Tíminn - 20.01.1974, Side 9
Sunnudagur 20. janúar 1074.
TÍMINN
9
I
Boðberi, Marion, ásamt Hananum háttprúða. Leikendur eru i sömu röð, Guðmundur ólafsson,
hildur Þorleifsdóttir og Gestur Einar Jónasson.
Þór-
að halda hlut sinum á sviðinu á
móti eins fjölhæfum túlkanda og
Arnar Jónsson er, en það tekst
Mahan kafteini oftastnær.
Ef til vill hefði gervi þeirra
beggja mátt vera betra, þvi að
stundum virtust þeir of ungir til
að fara með þetta svartagalls-
raus, sem höfundur leggur þeim
I munn.
Aðalsteinn Bergdal leikur lið-
þjálfa af mikilli snilld. Nær
sanni væri þó að segja að hann
léki herinn. Ég veit ekki mikið
um reynslu hans á leiksviði, en
merkilegt má vera, ef þar fer
ekki maður með hreina guðs-
gáfu.
Jón Kristinsson, leikur
sóknarprestinn af myndugleik
og krafti. Hann drepur menn,
hvað þá annað. Hann er i gerð
höfundarins all hrikalegur per-
sónuleiki, sem ekki er auðvelt
að koma til skila, svo við verði
unað, en þetta tekst Jóni
Kristinssyni merkilega vel, en
mjög gjarnan hefði mátt ætla
honum einhverja betri aðstoð
(Leikenda og ljósa) við að
drepa bilstjórann, því það er
sánnarlega ekki daglegt brauð
hér að prestar beinlinis drepi
sóknarbörn sin, þótt eitthvað
fari úrskeiðis.
Jón Kristinsson er gott dæmi
um ágæta leikkrafta, sem viða
er að finna hér á landi og eiga
að komast til skila, ef við
eignumst fleiri leikhús, en nú
eru til.
Lorna er leikin af Jóninu
ólafsdóttur, sem kom frá
London tii að setja upp þertnari'
leik með manni ginum» David
Scott, leikstjóra. Vitneskjan um
það atriði, hefur ef til vill spillt
nokkuð fyrir, þar eð maður hélt
að fólk kæmi ekki alla leið frá
London, til að leika annað en
meiriháttar hlutverk. Lorna
býður ekki upp á nein átök, eða
erfiða túlkun, en hún og Þór-
hildur Þorleifsdóttir, sem
Sviðsmynd úr Hananum. Efst á flaggstönginni er skipstjórinn
Mahan, sjóari og móflutningamaður (Þráinn Karlsson), i miðjunni
er Michael Marthraun, bóndi og peningapúki, en hann ieggur fyrir
af mósölu < Arnar Jónsson) og neðst situr liðþjálfinn, eða irski herinn,
en hann leikur Aðalsteinn Bergdal.
leikur vinnukonu Michaels
mósala og bónda léku hlutverk
sin af námkvæmni og þokka.
Sama er að segja um Loreieen,
sem leikin var af Sögu Jóns-
dóttur, nema gervi hinnar
siðasttöidu var i litlu samræmi
við alla léttúðina, en auðvitað
geta verið skiptar skoðanir um
það.
Shanaar, leikinn af ólafi
Axelssyni var ágætur. Sam-
bland af heilögum manni og
vitringi, fullur af dul og ógn-
vekjandi hjátrú. Svona karla
skilja fslendingar betur en
margt annað.------og siðast en
ekki sizt er það sjálfur haninn,
spaugfuglinn mikli, en hann var
leikinn af Gesti Einari Jónssyni
og vakti ávallt mikla kátinu
leikhúsgesta. Þar segir sina
sögu.
Það koma alls um 20 manns
fram i þessum leik, ef þeir eru
taldir, er gengu fram á sviðið i
leikslok. Leikstjóri var David
Scott. Arangur hans, sem leik-
stjóra var mjög góður, þvi
sýningin er heilsteypt, og sviðiö
er nýtt út i hörgul. Helzt ætti að
finna að morð eða mann-
drápsatriðinu, sem áður sagði
og svo hefði gjarnan mátt láta
Boðberann, sem leikinn var af
Guðmundi Ólafssyni syngja
meira fram i sal.
Guðmundur hefur ágæta
rödd, en til hans heyrist illa
fram i salinn. Þessu tvennu
mætti breyta, eða taka til ein-
hvers konar endurskoðunar.
Sviðið er ágætt og er
skemmtilega notað. Leik-
myndina gerði Magnús Pálsson
og hefur tekist mjög vel, og
hlýtur það að vera traust
byggt. þvi mikið gekk á.
Búningar voru yfirleitt góðir,
nema á kvenfólkinu. Manni er
til efs að sveitafólk á trlandi sé
svona til fara kvundags. ( Er
ekki átt við grimubúningana)
Sú breyting hefur nú orðið á,
að Leikfélag Akureyrar hefur
nú fastráðið 8 leikara. Þeir eru
að visu i hálfu starfi ennþá, en
þó ber að ifta öðrum augum á
það félag nú, en gert hefur verið
hingað til. F’élagið ræður yfir
nokkrum úrvals leikkröftum og
leikhússtjórinn er gagn-
menntaður i sinu fagi. Það er þó
of snemmt að spá um það, hvert
flokkurinn getur náð. Um það
verður ekki sagt eftir eina
sýningu — jafnvel ekki svo
góða, sem þessa, á Hananum
háttprúða, en þó sýnir hún
okkur að mikils má vænta.
Þá skal þess að lokum getið,
að vegna erfiðleika á flugi,
komst undirritaður ekki á
réttum tima á sýninguna,- og
missti því af alfyrstu
atriðunum.
Jónas Guðmundsson.
1
I
tatra
Drif á öllum hjólum. Mismunadrifsás á öllum
öxlum. Mismunadrif milli afturöxla. Hvert hjól
meö sjálfstæöa fjöörun.
W"
Vél 212 (Din) hestöfl. Buröarþol 15 tonn.
Stálpallur, hliðar- og endasturtur. 11/16 slrigalaga
nylon hjólbaröar.
Tilbúinn til notkunar um kr. 2.700.000.00
Möguleikar á afgreiöslu i febrúar-april
EF PANTAÐ ER STRAX.
TÉKKNESKA
BIFREIÐAUMBOÐIÐ
Á ÍSLANDI H.F.
AUÐBREKKU 44-46 SlMI 42600
KÚPAVOGI