Fréttablaðið - 17.11.2004, Blaðsíða 37
29MIÐVIKUDAGUR 17. nóvember 2004
Usher hefur látið gera jakka fyrirsig með nákvæmri eftirmynd af
húðflúri Davids Beckham aftan á
bakinu. Hann lét gera það sérstak-
lega fyrir Amerísku tónlistarverðlaun-
in þar sem hann vann í öllum fjórum
flokkunum sem hann var tilnefndur.
Fótboltastjarnan og söngvarinn hafa
verið gagnkvæmir aðdáendur síðan
þeir hittust fyrst fyrir þremur árum.
„Ég gerðist fótbolta-
aðdáandi vegna
Davids. Hann er
frábær leikmaður.
Ég fylgist með hon-
um sem
skemmtikrafti,
hvort sem
það er
vegna tísku
eða fótbolta,“
sagði Usher
eitt sinn.
Beckham hef-
ur einnig sagst eiga
alla diskana sem Us-
her hefur gefið út og
hlusta mikið á hann.
Leikkonan Renée Zellweger hefurmiklar áhyggjur af því að hún
muni eiga erfiðara með að eignast
börn eftir að hafa
grennt sig og fitað
til skiptis fyrir hlut-
verk sitt sem
Bridget Jones. „Ég
er kunnug rann-
sóknum sem hafa
verið gerðar um
þetta efni og um
hvaða áhrif þetta
getur haft á lík-
amann. Mig langar
mikið að verða móðir einhvern dag-
inn. Ég hlakka til að verða ólétt og
þyngjast náttúrulega,“ sagði Renée.
Leikkonan segir samt þyngdaraukn-
inguna virðast miklu meiri á skjánum
en hún er í raun. „Myndavélin bætir
við nokkrum kílóum og vegna þess
hversu lítil ég er þá virðist ég mun
feitari en raunin er.“
Jake Gyllenhaal segist hafa slasaðsig töluvert við tökur á ástarsenum
með leikaranum Heath Ledger. Þeir
leika kúreka sem verða ástfangnir í
nýrri mynd, Brokeback Mountain.
„Heath braut næstum
því nefið á mér í senu
þar sem við kyssumst.
Hann grípur mig og ýtir
mér fast upp að veggn-
um og kyssir mig,“ sagði
Gyllenhaal. „Og þá gríp
ég hann og ýti honum
upp að veggnum og kyssi hann. Svo
eftir nokkrar tökur var ég allur orðinn
lemstraður eftir átökin. Ég meiddi
mig ekki eins mikið í slagsmálaatrið-
unum!“ Brokeback Mountain verður
frumsýnd í Bretlandi á næsta ári.
Britney Spears hefur uppljóstraðsmáatriðum um brúð-
kaupsferð hennar og
Kevins Federline - í
formi ljóðs. Söngkon-
an giftist dansaran-
um óvænt í
september og fóru
þau í ferð til Turtle
Island á Fiji nokkr-
um vikum seinna.
Spears opinberaði
ljóðið á aðdáenda-
síðu þar sem hún lýsir
„unaðslegum nóttum“
og ferðinni sem „litlu
himnaríki“. Hún end-
aði svo ljóðið á því
að þakka öllum á
Turtle Island.
LÆTI Á VIBE-HÁTÍÐINNI Áhorfandi heldur á stól sér til varnar eftir að slagsmál brutust
út á Vibe-hátíðinni í Barker Hangar í Santa Monica á mánudaginn var.
Námskeið um Bókina Da Vinci
lykilinn og kenningar hennar
hófst á vegum Leikmannaskóla
Þjóðkirkjunnar í síðustu viku. Á
þriðja hundrað manns mættu á
námskeiðið og fylltu safnaðar-
heimili Grensáskirkju, en fram-
hald námskeiðsins verður í dag og
21. nóvember. Aldrei hafa eins
margir tekið þátt í námskeiði hjá
Leikmannaskólanum.
Á námskeiðinu er rakin saga
kirkjunnar frá öndverðu og deilur
hennar við leynireglur í gegnum
aldirnar. Fjallað er um hugmyndir
metsölubókarinnar Da Vinci lyk-
illinn um Musterisriddarana, Jó-
hannesarriddara, teutónsku ridd-
arana, djöfulinn, ritsafn og mynd-
un Nýja testamentisins, frímúr-
ara, konur í kirkjunni og þá
sérstaklega Maríu Magdalenu,
Fimmstjörnuna, kaþólsk leynifé-
lög og Gral.
Á námskeiðinu er leitað svara
m.a. við spurningunum: Er saga
kirkjunnar blekking leynireglna
karlaveldisins? Hver er hinn
sögulegi sannleikur bak við
myndun Nýja testamentisins?
Hverjir voru Musterisriddarar,
Jóhannesarriddar og teutónsku
riddararnir? Var María Magda-
lena gift Jesú? Átti Jesús börn?
Hvað er Gralinn?
Leiðbeinandi á námskeiðinu er
sr. Þórhallur Heimisson prestur
við Hafnarfjarðarkirkju. ■
Aðsóknarmet í Leikmannaskólanum
Da Vinci lykillinn er uppspretta fjöl-
menns námskeiðs hjá Leikmanna-
skóla Þjóðkirkjunnar.
FRÉTTIR AF FÓLKI
36-37 skrípó (28-29) 16.11.2004 19:35 Page 3