Tíminn - 20.01.1974, Page 5
Sunnudagur 20. janúar 1974.
TÍMINN
5
Háættuð —
en ekki
hámenntuð
Rétt áöur en brúðkaup Onnu
prinsessu i Bretlandi og Mark
Phillips fór fram, þá tóku þau
þátt i sjónvarpsútsendingu,
nokkurs konar viötali og tóku
þau sig vel út og komu vel fyrir
á skjánum. En áður en þessi
upptaka á viðtalinu við þau var
sýnd i sjónvarpinu fóru starfs-
maður hirðarinnar (einhver
prótokollumeistari) fram á að
ritskoðuö væri umsögn þeirra,
er þau töluðu um skólagöngu og
menntun. Svar Onnu prinsessu
við þvi, hvers vegna hún hefði
ekki farið i menntaskóla eða
háskóla, en hætt skólagöngu
eftir gagnfræðapróf (high
school), var: „Mér finnst
(skólagangan) vera tómstunda-
iðja, sem allt of mikið er lagt
upp úr!” Mark Phillips
samsinnti þessu og sagði, að
hann hefði aldrei haft áhuga á
að snúa sér að viðskiptum,
verða lögfræðingur eða læknir,
— og hvi skyldi ég þá vera að
eyða timanum i að fara i
háskóla? Þessi tilsvör þeirra
þóttu ekki þannig, að þau
myndu auka álit á konungsfjöl -
skyldunni og hirðinni og voru þvi
strokuð út úr viðtalinu, að þvi að
sagt er. Mark Phillips gekk i
herinn sem óbreyttur
liðsmaður, eftir að hann hafði
fallið á inntökuprófi i Sand-
hurst herskólann, sem hefur
svipað álit i Bretlandi og West
Point i Bandarikjunum. En
hann þótti mjög hæfur i
herþjónustunni og eftir fáeina
mánuði þá var Phillips sendur
iSandhurst-skólann beint úr
hernum og gekk þá allt vel.
Anna prinsessa og Mark
Phillips eru.mjög viðkunnanleg
og geðfelld ung hjón, og þó að
skólaganga þeirra eða menntun
þyki ekki merkileg, þá hafa þau
áhuga á mörgu, en þar er fyrst
og fremst að nefna hesta-
mennsku.og þar skara þau lika
bæði fram úr.
★
38 þúsund erlendir
stúdentar við
sovézka háskóla
38 þúsund erlendir stúdentar frá
135 löndum stunda nú nám við
sovézka háskóla og æðri
menntastofnanir.
fyrir öll reiðhjólin sin. Hugsið
ykkur vandræðin, ef allir hefðu
komið akandi i bilum, eins og
algengast er i öðrum heimshlut-
um!
Svona er það alls staðar
Þar sem mikill fjöldi fólks kem-
ur saman, er sama vandamálið
alltaf upp á teningnum. Hvar i
ósköpunum á að koma öllum
farartækjum þess fyrir? Þessi
mynd var tekin i Peking nýlega,
þegar þar fór fram gifurlega
fjölmennt iþróttamót.
Kinverjarnir voru i stökustu
vandræðum með að finna rúm
Listaverk úr smjöri
Mexikanski listamaðurinn
Salvador Lara er sérfræðingur i
að búa til skúlptúra úr smjöri og
is. Á myndinni sést hann leggja
siðustu hönd á verk, sem hann
kallaði Adam. Það var úr
smjöri og átti að fara á matar-
borð i glæsilegri veizlu. Það er
furðulegt, að fólk skuli hafa geð
i sér til að ráðast á slik listaverk
og hreinlega borða þau, en enn-
þá merkilegra finnst okkur, að
listamaður skuli ekki meta verk
sin meira.
f/fi ///// /.
fl/ff f tfZZÉm
Aukinn ferðamannastraumur í Póllandi
Ferðamönnum hefur fjölgað
mjög i Póllandi siðustu ár.
Einkum hefur ferðum milli Pól-
lands og Finnlands fjölgað og
önnur samskipti aukizt. Hafa
þeir úndirritað samninga um
margs konar viðskipti
þjóðanna. M.a. hafa þeir látið
smiða stórar ferjur til flutninga
um Eystrasalt. Pólverjar eiga
stóra nýja ferju, sem tekur
mörg hundruð farþega og um
150 bila og heitir „Gryf”. Sést
ferjan hér i höfn i Helsinki með
finnska fánann að húni. Þetta
skip gengur á milli Gdansk i
Póllandi og Helsinki. A annari
mynd eru þarna Pólverjar á
ferðalagi i Helsinki. Finnar eiga
svo annað ferjuskip svipað að
stærð, sem einnig hefur ferðir
milli Finnlands til Póllands.
Heitir það skip „Aallotar”.
Vegna aukins ferðamanna-
straums i Varsjá hafa risið þar
upp ný hótel. Fyrsta nýja stór-
hótelið, sem reist er aðallega
fyrir erlent lánsfé, heitir
„Forum” og er það þrjátiu og
tvær hæðir og hið nýtizku-
legasta.