Fréttablaðið - 17.11.2004, Side 39
31MIÐVIKUDAGUR 17. nóvember 2004
Vinnustofa SÍBS
Sími 5628500
bréfabindin
www.mulalundur.is
NOVUS B 425
4ra gata endingargóður gatari
með kvarða.
Allur úr málmi og tekur 25 síður.
Verð 2.995 kr/stk
Í þessu máliÖ.
(Faux)
Sólveig Anspach horfir sposkum augum á mál-
verkafölsunarmálið mikla er hófst er hundruð fals-
aðra málverka fóru inn á íslenskan myndlistar-
markað í gegnum Gallerí Borg á tíunda áratugun-
um, og lauk þegar aðstandendur gallerísins voru
sýknaðir af ásökunum um að tengjast málinu í
Hæstarétti í maí 2004.
Lifandi í limbói
(Alive in Limbo)
Árið 1993 hittu kvikmyndagerðarkonurnar fimm
börn í Líbanon og ræddu við þau um lífið og til-
veruna, vonir þeirra og framtíðardrauma. Þau
Wasim, Nisreen, Mostafa og Manal eru palestínskir
flóttamenn í Shatila-búðunum í Beirút, en Hussein
er líbanskur drengur sem orðið hefur fyrir barðinu
á stríðsátökunum við Ísraela í heimalandi sínu. Á
árunum 1999 til 2002 eru ungmennin heimsótt á
ný, og afdrif drauma þeirra könnuð.
Konunglegt bros
Konunglegt bros fjallar um Frikka Frikk, sem telur
sig bera af öðrum mönnum hvað listrænt innsæi
og kvenhylli varðar. Hann vinnur að metnaðarfullu
verkefni á sviði fjöltæknimyndlistar, sem felst í því
að láta konur falla fyrir sér, segja þeim upp og
smella af þeim mynd.
Stjórnstöðin í Listasafninu
Heimildarmyndin Control Room,
eða Stjórnstöðin, er ein þeirra
mynda sem verða sýndar utan
þemadagskrár Alþjóðlegrar
kvikmyndahátíðar í Reykjavík.
Stjórnstöðin hefur vakið athygli
víða um heim, en þar sækir
bandarísk-arabíski leikstjórinn
Jehane Noujaim til þekkingar
sinnar á bandarískum og arabísk-
um menningarheimi, er hann
dregur upp mynd af ólíkum
áherslum í bandarískum og
arabískum fréttaflutningi af
Íraksstríðinu vorið 2003.
Í myndinni er rætt við frétta-
menn í CentCom fréttamiðstöð
Bandaríkjahers í Katar, og frétta-
menn á arabísku Al-Jazeera
fréttastofunni. Í myndinni er velt
er upp spurningum um frétta-
flutning og túlkun viðburða, auk
þess sem tekið er á þeirri
aðkallandi spurningu hvort að-
gerðir Bandaríkjanna í Mið-Aust-
urlöndum séu til þess fallnar að
koma þar á stöðugleika eða auka á
hugmyndafræðilegan ágreining
milli Vesturlanda og Mið-Austur-
landa. Stjórnstöðin var sýnd á
Sundance-kvikmyndahátíðinni
árið 2004, og vann til verðlauna á
Full Frame heimildarmyndahátíð-
inni og kvikmyndahátíðinni í
Sydney.
Stjórnstöðin verður sýnd
klukkan 19.30 í Listasafni Reykja-
víkur, Hafnarhúsi. Að sýningu
lokinni taka við pallborðsumræð-
ur um myndina og viðfangsefni
hennar. Þátttakendur í umræðun-
um um verða Karl Blöndal aðstoð-
arritstjóri, Brynhildur Ólafsdótt-
ir, fréttamaður, Sigríður Víðis
Jónsdóttir, sem heimsótti Al-
Jazeera fréttastofuna í Katar, Jó-
hanna Kristjónsdóttir blaðamað-
ur, Davíð Logi Sigurðsson blaða-
maður og Hjálmar Sveinsson út-
varpsfréttamaður sem stýrir
jafnframt umræðum. ■
STJÓRNSTÖÐIN Hefur vakið athygli að
undanförnu en hún tekur á fjölmiðlaum-
fjöllun um Íraksstríðið 2003, og varpar ljósi
á ólíkar áherslur vestrænna, einkum
bandarískra fjölmiðla, og arabísku frétta-
stöðvarinnar Al Jazeera.
38-39 auka fólk (30-31) 16.11.2004 19:00 Page 3