Tíminn - 20.01.1974, Blaðsíða 3
Sunnudagur 20. janúar 1974.
TÍMINN
3
u:us::
B
Ingólfur Davíðsson:
Byggt og búið
í gamla daga
XIII
Oainla Svalbarftskirkjan (Skureyrij 1971
„Öfeurleg er andans leið upp á
sigurhæðir”. A myndinni gefur
aö lita hús Matthíasar
Jochumssonar, Sigurhæðir á
Akureyri. Myndin er tekin i
fögru veðri 13. júli 1966, og sér út
á Pollinn, Oddeyrartanga og
yfir i Vaðlaheiði, þar sem enn
sitja skaflar uppi við brúnir.
Það verður vist lengi bjart yfir
Sigurhæðum i minningu manna.
Nonnahús inni i „Fjörunnni”
á Akureyri er eldra, byggt i
gömlum stíl, mjög viðkunnan-
legum (viðbygginging t.v. er
ung en i sama stil). Þarna sleit
Jón Sveinsson (Nonni) barns-
skónum og fólk streymir að á
sumrin til að sjá húsið og ýmsa
muni frá tið Nonna, en hann er
llklega einna viðfrægastur
islenzkra rithöfunda. Ég man
þegar Nonni kom til Seyöis-
fjarðar á leið til alþingis-
hátíðarinnar 1930. Fólk
streymdi út á götu til að sjá
hann. Nonni heilsaði ljúfmann-
lega, spurði að ýmsu og beygði
sig fagnandi niður að nýút-
sprungnum hófsóleyjum við
veginn. Myndin sýnir Nonnahús
15. ágúst 1971, lerkitré sjást til
hægri. Skammt frá, á slóðum
rifinnar Akureyrarkirkju, rétt
við gömlu trjáræktarstöðina
stendur nú litil timburkirkja,
flutt þangað frá Svalbarðseyri á
Svalbarðsströnd, þokkalegt hús.
Roskinn maður var að taka upp
kartöflur rétt hjá, 9. sept. 1971
og leit hornauga til fólks, sem
gekk inn i Nonnahús.
„Alveg er ég hissa hvernig þeir
láta með gamla muni, þetta er
bara tizka eins og kjólarnir
kvenfólksins”, sagði karl og
glotti við.
Akureyrarbrekkur fyrir ofan
eru frægt kartöfluland. Skammt
héðan i norðurkinn Búðargils,
móti sumri og sól, hóf Lever
kaupmaður kartöflurækt fyrir
165 árum —- og enn spretta
kartöflur vel i Akureyrar-
brekkum.
Útgerð og fiskverkun hefur
lengi verið mikilvæg atvinnu-
grein á Akureyri. Hér sjáiö þið
saltfisk breiddan til þerris á
strengda vira eöa virnet innar-
lega I bænum 12. júli 1935. Elzta
aðferöin mun hafa verið aö
breiða fiskinn á klappir eða
raða steinum i reiti undir hann.
Nú leysir vélþurrkun gömlu
aðferöirnar meir og meir af
hólmi.
— Hvaða móða og ólykt er
þetta?, sagði margur maðurinn
við komuna til Akureyrar,
þegar hafgolan bar sildar-
Nonnahús á Akurcyri 1971
vinnslubræluna frá Krossanesi
yfir bæinn. Krossanesverk-
smiöjan var reist á árunum
1912-1913 og mörgum hefur hún
veitt atvinnu og mikið sildar-
mjöl framleitt. Nú hefur engin
sild borizt langa lengi eins og al-
kunnugt er, en eitthvert annað
hráefni berst þó stundum i verk-
smiðjuna, og þannig var það t.d.
31. júli 1970, þegar myndin var
tekin.
Sauðfjárrækt á erfitt
uppdráttar i borgum og stórum
kaupstöðum,eins og eðlilegt er.
Menn þoka með kindur sinar og
hey út fyrir þéttbýlið og notast
viö gamla skúra og annan
frumstæðan útbúnað, likt og
myndin sýnir, en hún er tekin
utan við Glerárþorp. 9. sept.
1971.
Sallfiskverkun á Akureyri 1935
Séft yfir Krossanesvcrksmiftju vift Eyjafjörft 1970
Séft yfir ,, Sigurhæftir” á Akureyri 1966
!■■■■■■■■■■■■■■!!
«■■•■■■•■■■■■■■■■■■■■■■•••■■■■■■■■■■■■■1
M||A*|r----- ■BBOSII f------------ M
Hey og fjárhús vift Glerárþorp á Akureyri 1971.
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■iiSia