Fréttablaðið - 17.11.2004, Qupperneq 14
14
TÍU MANNS VORU SKRÁÐIR Í
BAPTISTAKIRKJUNA Á ÍSLANDI UM
SÍÐUSTU ÁRAMÓT.
SEX KONUR OG FJÓRIR KARLAR.
Samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar.
SVONA ERUM VIÐ
„Mér finnst þetta vera geðveiki. Ég
hef einu sinni farið til Vestmannaeyja
og ef mig langaði óskaplega aftur þá
gæti ég alveg eins flogið eða tekið
ferju,“ segir Gunnar Lárus Hjálmars-
son, tónlistarmaður, einnig þekktur
sem Dr. Gunni. Hann telur út úr öllu
korti að leggja í ógnarkostnað við að
leggja jarðgöng milli lands og Eyja.
„Þetta er fínasta eyja og allt það, en
27 milljarðar í göng eru bara geð-
veiki. Íbúarnir verða þá að borga
sjálfir. Það er enginn að biðja þetta
fólk að búa þarna,“ segir hann og
bætir við göngin séu „fáránlegt rugl“.
Gunnar Lárus er þó ekki afhuga jarð-
göngum í sjálfu sér og bendir á að
Hvalfjarðargöngin nýtist mörgum og
séu mikil samgöngubót. „En þessi
göng myndu ekki nýtast öðrum en
Vestmannaeyingum. Hvað hefur
maður svo sem að gera til Vest-
mannaeyja?“ spyr hann og hlær. „Það
var fín upplifun á sínum tíma að
koma þarna inn með Herjólfi.“
GUNNAR LÁRUS HJÁLMARSSON
Göng eru
geðveiki
GÖNG TIL EYJA
SJÓNARHÓLL
Það verður tómlegt í fjárhúsunum hjá
Margréti Kristjánsdóttur í Árgerði í
Skagafirði í vetur. Í sumar sem leið
þurfti að skera niður allt sauðfé á bæn-
um vegna riðu, samtals um 500 fjár.
Þar af voru um 200 fullorðnar ær. Hún
hefur enn ekki ákveðið hvort hún hefur
sauðfjárbúskap á nýjan leik, eða fær sér
einungis fáeinar ær til heimilisnota.
Riða hafði áður komið upp á bænum,
árið 1985.
„Eftir það fengum við fé af Ströndum,“
segir Margrét. „Þar er sterkur stofn, en
féð var orðið blandað af sæðingastöðv-
arhrútum. Á þeim stöðvum eiga að vera
góðir hrútar, en ég held að þeir hafi
ekki verið valdir með riðuna í huga. Féð
getur verið misjafnlega næmt fyrir
henni, þannig að mér finnst að þeir
hefðu getað veikt mótstöðuna í mínum
kindum. Þetta er nú mín persónulega
skoðun.
Það þurfa að líða tvö ár þar til taka má
fé aftur,“ heldur hún áfram. „Það er
óttalega tómlegt og eyðibýlislegt að láta
fjárhúsin standa auð, en svo verður það
að vera.“
Næsta skref er að rífa allt tréverk út úr
fjárhúsunum í Árgerði og sótthreinsa
þau í hólf og gólf. Þess utan er Margrét
í hlutavinnu í sláturhúsinu og svo segist
hún vera „handavinnukerling“. Auk
þessa er hún skógarbóndi. Í sumar setti
hún niður yfir 9.000 trjáplöntur í sam-
starfi við Norðurlandsskóga. Um var að
ræða lerki, ösp, birki og reyni. Þetta er
þriðja árið sem hún setur niður og elstu
plönturnar eru orðnar nær metra háar.
„Það verður nóg að gera hjá mér í vetur
og það er frekar að mig vanti fremur
tíma heldur en hitt,“ segir hún. „En
auðvitað kemur ekkert í staðinn fyrir
féð.“
Tómlegt í fjárhúsunum í vetur
EFTIRMÁL: MARGRÉT KRISTJÁNSDÓTTIR HÚSFREYJA Í ÁRGERÐI
17. nóvember 2004 MIÐVIKUDAGUR
Áfellisdómur
yfir ráðakonum
Eftirvænting ríkti meðal foreldra og nemenda í Austurbæjarskólanum í gærmorgun þegar for-
eldrar komu með börnin í skólann. Þau biðu í ofvæni meðan foreldrar ræddu ástandið í skóla-
málunum. Margir höfðu hringt fyrr um morguninn til að kanna hvort kennsla færi fram.
Stefán Jónsson leikstjóri fylgdi
átta ára syni sínum, Jóni Gunnari,
í skólann. Til viðbótar á hann tvo
stráka, 10 og 12 ára, í skólanum og
var kennsla þegar hafin hjá þeim.
„Það var glundroði hér í gær því að
þá voru ekki svo margir kennarar
mættir en í dag virðast kennarar
ætla að mæta,“ sagði hann eftir að
kennsla var hafin í bekknum hjá
syni hans. „Þetta er ömurlegt.
Margir upplifa þetta verkfall eins
og tímaskekkju. Það er að koma á
daginn hversu mikið sýndarvel-
ferðarkerfi ríkir hér á landi. Við
þykjumst og viljum telja okkur í
hópi Norðurlandanna en í raun og
veru erum við eftirbátar hinna
Norðurlandanna og erum alltaf
frekar að teygja okkur meira til
Bandaríkjanna í hugsunarhætti.“
Eirðarleysi og doði
„Kennarastéttin er kvennastétt og
það virðist ekki hjálpa þeim frekar
en fyrri daginn. Og kannski dálítill
áfellisdómur yfir þeim konum sem
hafa þó einhver völd í bæjarstjórn-
um víða um land. Margar konur
eru bæjarstjórar og menntamála-
ráðherra er náttúrulega kona líka.
Það er svo sem voðalega auðvelt
fyrir ríkið að hafa hent þessum
skólum yfir í sveitarfélögin og
vilja svo ekki kannast við króg-
ann.“
Stefán sagði
barnagæsluna
leysta í verkfall-
inu með því að
vera með krakk-
ana í vinnunni
og svo hafi börn
komin á ákveð-
inn aldur gengið
sjálfala. „Maður
hefur reynt að
halda þeim réttu
megin við lín-
una. Þeir eru
ekki farnir að
brjóta lög eða
neitt svoleiðis,“
sagði hann og
taldi börnin
hafa „skemmt
sér konunglega.
En svo hefur
reyndar komið
leiði í strákana.
Dagarnir eru
langir, það er
eirðarleysi, leti
og doði sem hef-
ur sest í þá. En
þetta er bara
búið að vera
ö m u r l e g t
ástand og okkur
öllum til háborinnar skammar að
láta þetta viðgangast.“
Vonar það besta
Ævar Ísberg, starfsmaður Ríkis-
skattstjóra, fylgdi Karitas, sjö ára
dóttur sinni, í Austurbæjarskólann
í gærmorgun. „Við höfum getað
bjargað okkur í verkfallinu og
höfum ekki lent í neinum vandræð-
um. Þetta er kjarabarátta kennara
og maður verður bara að sætta sig
við það,“ sagði
hann og taldi
flesta foreldra
skilja og styðja
k j a r a b a r á t t u
kennara þó að
ástandið í vik-
unni hefði komið
mismunandi illa
við fólk. „Ég
styð að sjálf-
sögðu kjarabar-
áttu kennara þó
að ástandið sé
hundfúlt. Við
verðum bara að
taka því.
Anna Sigur-
veig Magnús-
dóttir tölvunarfræðingur skaust
með dóttur sína, Þórunni Dís Hall-
dórsdóttur, 6 ára, í skólann í gær.
„Mér líst ekkert á þetta lengur,“
sagði hún. „Þetta verkfall hefur
tekið alltof langan tíma. Við mætt-
um hérna í gær [á mánudag] til að
vera bara snúið við. Sex ára börn
eru ofsalega vonsvikin að vera
send til baka. Ég vona bara að
ástandið leysist með þessum lög-
um, það verði kennsla næstu mán-
uði og tíminn geri það að verkum
að það verði hægt að semja al-
mennilega við kennara. Það er
kannski borin von, ég veit það
ekki, en maður vonar það besta,“
sagði hún. ghs@frettabladid.is
4,2%
Kynntu þér kostina við íbúðalán
Landsbankans. Fáðu ráðgjöf hjá
sérfræðingum okkar og veldu
leiðina sem hentar þér best. Hafðu
samband í síma 410 4000 eða á
fasteignathjonusta@landsbanki.is
410 4000 | landsbanki.is Banki allra landsmanna
Íbúðalán
BEKKJARSYSTURNAR TELMA JÓHANNESDÓTTIR OG HARPA HJARTARDÓTTIR, 6 ÁRA.
Þær biðu í ofvæni við hurðina að stofunni í Austurbæjarskólann í gærmorgun.
ANNA SIGURVEIG
MAGNÚSDÓTTIR
OG ÞÓRUNN
DÍS HALLDÓRS-
DÓTTIR.
„Mér líst ekkert á
þetta lengur,“ sagði
Anna.
FEÐGARNIR STEF-
ÁN JÓNSSON OG
JÓN GUNNAR
STEFÁNSSON
Áður en kennsla
hófst hjá Jóni Gunn-
ari í gærmorgun.
Helmingur kennara mætti til
kennslu í Austurbæjarskóla á
mánudag og helmingur sat
heima. Í gær voru flestallir kenn-
arar mættir og kennsla hafin á ný
þó að margir kennarar hafi verið
ósáttir og flestum hafi liðið illa
vegna lagasetningar ríkisstjórn-
arinnar. Von er
á uppsögnum í
Austurbæjar-
skóla eins og
fleiri skólum út
um allt land í
dag og næstu
daga.
Arnljót Ív-
arsdóttir er
deildarstjóri
yngsta stigs og
umsjónarkenn-
ari í þriðja
bekk. „Ég hef
lítið heyrt í
kennurum í
morgun þannig
að það er ekki
hægt að segja
hvernig við-
horf þeirra eru í dag en hér eru
langflestir mættir. Við tókum
einarða afstöðu á tveimur sunnu-
dagsfundum að sýna einhvers
konar mótmæli í gær en það
verður ekki meir. Hér reiknum
við með eðlilegu skólahaldi frá og
með deginum í dag,“ sagði hún í
gær.
„Það eru margir að íhuga upp-
sagnir og það eru ekki bara
sýndaruppsagnir heldur upp-
sagnir sem fólk er búið að íhuga
mjög lengi vegna þess að því
finnst mælirinn vera orðinn full-
ur. Fólki sem hefur kennt hérna
mjög lengi finnst nóg komið.
Þetta tengist líka kvennabaráttu
því að þetta er kvennastétt og
mörgum konum finnst þær þurfa
að rísa upp.“ - ghs
ARNLJÓT ÍVARS-
DÓTTIR „Það eru
margir að íhuga upp-
sagnir,“ sagði hún í
gær. „Fólki sem hefur
kennt hérna mjög
lengi finnst nóg
komið.“
ÆVAR ÍSBERG OG
DÓTTIR HANS
KARITAS
Á leið í skólann í
gær.
Austurbæjarskóli:
Konur
rísa upp
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
SÓTTHREINSUN
Fyrir liggur að rífa allt tréverk út úr fjárhús-
unum í Árgerði og sótthreinsa þau, segir
Margrét Kristjánsdóttir sem hér stendur í
auðu húsunum.
14-15 (24 klst) 16.11.2004 19:26 Page 2