Tíminn - 20.01.1974, Side 2
2
TÍMINN
Sunnudagur 20. janúar 1974.
Sunnudagur 20. janúar 1974
m
Vatnsberinn (20. jan.
febr.)
Nú skaltu lofa áhugamálunum aö hafa yfir-
höndina ( dag, hver svo sem þau eru, og gefa þig
allan á vald þeim. Það er: nauðsynlegt svona við
og við að helga sig þeim og láta áhyggjur og
amstur lönd og leið.
Fiskarnir (19. febr.—20. marz)
Hjá þér er hollast að slaka á við tómstunda-
gaman. Það er upplagt að fara i kvikmyndahús
eða leikhús til að dreifa huganum. Ef þú færir að
taka þér eitthvað fyrir hendur, gæti farið svo, að
þú sæir eftir þvi.
Hrúturinn (21. marz—1-19. april)
Dagurinn i dag er mesti rólegheitadagur i einu
og öllu, og unga fólkiö ætti aö huga aö iþróttun-
um. Þetta er góður dagur fyrir Hrútana á sviði
iþrótta, hugsanlegur árangursemekki hefur áðui
náðst hjá sumum.
Nautið (20. april—20. mai)
Veðrið hefursin áhrif á Nautin i dag, og sé það
ekki þvi betra, ættu þau að halda kyrru fyrir. En
I góðu veðri gera þau bezt i þvi að fara i ferðalag,
og jafnvel huga að iþróttum, helzt útivið. Annars
innivið.
Tviburar (21. maí—20. júni)
Ef þú færð ekki heimsókn i dag, ferð þú i
heimsókn, þar sem þú færð fréttir, sem skipta
þig verulegu máli. Það er óvist, að þú gerir þér
ljóst undir eins, hvað liggur að baki • þeim, en þú
getur verið viss um, að þér er hagur i þessu.
Krabbinn (21. júni—22. júli)
Þetta er mesti ágætisdagur, og ekkert, sem
mælir á móti þvi, að þú lyftir þér upp, annað-
hvort skemmtir þér sjálfur á skemmtistað eða i
leikhúsi, eða njótir útilífs, ef veðrið verður
þannig, að slikt er ákjósanlegt.
Ljónið (23. júli—23. ágúst)
Það er gaman að lifa, þegar maður er ungur
og hraustur, en full ástæða er til að huga að sál-
inni lika — eða skyldi ekki vera nokkuð langt sið-
an þú hefur komið i kirkju? Þú ættir að láta
veröa af þvi i dag.
Jómfrúin (23. ágúst—22. sept.)
Þú skalt taka lifinu meö ró i dag. Fjölskyldu-
fólk á að vera saman i dag, og einstaklingar
hefðu gott af að koma til gömlu fjölskyldunnar
og reyna aö rifja upp gamlar ánægjustundir.
Slikt er öllum til góðs.
Vogin (23. sept.—22. okt.)
Gamlir kunningjar hafa samband við þig, og
þið ákveðið að bralla eitthvað saman. Þetta
veröur ánægjulegur dagur fyrir þig, en engin
ástæða er til aðætla, að sviptingar verði miklar,
nema þvi aðeins þú stofnir til þess sjálfur.
Sporðdrekinn (23. okt.—21, nóv.)
1 hópi Sporðdrekanna er álitlegur hópur
iþróttamanna, og það er full ástæða til að ætla,
aö þeir notfæri sér daginn vel, enda má segja, að
talsverðar likur séu á, að hann verði þeim
ánægjulegur, enda þótt þetta sé naumast meta-
dagur.
Bogmaðurinn (22. nóv.—21. des.)
Þetta er dagur afþreyingar og hvilda. Ertu bú-
inn að skoða bækurnar þinar það vandlega, að
þar leynist ekki einhver, sem þú átt eftir að
lesa? Það er jafnvel liklegt, að þú hafir gagn af
þvi. Kunningi þinn hefur samband.
Steingeitin (22. des.-fl9. jan.)
Þó að það sé alltaf hægt að skemmta sér, þá
eru sumir dagar öðrum hagstæðari til þeirra
hluta. Það litur út fyrir, að persóna, sem þér hef-
ur verið hugfólgin um skeið, hafi samband við
þig, og það verður þér til ánægju.
Deildarstjóri
Kaupfélag Húnvetninga Blönduósi óskar
eftir að ráða deildarstjóra i matvöru-
verzlun.
Umsóknarfrestur er til 31. þ.m.
Nánari upplýsingar gefnar i sima 96-4200
Kaupfélag Húnvetninga.
íreigamikill
hlekkur
ivel
reknu fyrirtseki
\\
Nauösyn bókhaldsvéla í nútíma fyrir-
tækjum er staðreynd.
Meö tilkomu DDHNER bókhaldsvéla
í heppilegum stæröum fyrir meðal-
stór og minni fyrirtæki hefur
bókhaldsvélin oröiö einn veigamesti
hlekkur í daglegri stjórnun fyrirtækja.
Leitió upplýsinga um notagildi
ODHNER bókhaldsvéla og hvernig
þér getiö nýtt ODHNER til stjórnunar
starfa.
Sisli ©T. ©loRnsen l/
VESTURGÖTU 45 SÍMAR: 12747-16647
Crysler (France)
Taunus 17M
Volkswagen 1302
Ármúla 24 • Sími 8-14-30
Allir
fylgjast
með
Tímanum
Lán úr lífeyrissjóði
ASB og BSFÍ
Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að veita lán
úr sjóðnum til sjóðsfélaga.
Umsóknir þurfa að berast fyrir 15. febrúar
1974. Umsóknareyðublöð eru afhent á
skrifstofu sjóðsins, Laugavegi 77, kl. 1-4
simi 14477.
TAKIÐ EFTIR! — Ég er þrettán ára
drengur og er búinn að
týna folanum mínum
Hann cr moldóttur. tvcggja vetra, og hvarf úr girðingu á
Pvera í ölfusi.
Þeir, sem geta gefið upplýsingar um folann, láti vinsam-
legast vita i sima 84160 i Reykjavik eða 4129 i Hveragerði.
Utanrikisráðuneytið.
RITARI
Utanrikisráðuneytið vill ráða ritara til
starfa i utanrikisþjónustunni hið fyrsta.
Frönskukunnátta og vélritunar-
kunnátta nauðsynleg.
Ætlazt er til, að ritarinn starfi i ráðu-
neytinu tvo til þrjá mánuði og siðan við
islenzkt sendiráð erlendis.
Skriflegar umsóknir sendist utanrikis-
ráðuneytinu, Hverfisgötu 115, Reykja-
vik, fyrir 1. febrúar n.k.