Fréttablaðið - 17.11.2004, Qupperneq 29
Haftasinna minnst
Alvarlegustu afskipti stjórnmálamanna
af olíuviðskiptunum á síðustu öld voru
auðvitað áratugalöng verðstýring og
svo sameiginleg opinber olíuinnkaup
frá Sovétríkjunum. Þeim lauk ekki fyrr
en eftir að verðlagslögin voru afnumin
í tíð fyrstu ríkisstjórnar Davíðs Odds-
sonar. Jón Baldvin Hannibalsson og
Alþýðuflokksmenn mega eiga það að
þeir tóku þátt í því með Sjálfstæðis-
flokknum að afnema verðlagshöftin.
Ólafur Ragnar Grímsson, Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir, Steingrímur J. Sigfús-
son, Steingrímur Hermannsson, Mar-
grét Frímannsdóttir og Jóhann Ársæls-
son sáu sér hins vegar ekki fært að
styðja það mál. Alþýðuflokksmenn
reyndu hins vegar hvað þeir gátu til að
koma í veg fyrir að ríkisbankarnir væru
seldir frá stjórnmálamönnunum. Eftir
að Samfylkingin var stofnuð reyndu
þingmenn hennar áfram að koma í veg
fyrir einkavæðingu bankanna með öll-
um ráðum. Sjálfstæðisflokkurinn þurfti
atbeina Framsóknarflokksins til að
koma bönkunum undan pólitíkus-
unum.
Af Andriki.is
Segja fjölmiðlar satt?
Þrátt fyrir að við kvörtum oft yfir óvönd-
uðum vinnubrögðum íslenskra
fjölmiðla má segja að í seinni tíð taki
þeir ekki skýra afstöðu með einum
stjórnmálaflokki frekar en öðrum.
Vissulega hneigjast sumir miðlar í
ákveðna átt þótt allir gefi þeir sig út fyrir
að vera hlutlausir. Líklega hefur Morg-
unblaðið gengið lengst í því að taka
skýra afstöðu í viðkvæmum málum
þótt Fréttablaðið hafi tekið upp svipaða
stefnu. Þessi stefna kemur fyrst og
fremst fram í leiðaraskrifum eða
viðhorfsgreinum blaðanna.
Sumir telja að þess konar vinnubrögð
þýði að draga eigi fréttaflutning þessara
sömu miðla í efa, að hlutleysi þeirra sé
þar með ógnað. Aðrir telja að fjölmiðl-
ar geti aldrei verið hlutlausir, því frétta-
val og þar með fréttaflutningur ein-
kennist alltaf af viðhorfi þeirra sem
fréttirnar skrifa. Eiga frétta- og blaða-
menn að gefa upp afstöðu sína í
ákveðnum málum? Er þeim frekar
treystandi ef við vitum hvar þeir standa
í pólitík?
Baldvin Þór Bergsson á deiglan.com
Fólkið sem aldrei var til
Bandaríkjamenn segjast nú vera búnir
að murka lífið úr 1200 vígamönnum í
Fallúdja, en hafa misst 38 hermenn.
Óbreyttir borgarar teljast ekki með
enda allir löngu búnir að gefast upp á
að telja þá. Því að ef við teljum ekki
fólkið þá er það kannski ekki dáið og
var kannski aldrei til. Þessum rökum
hlíta allar fréttastofur á Vesturlöndum.
Allar með tölu, því að enginn er sendur
á vettvang til að telja fólkið sem
Bandaríkjastjórn sér ekki ástæðu til að
telja. Breska blaðið Lancet sagði raunar
frá könnun bandarískra lækna á þessu
og þeir töldu 100.000 látna vegna
stríðsins. Sú tala er há en samt fékk
fréttin engin viðbrögð. Því að þó að við
fáum einhverja tölu þá eru mannslífin
samt í þriðja heiminum og innst inni
trúum við ekki að líf þessa fólks hafi
haft nokkuð gildi. „Shit happens“ á
þessum slóðum.
Sverrir Jakobsson á murinn.is
Alþjóðaviðskipti til góðs
Í rannsókn á vegum National Bureau
of Economic Research skoðuðu Eric
Edmonds og Nina Pavcnik áhrif auk-
innar alþjóðaverslunar í Víetnam. Árið
1993 ákváðu stjórnvöld í Víetnam að
afnema höft á útflutning hrísgrjóna.
Afleiðingin var tvöföldun í útflutningi á
hrísgrjónum á árunum 1993 - 1998
sem og 30% hækkun á verði til
innlendra framleiðenda. Hrísgrjóna-
framleiðslan í Víetnam er að mestum
hluta í höndum bænda á litlum búum
þar sem fjölskyldan öll tekur þátt í
uppskerunni. Í kjölfar hækkandi verðs
óttuðust margir að afleiðingin yrði sú
að fleiri börn yrðu kölluð heim úr
skóla og send á akrana. Í raun gerðist
það öfuga. Aukinn kaupmáttur bænda
gaf þeim tækifæri til að láta börn sína
hætta vinnu á ökrunum og senda þau
í skóla. Afleiðingin var sú að um 9%
vinnandi barna gátu hættu vinnu og
farið í skóla, eða um 2.2 miljónir. Um-
skiptin urðu mest hjá þeim börnum
sem hvað mest unnu, stúlkur á aldrin-
um 14 - 15 ára.
Ýmir Örn Finnbogason á frelsi.is
MIÐVIKUDAGUR 17. nóvember 2004
DAGGARVELLIR 6A OG 6B, HAFNARFIRÐI
Lynghálsi 4 • 110 Reykjavík • akkurat@akkurat.is • www.akkurat.is • Halla Unnur Helgadóttir löggiltur fasteignasali
Akkurat fasteignasala er með í einkasölu á þessum eftirsótta
stað 28 íbúðir í nýju húsi.
Fimm 2ja herb. Verð frá 13,5 millj. - 13,7 millj.
Tíu 3ja herb. Verð frá 15,8 millj. - 16,9 millj.
Þrettán 4ra herb. Verð frá 16,5 millj. - 18,9 millj.
Íbúðirnar skilast fullbúnar án gólfefna.
Vandaðar eikarinnréttingar frá HTH. Vegghengd salerni.
Þvottahús innan íbúða. Tæki frá AEG.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR, TEIKNINGAR OG SKILALÝSINGAR ER AÐ FÁ Á
SKRIFSTOFU AKKURAT AÐ LYNGHÁLSI 4 EÐA Á www.akkurat.is 594-5000
Á LAUGARDÖGUM
Smáauglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is
AF NETINU
20-29 Leiðari (20-21) 16.11.2004 18:59 Page 3