Fréttablaðið - 17.11.2004, Blaðsíða 22
Ef þú ert að selja bílinn þinn vertu þá hreinskilin/n.
Ef einhver hringir til að spyrja um hann segðu viðkomandi allt sem hann
þarf að vita svo hann verði ekki hissa þegar hann sér bílinn. Þannig sparar
þú mikinn tíma og vesen.[ ]
Verð kr. 39,900.-
Ný námskeið vikulega, staðsetning Mjódd
Sími: 894-2737
www.ovs.is
Vinnuvélanámskeið
Öryggis-
hurðir
B Í L S K Ú R S
OG IÐNAÐAR H U RÐ I R
Smíðað
eftir máli
Hurðir til
á lager
Eldvarnar-
hurðir
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
Kassi á fjórum hjólum
Sigurður Hreiðar Hreiðarsson höfundur bókarinnar Saga bílsins á Íslandi 1904-2004 segir
ekkert tæki hafa breytt íslensku þjóðfélagi jafnmikið og bíllinn.
Sigurður Hreiðar Hreiðarsson skrifaði bókina Saga bílsins á Íslandi 1904-2004 og segir það vera eitthvað sem hann hafi lengi
langað til að gera.
„Fyrsti bíllinn átti raunarsögu hér
á landi og leist fólki ekkert á þetta
fyrirbæri,“ segir Sigurður Hreið-
ar en sá bíll var kallaður Thomsen
bíllinn þar sem hann var í eigu
Ditlev Thomsen sem fékk leyfi til
að flytja hann til landsins. Bíllinn
var ófullkominn og hentaði engan
veginn fyrir íslenska vegi og var
sendur út aftur. Hinsvegar er öld-
in önnur í dag og nú getur fólk
ekki lifað án bílsins. „Við þurfum
nú ekki annað en að hugsa til þess
hvernig allt væri hérna ef bílnum
yrði kippt í burtu,“ segir Sigurður
Hreiðar og brosir.
„Ég staðhæfi að ekkert eitt
tæki hefur breytt íslensku þjóðlífi
eins mikið og bíllinn hefur gert,
og held ég að enginn treysti sér að
andmæla því,“ segir Sigurður
Hreiðar sem sjálfur er mikill bíla-
karl eins og gefur að skilja. „Ég er
nú ekki einn af þeim sem er að
eignast bíla og gera mikið við þá.
Ég á yfirleitt aldrei nema einn bíl
í einu,“ segir Sigurður Hreiðar
sem ekur nú á Renault Laguna.
„Það er bíll sem hentar mér af-
skaplega vel og er hann þægileg-
ur og góður í rekstri, en það eru
nú eiginlega þær kröfur sem ég
geri til bíls,“ segir Sigurður
Hreiðar og minnist á að bíllinn
hefur í grundvallaratriðum lítið
breyst í gegnum söguna. „Vélin er
með mjög svipuðum hætti þó að
aflútfærslan til hjólanna hafi
kannski tekið svolitlum framför-
um. Í grunninn er þetta bara kassi
á fjórum hjólum,“ segir Sigurður
Hreiðar. kristineva@frettabladid.is
Toyota Prius, sem var kynntur
hér á landi í nýrri útfærslu í vor,
hafði mikla yfirburði yfir hina
sex bílana sem kepptu um titilinn.
Toyota Prius er aðeins öðruvísi
en aðrir tvinnbílar þar sem hann
hefur tvær vélar; eina bensínvél
og einn rafmótor. Þessar tvær vél-
ar eru undir húddinu og vinna
saman. Við akstur verður til tölu-
verð orka í venjulegum bílum og
breytir Toyota Prius þessari orku
í rafmagn sem síðan knýr bílinn
áfram ásamt bensínvélinni. Þetta
þýðir að bíllinn eyðir 4,1 lítra á
hverja hundrað kílómetra sem er
um helmingur á við aðra bíla í
sama stærðarflokki.
Toyota Prius hefur verið á
markaði frá 1997. Góð reynsla
hefur verið af bílnum og mun
Toyota nýta mikið af þeirri tækni
sem þróuð hefur verið í Prius í
aðrar gerðir bíla á næstu árum.
Toyota Prius bíll ársins
Toyota Prius hefur verið valinn bíll ársins 2005 í Evrópu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
Hitaáklæði í
bílinn
Notalegt og notadrjúgt.
Það dimmir fljótt á Klakanum og
hitinn farinn að detta langt niður
fyrir það sem góðu hófi gegnir.
Kaldast er þó á kvöldin og á morgn-
ana og ekki skemmtilegt að mæta
kaldur og pirraður til vinnu eða
skóla vegna þess að miðstöðin
virkar ekki.
Hiti í sætum er eitthvað sem er
staðalbúnaður í mörgum nýjum bíl-
um. En hvað með gömlu drusluna
sem okkur þykir svo vænt um og
viljum alls ekki henda - en viljum
samt hita í sætin? Hvað eigum við
að gera við hana?
Í Á. G. Mótorsport að Klettahálsi 9 í
Reykjavík er hægt að kaupa sér
sniðugan búnað sem vermir kropp-
inn frá hvirfli til ilja. Um er að ræða
áklæði sem kemur í einni stærð og
passar á öll sæti í bílum. Áklæðið er
tengt við sígarettukveikjarann í bíln-
um og slekkur þar af leiðandi sjálf-
krafa á sér þegar drepið
er á bílnum. Þetta er því
afskaplega einfaldur
búnaður sem hver
sem er getur komið
fyrir.
Áklæðið er hægt
að fá í gráu og
kostar það um
4.900 krón-
ur. Gæti
það verið
notalegra?
Frá Toyota Prius kemur um einu tonni minna af koltvísýringi á ári en frá venjulegum
bíl.
Áklæðið passar á hvaða sæti sem er
og er afskaplega einfalt í notkun.
22-23 bílar ofl (02-03) 16.11.2004 19:34 Page 2