Tíminn - 20.01.1974, Page 1

Tíminn - 20.01.1974, Page 1
 Áætlunarstaðir: Akranes ■ Blönduós Flateyri - Gjögur Hólmavík Hvammstangi Rif - SigIuf jördur Stykkishólmur Sjúkra- og leiguflug um allt land Simar: 2-60-60 & 2-60-66 KÓPAVOGS APÓTEK Opiö öll kvöld til kl. 7 Laugardaga til kl. 2 Sunnudaga kl. 1 til 3 Simi 40-102 - Aukin löggæzla eða aukin ölvun við akstur? Á ÞRIÐJA ÞÚSUND MANNS TEKNIR GRUNAÐIR 1973 I sumum lögsagnarumdæmum tvöfaldaðist talan ÁRIÐ 1973 handtóku is- lenzkir lögregluþjónar hátt á þriðja þúsund manns vegna gruns um ölvun við akstur hér á landi. Hafa aldrei fleiri verið handteknir fyrir þessar sakir á einu ári, og er þetta þvi nýtt ís- landsmet, þótt glæsilegt sé það ekki. Tölur um fjölda handtekinna vegna gruns um ölvun við akstur, segja ekki alla söguna. Margir, sem handteknir voru, sluppu við refsingu, þar sem þeir voru undir marki, sem kallað er, en talið er, að 6 til 8 af hverjum hundrað, sem handteknir eru vegna gruns um ölvun við akstur, séu undir mark- inu, sem er 0,50 promill. Ef tvö þúsund manns hafa verið handteknir á árinu, er ekki fjarri lagi, að áætla að um 150 til 200 manns hafi verið undir marki, en eftir standa þá 1800 yfir marki. bvi verður ekki neitað, að sum- ar tölurnar eru uggvænlegar, sem við öfluðum okkur með þvi að hringja i nokkrar lögreglustöðvar viðsvegar um landið. Sums staðar er fjölgunin yfir 100% frá árinu áður, og alls stað- ar var hún einhver. Jafnvel i Vestmannaeyjum, þar sem öll umferð var i lágmarki á siðasta ári vegna eldgossins, voru fleiri teknir en árið á undan. Keflav.fTugv. 207 137 Isafjörður 50 28 Akranes 51 22 Vestmannaeyjar 29 28 Húsavik 26 11 Ólafsvik 21 13 Sauðárkr. 17 12 Borgarnes 14 12 Siglufj. 10 5 Neskaupst. 8 11 Aðrar stöðvar höfðu ekki hand- bærar tölur, en gizkað er á aö þar hefðu verið handteknir þetta 4 til 15 ökumenn og konur vegna gruns um ölvun við akstur. Er þvi ekki fjarri lagi að áætla, að i allt hafi eitthvað á þriðja þús- und manns fengið að blása i blöðruna frægu árið 1978. -klp- Þeir voru á þriðja þúsundinu, sem fengu aö blása i blöörur lögreglunnar á árinu 1978, og stærsti hlutinn var siðan sendur i blóðrannsókn. — (Timamynd: Róbert) Hjónaskiln- uðum fjölg- aði um 18% DÖMSMAI.ARAÐUNEYTIÐ veitti 841 lijónum leyfi til lög- skilnaðar árið 1978. Arið áð- ur voru lögskilnaðir á land- inu 821 og 895 árið 1971. Þessi aukning er meiri en svarar til fjölgunar hjónabanda. Iljónaskilnaðir voru 18—19% tiðari hér á landi á árunum 19««—'70 en árin l»«l—'65. Þau hjón, sem skildu á ár- unum 1961—1970, höfðu aö meðaltali verið i hjónabandi i 8—lOár. 25% hjónanna voru barnlaus, en 75% áttu börn. Yfirleitt fengu konurnar for- ræði barnanna: i aðeins 5—6% tilfella fengu feðurnir umráðarétt yfir börnunum. Fjórðungur kvennanna, sem skildu þennan áratug, voru á aldrinum 25—29 ára. Arin 1961 — ’65 voru 21% karla, sem fengu lögskilnað, 30—34 ára, en 1966—70 voru 24% karlanna 25—29 ára. Meðalaldur karla, sem fengu lögskilnað 1961—70, var 37 ár og kvenna 35 ár, og var meðalaldurinn svipaður fyrri og siðari hluta áratugs- ins. Arið 1941 voru lögskilnaðir 54, 1951 skildu 96 hjón að lög- um, 161 árið 1961 og 246 árið 1970. Skilnaðir að boröi og sæng voru 167 árið 1961, 333 árið 1970, 364 árið 1971 og 323 áriö 1972. Meðaltal lögskilnaða á ári sýnir aukninguna betur en einstök ár, en það var sem hér segir 1951—1970: 1951—55 114 1956—'60 127 1961—65 164 1966—70 219 SJ Flestir sem handteknir voru i fyrra, voru teknir af Reykja- vikurlögreglunni, eða 968 manns. Þar af voru teknir 110 i ágúst- mánuði einum. Þarna eru með- taldir þeir, sem vegalögreglan handtók á eftirlitsferðum um landið, en það mun vera allálit- legur hópur. Er þvi ekki beint að marka tölur úr öðrum byggðalög- um, þvi þótt handtakan hafi átt sér stað i öðru lögsagnarum- dæmi, er hún færð Reykjavikur- lögreglunni til „tekna”. A eftir Reykjavik kemur Kefla- vfkurflugvöllur með 207 manns á móti 137 árið þar á undan. Lög- reglan þar hefur einna bezta at- stöðu til að þefa uppi ölvaða öku- menn, þvi hún skoðar nær alla bila, sem aka i gegnum hliðið. Hafnarf jarðarlögreglan að meðtaldri Grindavikurlögregl- unni og fleirum handtók 153 öku- menn á árinu, eða 23 fleiri en árið áður. Kópavogslögreglan hand- tók 125, Akureyrarlögreglan 129 og jafnstóra hópa handtók Sel- fosslögreglan og Keflavikurlög- reglan, eða 105 manns hvor. Annars skiptast handtökurnar þannig á milli þeirra lögreglu- stöðva, sem við höfðum samband við: 1973 1972 Reykjavik 968 927 Kópavogur 125 109 Keflavik 105 80 Akureyri 129 112 Selfoss 105 71 Hófu nöfn fornkappa til vegs fyrir hundrað órum Við upphaf þessa þjóðhátiðarárs eru nafngiftir i Húsavíkurprestakalli orðið getur eins látlausar og ÞJÓÐHATÍÐARARID 1874, þeg- ar minnzt var þúsund ára byggð- ar i landinu og tslendingum veitt stjórnarskrá, virðist hafa haft mikil áhrif á þjóðina, bæði i stóru og smáu. Meðal annars má greinilega tengja breyttar nafn- giftarvenjur þessu ári. I kringum þjóðhátiöarárið 1874 voru skyndi- lcga hafin til vegs á ný ýmis nöfn úr fornsögunum, sem horfin voru svo til alveg eða jafnvel með öllu, þar á meðal nafn fyrsta land- námsmannsins, Ingólfs Arnar- sonar. Þingeyingar voru at- kvæðamestir við þessa breytingu á nafngiftarvenjum, og frá þeim barst hún um land allt. Má minna á, að nöfn tveggja Þingeyinga, sem sæti áttu á alþingi á fyrri hluta þessarar aldar, voru af þessum rótum runnin. Ingólfur Bjarnason i Fjósatungu fæddist sjálft þjóðhátiðarárið, að visu suður i Arnessýslu, en af þing- eysku foreldri, og Kári Sigurjóns- son á Hallhjarnarstöðum fæddist árið 1875. Nú er nýtt þjóðhátiðarár að hefjast, og þeirri spurningu skaut upp, hvort þvi kynni að fylgja ný sveifla i nafngiftum i landinu. Aö visu eru nöfn frægustu söguhetj- anna i fornsögunum ekki lengur nein nýjung, og ekki heldur nöfn goðanna gömlu, sem sum hafa, á- samt sjávarheitum, fuglanöfn- um, dýranöfnum og blómanöfn- um, orðið mjög algeng siöustu áratugi, og meira að segja komizt i röð allra algengustu nafna i landinu. Eigi að siður er til gnægð norrænna nafna, hljómsterkra og gerðarlegra, sem harla litið eru notuð og sum nálega alls ekki, en auðvelt er að fá vitneskju i mannanafnabókum.þar sem einn- ig sést, hversu margir nafnberar hafa verið á tilteknu árabili. Okkur datt i hug að grennslast eftir þvi i Þingeyjarsýslu, þar sem tizkubylgjur i nafngiftum hafa hvað eftir annað risið og bor- izt viða um landið siðustu tvö hundruð árin, hvernig nafnavali hefði veriðhagað á börn þau, sem skirð voru nú um hátiöarnar. Við gerðum ráð fyrir, að flestum börnum hefði verið haldið undir skirn i Húsavikurprestakalli, og hringdum þess vegna á séra Björn H. Jónsson. Séra Björn kvaðst hafa skirt fjórtán börn um jól og áramót, og hefðu þau hlotið tuttugu og þrjú nöfn, þvi að tvinefni eru mjög al- geng þar nyrðra og hafa lengi verið. En um nöfnin væri það að segja, að þau væru flest eða öll næsta hversdagsleg, og benti ekk- ert til þess, aö andi þjóðhátiðar- ársins væri farinn að svifa yfir vötnunum og stuðla aö nafngift- um, er sérkenni bæru. Nöfnin á Húsavikurbörnunum fjórtán reyndust sem sagt vera: Jóhanna, Sigriður, Sólrún, Hild- ur, Björg (tveir nafnberar), Sandra, Heiður, Guðfinna, Krist- in, Þórný, Sigurður, Sveinn, Ölaf- ur(tveir nafnberar), Hafsteinn, Þórður, Jón (tveir nafnberar), Haukur, örn, Hermann og Hall- berg. Sveiflur I nafngiftum eru ekki nýjar i nálinni i landinu, og má þar bæði vitna til fyrirbæra, sem fljótt hjöðnuðu, eins og þorri kon- unganafnanna og drottningar- nafnanna, sem Oddaverjar gáfu börnum sinum um skeið, konung- bornir menn sjálfir, rimnanafn- anna, sem komu einkanlega upp á norðanveröum Vestfjörðum, þeg- ar farið var að prenta rimur, og nafna útlendra skálda, skáld- sagnapersóna, hljómlistarmanna og leikara, sem bryddi á i kring- um siðustu aldamót, og annarra, sem lögðu undir sig landið eins og nöfn hinna heilögu biskupa, Jóns ögmundssonar og Guðmundar Arasonar á kaþólskri tið, dönsku konunganöfnin, er Danastjórn fór að sinna ofurlitið málefnum ts- lendinga i lok nitjándu aldar og hin nýja uppstokkun forskeyta og viöskeyta i nöfnum um svipað leyti, svo að sleppt sé hinum miklu breytingum, er orðið hafa á siðustu áratugum. En sem sagt: Könnun okkar á Húsavik bendir ekki til þess, að Þingeyingar séu liklegir til þess að riða á vaðið og veita nýjum straumum nafngifta yfir landið á þjóðhátiðarárinu að þessu sinni. Að minnsta kosti hefur ekki bólað á neinu sliku úti við Skjálfanda- flóa i skammdeginu, hvað sem gerist þegar fram á kemur.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.