi
KÍNA, AFP Ein kona slasaðist og var
borin alblóðug út af heimili sínu
þegar til átaka kom í Peking.
Hundrað lögreglumenn og fjöldi
aðstoðarmanna þeirra báru fólk
út af heimilum sínum svo rífa
mætti húsin og byggja fjölbýlis-
hús í þeirra stað.
Algengt er að hús fólks í borg-
um Kína séu hrifsuð af fólki og
þau rifin til að rýma til fyrir nýrri
byggð. Þrátt fyrir að ný lög hafi
verið sett í mars til að verja hag
húseigenda er enn mikið um að
brotið sé á rétti þeirra. Fólk fær
lágar bætur fyrir hús sín, iðulega
einungis þriðjung til helming þess
sem húsnæði á svipuðum slóðum
kostar. Fólk neyðist því til að
flytja úr miðborgum í ódýrt
húsnæði í úthverfum.
Um þúsund manns bjuggu í hús-
unum sem byrjað var að rífa í gær.
Húsin eru einnar hæðar og öll
komin til ára sinna, byggð fyrir
hundrað árum eða meira. Mörg
húsin hafa verið í eigu sömu fjöl-
skyldnanna kynslóð eftir kynslóð
og því í einkaeign ólíkt meirihluta
þeirra húsa sem hafa verið rifin.■
Norður Kórea:
Kim Jong Il
tekinn niður
AP Eftir því sem rússneska
fréttastofan ITAR-Tass segir frá,
er verið að fjarlægja myndir af
leiðtoga Norður-Kóreu, Kim
Jong Il. Ekki er ljóst af hverju
myndir af honum ættu að vera
teknar niður. Fréttastofan hefur
eftir diplómat í Norður-Kóreu,
sem segir að í nýlegri veislu
utanríkisráðuneytisins hafi ein-
ungis hangið uppi myndir af
föður Kim, Kim Il Sung heitnum.
„Ferkantaður blettur og nagli í
veggnum voru einu ummerkin
þar sem mynd af Kim Jong Il
áður hékk,“ er haft eftir
diplómatinum. ■
Siglinganefnd:
Jöfn skipting
milli kynja
HEILBRIGÐISMÁL Jöfn skipting
kynja er í nýskipaðri siglingan-
efnd Tryggingastofnunar ríkis-
ins.
Á fyrsta fundi nýrrar stjórn-
ar stofnunarinnar var skipað í
nefndina sem metur hvort
brýna nauðsyn beri til að senda
fólk utan til læknisaðgerða.
Kona hefur ekki áður setið í
siglinganefnd sem aðalmaður.
Af fimm aðalmönnum eru nú
tvær konur og þrjár konur af
fimm varamönnum.
Einnig var gengið frá skipan
fulltrúa Tryggingastofnunar í
samninganefnd heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytis og þar
verður einnig jöfn skipting milli
kynja.
- jss
Vín með jólamatnum
2004
Vínsýning á Nordica Hotel
20.-21. nóvember
Vínsýning verður haldin á Nordica Hotel 20.-21.
nóvember, kl. 14-18 báða dagana, á vegum
Vínþjónasamtaka Íslands og Vínbúða. Aðgangseyrir
er 1000 kr. og Riedel-glas fylgir með á meðan
birgðir endast.Aldurstakmark er 20 ár.
NRK, AFTENPOSTEN Samkvæmt nýrri
skoðanakönnun í Noregi, sem gerð
var fyrir norska Ríkisútvarpið og
Aftenposten, segist meira en helm-
ingur Norðmanna vilja ganga í
Evrópusambandið. Af þeim sem
tóku afstöðu svöruðu 56 prósent
því játandi að ganga í ESB en 44
prósent vilja það ekki. Ef einnig er
tekið tillit til þeirra sem ekki hafa
tekið afstöðu segja 48 prósent já,
38 prósent nei, en 13 prósent eru
óákveðin.
Síðasta skoðanakönnunin um
afstöðu Norðmanna til Evrópusam-
bandsins var gerð í ágúst. Þá voru
16 prósent óákveðin og hefur þeim
því fækkað nokkuð. Af þeim sem
taka afstöðu hefur skoðun Norð-
manna lítið breyst frá því í ágúst,
þegar 55 prósent voru því fylgjandi
að ganga í Evrópusambandið en 45
prósent voru á móti. Helst eru það
karlar og fólk á aldrinum 30-44 ára
sem er jákvæðast gagnvart inn-
göngu í ESB. Einnig kemur það
fram að 20 prósent af þeim sem
kusu gegn aðild í þjóðaratkvæða-
greiðslunni 1991 vilja nú ganga í
ESB. Fimm prósent þeirra sem
kusu með aðild 1994 hafa nú skipt
um skoðun. ■
Noregur:
Meirihluti vill inn
ÓLAFUR ÓLAFSSON
Segir fyrirtæki í erfiðri stöðu þegar pukur
sé í kringum fjármál stjórnmálaflokkanna.
EVRÓPUSAMBANDSAÐILD
Stuðningur við Evrópusambandsaðild fer
aftur vaxandi í Noregi eftir að ný aðildar-
lönd bættust við.
HÚS RIFIN Í PEKING
Húsin sem fólkið var flæmt úr voru upphaflega reist sem hermannabústaðir í kringum
þarsíðustu aldamót.
» BETRI SJÓNVARPSDAGSKRÁ Á MIÐVIKUDÖGUM
12-13 16.11.2004 19:21 Page 2