Tíminn - 20.01.1974, Blaðsíða 11

Tíminn - 20.01.1974, Blaðsíða 11
Sunnudagur 20. janúar 1974. TÍMINN n synjavörum, er við flytjum inn. Siðan hefur þetta þróazt nokkuð jafnt, en það er fyrst á seinustu tveim árum, að verulegur kippur kemur i smásöluverzlunina hér i Reykjavik, en þá keypti Sam- bandið húseignina Suðurlands- braut 32 undir þessa starfsemi. Fram til þess tima hafði deildin búið við ákaflega erfitt og ófull- komið húsnæði, fyrst i Austur- stræti, þar sem verið var með verzlun i kjaliara og siðar i Hafnarstræti, þar sem búið var við mikil þrengsli. Hérna á Suðurlandsbrautinni erum við i rauninni mjög miðsvæðis með þessar vörur. Allt i kringum okkur eru svipaðar verzlanir, og hingað eru greiðar leiðir fyrir bila og næg bilastæði fyrir viðskiptavinina. Alhliða þjónusta Deild 45 er siðan skipt niður i þrjár undirdeildir, eða einingar. Þar er fyrst að telja verzlunina, sem er á fyrstu hæð á Suðurlands- braut 32. Það er alhliða bygginga- vöruverzlun, sem verzlar með allar smærri byggingavörur, svo sem hreinlætistæki, blöndunar- tæki, baðflisar eða veggflisar og alls konar vegg- og gólfefni, enn- fremur efni til innréttinga, járn- vörur og verkfæri, að ógleymdri málningu. A annarri hæð erum við með Alexander Sigsteinsson sölustjóri og Sveinn Jónsson bilstjóri I afgreiöslu nýja teppadeild, sem tók til starfa á siðasta ári. Þar seljum við gólf- dúka, teppi og veggfóður og klæðningar og siðan er svo deild með timbur, steypujárn, rör, miðstöðvarofna, einangrunarefni og allskonar þilplötur og reyndar allt grófara og þyngra bygginga- efni. Þessi deiid er i bakhúsinu hér, en tilheyrir Armúla 29. Þegar húsið var keypt, var lóð- in girt, skipt var um jarðveg og malbikað. Þarna geymum við, og afgreiðum útivörur, þ.e. steypu- styrktarjárn, rör og timbur. Inni eru svo fittings, ofnar, þilplötur, einangrun og klæðningar. Ennfremur er girðingaefni, staurar og gaddavir til sölu og af- greiðslu i Armúladeildinni. Verðhækkanir á byggingavörum — Hvernig er ástandið hjá ykk- ur núna? Er mikil gróska i sölu á byggingavörum? — Það má segja, að siðasta ár hafi dregið dám af heimsástand- inu. Sumar byggingavörur hafa hækkaö um allt að 100% eða yfir það. Sérstaklega hefur orðið mik- il hækkun á timbri, steypujárni, þakplötum og þakpappa. Þetta hefur auðvitað valdið erfiðleik- um, kallað á aukið fjármagn i reksturinn, en fjárþörfin var þó ærin fyrir. Jafnframt þessu hefur salan, eða vörumagnið aukizt mjög mikið hjá deildinni og veld- ur það auðvitað erfiðleikum, þvi að við verðum helzt að reyna að halda uppi svipuðu vörumagni á lager, svo ekki sé meira sagt. Að Ilaukur Jósefsson við Ármúla. Bjarni N'jálsson i verkfæradeild.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.