Fréttablaðið - 21.11.2004, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 21.11.2004, Blaðsíða 10
Ég svaf hjá konunni minni um daginn, sem er í sjálfu sér engin stórfrétt, en vettvangurinn var óvenjulegur; kvennadeild Land- spítalans, nánar til tekið fæðing- arstofa á þriðju hæð. Þetta var fín nótt og við hlið okkar hvíldi nokkurra klukku- stunda gömul dóttir okkar, óþrif- in, alsæl. Vitaskuld man ég ekki þá stund þegar faðir minn tók á móti mér fyrir góðum fjörutíu árum, en ég get fullyrt að hann svaf annars staðar en hjá konunni sinni kvöld- ið eftir fæðingu mína. Og gott ef hann var nokkuð viðstaddur fæð- inguna. Tímarnir hafa breyst. Það sem er sjálfsagt í dag var tabú fyrri tíma. Ég gleymi því ekki þegar ég tók á móti frumburði mínum fyrir tuttugu árum. Þá var vesalings barnið hrifsað úr móðurkviði í þann mund sem það barðist fyrir fyrsta andardrætt- inum og því snúið á hvolf undir sterkum ljósum fæðingarstof- unnar og það hrist í hrammi miðaldra lækn- is. Ég gleymi ekki garg- andi öskrinu sem fylgdi á eftir og angistarfull- um ópum þessa sama hvítvoðungs þegar hann var skrúbbaður hátt og lágt og mældur að því búnu á kaldri vigtinni. Þetta voru náttúrlega engar viðtökur. Þetta var refsing fæðingarinnar. Og nú er allt ein- hvern veginn breytt. Heilbrigðisstéttun- um hefur lærst á síðustu árum að fæðing er eðlilegur gangur lífs- ins. Engin ástæða er til að ráðast á nýfætt barn með offorsi og græta það svo mjög á fyrstu mínútum lífsins að liggi við náttúruhamför- unum. Og foreldrarnir bíði álengdar, fullir sektarkenndar að hafa búið til þetta nýja líf. Nú er allt eðlilegra. Litla stúlkan mín sem fæddist um daginn var lögð í rólegheitun- um ofan á brjóstið móður sinnar á sömu sekúndum og hún kom í heiminn. Fósturfitan storknaði á litla þrútna líkamanum, belgvatn- ið þornaði á dökkum hvirflinum, naflastrengurinn lá um kyrrt eins og sjálfsagður partur af sambandi þeirra mæðgna. Og allt var rólegt; enginn grátur – aðeins snörl í nös- um föðurins sem getur ekki van- ist því að eignast börn. Og svo bara sofnaði barnið. Öll vinna á fæðingarstofunni féll eiginlega niður; læknir og ljósmóðir á burtu og eftir stóð þessa heilaga þrenning föður og móður og barns og hlustaði á þögnina umvefja þessa stórkost- legu stund. Það lá ekkert á. Auðvitað liggur ekkert á. Og svona á þetta náttúrlega að vera. Svona er þetta hjá öllum dýr- um. Þrifnaðaræðið sem hertók ungbörn á fyrstu sekúndum lífs- ins á fyrri árum er að baki. Bless- unarlega. Og hver ákvað það eig- inlega á einhverju fáránlegu augnabliki læknisfræðanna að börn væru óhrein um leið og þau fæddust? Hver ákvað það eigin- lega að það mikilvægasta á fyrstu andartökum lífsins væri að hrista börnin og snúa þeim á hvolf? Eða að brýnasta erindi nýfæddra barna væri að leggjast á kalda vigtina? Ungbarnaeftirlit hefur verið á villigötum um margra áratuga skeið. Ofuráherslan á þrifnað hefur keyrt svo úr hófi fram að öllu varnarkerfi líkamans hefur samviskusamlega verið skolað niður með baðvatninu; helst mörg- um sinnum á dag. Það síðasta sem nýfædd börn þurfa eru iðnaðar- sápur auglýsingamennskunnar. Öll þessi stórfurðulegu efni sem hafa ráðist á kroppinn barnanna á undanliðnum árum hafa kallað á önnur sterkari efni til að bregðast við húðsjúkdómum. Nýjar rannsóknir á húðheilsu barna á Íslandi sýna að hreins- unaræði fyrri ára, þar sem notast var við ýmis aðskotaefni sem eru allsendis óskyld efnafræði mannslíkamans, hefur hrundið af stað exem-faraldri meðal ung- menna, jafnframt því að valda öðrum hvimleiðum húðsjúkdóm- um. Nýja meginreglan er þessi; settu það eitt á barnið þitt sem þú getur sett ofan í það. Og einhvern veginn er þessi regla svo sjálfsögð og eðlileg að okkur yfirsást hún í nálega mannsaldur. Okkur hefur þótt í lagi að brenna leifar nafla- strengsins á ungabörn- um með spritti í stað þess einfaldlega að strjúka hann með vætt- um klúti. Og okkur hef- ur lærst að púðra börnin og bera á þau alls kyns krem sem enginn heil- vita maður myndi nokkru sinni láta ofan í sig. Og afhverju ætti það þá að vera í lagi út- vortis? Nýja meginreglan er þessi; þvoðu barninu þínu eins sjaldan og hægt er – leyfðu því að kynnast lík- amslykt sinni, láttu þér fátt um finnast þó barna- fötin ilmi ekki af innflutt- um sápum. Þetta leiðir náttúr- lega hugann að sjampó- kynslóðinni sem hefur vaxið upp á síðustu árum með búkinn alsett- an bætaefnamixtúrum. Ákafinn að þrífa sig hef- ur á köflum verið svo yfirþyrm- andi að stappar nærri sterilíser- íngu. Minnsta líkamslykt er um- svifalaust afgreidd sem óeðli. Allt skal nú ilma af auglýstum undr- um efnafræðinnar. Þetta þarf ekki að vera svona. Og á ekki að vera svona. Sú gullvæga regla að bera það eitt á sig sem hægt er að borða hefur einhvern veginn gleymst í endalausri sókn eftir aðkeyptri hamingju. Það var og. Mér er sagt að baða nýja barn- ið mitt upp úr vatni með vænum skammti af ólífuolíu; það sem mýki meltingarveginn best mýki húðina mest. Ég tel þetta vera nokkuð væn vísindi – og veit núna betur en áður hversu auðvelt það er að gleyma því sjálfsagða. Og upprunanum. ■ Ríkisstjórnin hefur nú birt áætlun sína um skattalækkanir næstu ára í samræmi við kosningaloforð flokkanna sem að henni standa. Skattar eru margslungið tæki. Þeir afla ríkissjóði tekna, þeir jafna kjör í sam- félaginu og þeir hafa afgerandi áhrif á efnahagslífið. Það er því ekki að undra að auðvelt sé að deila um aðgerðir í skatta- málum. Ekki síst nú þegar þensluhætta er veruleg. Til að sporna gegn þenslu eru þrjú meðöl nothæf; hækkun stýrivaxta, hækkun skatta og niðurskurður ríkisútgjalda. Miðað við skattalækkunarhugmyndir ríkis- stjórnarinnar verður að búast við að skorið verði niður í ríkisfjármál- um frá því sem boðað var í fjárlagafrumvarpinu, sé stöðugleiki höfuð- markmiðið. Hinn kosturinn er að skilja Seðlabankann eftir á berangri með vaxtatækið sem leitt gæti til óhóflegrar styrkingar krónunnar, dregið máttinn úr útflutnings- og samkeppnisgreinum og leitt til mik- illar verðbólgu undir lok þenslutímans. Ítrekað hefur verið varað við því að skattalækkanir á næstu tveim- ur árum væru afar hættulegar, nema að á móti komi aðhaldsaðgerðir í fjármálum hins opinbera. Nýgerðir kjarasamningar grunnskólakenn- ara mega ekki verða fordæmi annarra launahækkana, heldur verður að líta á þá sem skref í átt til leiðréttingar og tímabærs endurmats á vægi menntunar fyrir hagsæld framtíðarinnar. Það er vitaskuld dyggð að standa við kosningaloforð. Hins vegar þarf ávallt að taka tillit til ytri aðstæðna þegar skrefin eru stigin. Ýmis- legt hefur breyst frá því að kosningaloforðin voru gefin. Vextir hús- næðislána hafa lækkað og ekki er fyllilega komið í ljós hvaða áhrif þær breytingar hafa á ráðstöfunartekjur og einkaneyslu. Flest bendir til þess að viðskiptahallinn verði geigvænlegur og veruleg hætta á að hann grafi undan krónunni með tilheyrandi falli þegar spennan fer úr hagkerfinu. Þess vegna hefði verið skynsamlegt að fara hægar í sak- irnar úr því að ríkið treystir sér ekki til meiri niðurskurðar en fjár- málafrumvarpið boðar. Innihald skattatillagnanna er svo önnur saga. Afar jákvætt er að sjá barnabætur færast í átt til fyrra horfs og sama má segja um skatt- leysismörkin, sem hafa dregist aftur verðbólgunni á undanförnum árum. Jákvætt er einnig að meginþunginn sé árið 2007 eftir að stóriðju- framkvæmdum lýkur. Hins vegar kann vitundin um auknar tekjur á því ári að leiða til meiri neyslu áður en það herrans ár lítur dagsins ljós. Ríkisstjórnin boðar að skattleysismörk muni hækka um 20 prósent á næstu þremur árum. Skattleysismörk hafa dregist aftur úr verðlagi á undanförnum árum og hækkun þeirra kemur í krónutölu jafnt yfir alla skattgreiðendur. Þeir sem minnst bera úr býtum fá því hlutfalls- lega mest. Hins vegar er full ástæða til þess að hafa áhyggjur af því að ef ekki verður vel á spilum haldið næsta árið, þá stöndum við uppi með skattleysismörk árið 2007 sem hækkað hafa um 20 prósent en samt ekki gert mikið meira en að halda í við verðbólguna. ■ 21. nóvember 2004 SUNNUDAGUR SJÓNARMIÐ HAFLIÐI HELGASON Ríkisstjórnin þarf að tryggja að skattalækkanir leiði ekki til aukinnar verðbólgu. Skattalækkanir ögra stöðugleika FRÁ DEGI TIL DAGS Ítrekað hefur verið varað við því að skattalækkanir á næstu tveimur árum væru afar hættulegar, nema að á móti komi aðhaldsaðgerðir í fjármálum hins opin- bera. Nýgerðir kjarasamningar grunnskólakennara mega ekki verða fordæmi annarra launahækkana, heldur verður að líta á þá sem skref í átt til leiðréttingar og tímabærs endurmats á vægi menntunar fyrir hagsæld framtíðarinn- ar. ,, SMS LEIKUR Í vinning er: • Spider-Man 2 á DVD • Spider-Man 1 á DVD • Aðrar DVD myndir • Spider-Man varningur • Margt fleira Sendu SMS skeyti› BTL SPF á númeri› 1900 og þú gætir unni›. 11. hver vinnur! Vinningar ver›a afhendir hjá BT Smáralind. Kópavogi. Me› því a› taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 199 kr/skeytið Spider-Man 2 GLÆSILEGIR VINNINGAR! VILTU MYNDINA Á 199 KR.? Út úr hreinsunareldinum Á allra vörum Sú var tíð að það var svo sjaldgæft að um Ísland væri fjallað í erlendum blöð- um að fjölmiðlar hér skýrðu frá því sem sérstökum viðburði. Erlendar greinar um Ísland og íslensk málefni voru þá yfirleitt þýddar og endurbirtar hér. En nú opna menn varla svo erlend dagblöð og tímarit að þar sé ekki með einhverjum hætti vikið að mönnum og málefnum sem tengjast Íslandi. Sérstaklega á þetta við um við- skiptafréttir enda má segja að ný víkingaöld sé upp runninn með út- rás íslenskra fyrir- tækja á erlenda markaði. En það eru ekki aðeins við- skiptafréttirnar sem vekja áhuga er- lendra fjölmiðla. Á forsíðu International Herald Tribune var á fimmtudaginn fjallað um það hvernig Íslendingar tak- ast á við myrkrið sem hvílir yfir landinu yfir vetrarmánuðina. Hafði greinin áður birst í New York Times. Spurt er: Verður þjóðin ekki niðurdregin af því að sjá svona lítið til sólar? Og svarið, sem haft er eftir Andrési Magnússyni geðlækni, þykir merkilegt: Nei, rannsóknir sýna að Íslendingar þjást síður af skamm- degisþunglyndi en aðrar þjóðir þrátt fyrir allt myrkrið. Virðist sem náttúruval hafi smám saman aðlagað landsmenn að þessum aðstæðum. Eldvirkni Stórblaðið Financial Times birti á föstu- daginn stóra grein þar sem eldvirkni á Íslandi fyrr og nú er í brennidepli. Til- efnið er gosið í Grímsvötnum. Blaðinu finnst athyglisvert hvaða áhrif gosið hafði á flugumferð í nágrenni Íslands. Og það gefur svo ástæðu til að rifja upp gosið í Lakagígjum árið 1783 en ýmsir telja að áhrif þess hér á landi og ekki síður í nágrannalöndunum hafi verið slík að telja megi það þriðja mannskæðasta eldgos á sögulegum tímum. Haft er eftir Þorvaldi Þórðarsyni jarðfræðingi að verði annað slíkt gos mundu áhrifin verða margfalt meiri, meðal annars á fjarskiptakerfi í okkar heimshluta. Veltir hann upp þeirri spurningu hvernig British Airways mundi bregðast við ef þotur félagsins gætu ekki flogið í fimm mánuði vegna eldgoss á Íslandi. Ekki uppörvandi um- hugsunarefni! gm@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: Frétt ehf. RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRAR: Sigurjón M. Egilsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FULLTRÚI RITSTJÓRA: Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir AUGLÝSINGASTJÓRI: Þórmundur Bergsson RITSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG DREIFING: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is SETNING OG UMBROT: Frétt ehf. PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 TÍÐARANDINN SIGMUNDUR ERNIR RÚNARSSON TE IK N . H EL G I S IG . - H U G VE R K A. IS 10-11 LEIÐARI 20.11.2004 20:55 Page 2

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.