Tíminn - 20.01.1974, Blaðsíða 14

Tíminn - 20.01.1974, Blaðsíða 14
14 TÍMINN Sunnudagur 20. janúar 1974. HEFUR VEÐUR- FARIÐ ÁHRIF Á SKAPFERLI FÓLKS? Löndum raðað eftir tíðni sjálfsmorða, um- feröarslysa o.fl. Meðal- hiti heitasta mánaðar Tala þrumu- veðurs daga á ári Aiisturríl'i 19,4 23,2 Japan 26,1 2c,o Vestur-Þ5rzliala'n cl 13,3 22,6 Fra’J'land 2 0,0 17,o . Italxa 24,4 16,3 Bel.^áa 1?, 2 17,6 T)anmör!: 16,6 1 n JVÍSG 2o, o 12,3 Forocur 16,6 6,2 Finnland. 17,2 lo,l SvxÞjoo 16,6 1° ,7 T3s.ndarl’:in 22,2 -7.n q J 1 3 ^ Astralía 21,6 13,c T.T01 i_and 17.7 27,4 "nr o -1 o 2o, o lo,6 !!'r'■a-1 iái a -id ’u KJ — 17,2 -7 r 1 ) •-9 F: tóra-Bre tlar.d 16,1 r\ n ;S ^ 3 ^ Tv.i o 1 r r -- 5 ✓ r O U , J Ahrif veðurfars á fólk eru meiri en margur ætlar. Margir hafa samt reynt hver áhrif „gott” veð- ur og „slæmt” hefur á skap þeirra. Sumir eru öðrum næmari i þessu tilliti og fá undan- tekningalitið gigtarkast, höfuð verk eða astmakast, þegar veður eru i þann mund að skiptast. Nýlega færði irski sálfræði- prófessorinn Richard Lynn fram þá kenningu, að veðurfar hafi áhrif á hátterni heilla þjóða. Hann telur að lyndiseinkunn einstakra þjóða markist að nokkru af veðrinu. Þessi kenning á þó að sjálfsögðu ekkert skylt við þá sleggjudóma um einkenni ákveðinna þjóða, sem stundum má heyra, eins og þann að Finnar séu drykkfelldir slagsmálahund- ar, sem berjist með hnifum. Þess i stað færir prófessorinn sér i nyt haldbetri upplýsingar á borð við tiðni sjálfsmorða, umferðarslysa og hjartasjúkdóma ásamt áfengissýki. A vesturlöndum er þvi svo farið, að náið samband er á milli þessara atriða. Þrjú undanfarin ár hafa visindamenn á efnahags- og félagsvisindastofnuninni i Dyflinni unnið að þvi undir stjórn prófessor Lynns, að bera saraan veðurfar og tiðni áðurnefndra at- riða i einstökum löndum — og komizt að raun um að þar er um tölfræðilegt samband að ræða. Austurrikismenn með streitu og irskir rósemd- armenn Fyrst völdu visindamennirnir lönd, sem voru á svipuðu þróun- arstigi og flokkuðu þau siðan eftir „spennu”. Þau lönd, þar sem mikiö er um sjálfsmorð, áfengis- sjúklinga og umferðarslys voru talin hafa mikla spennu og öfugt. Eins og ráða má af töflunni, sem fylgir þessari grein, ættu Austurrikismenn samkvæmt henni að vera allilla haldnir af streitu, en Irar ættu hins vegar yfirleitt að vera rólyndir. Þá verður að ætla, að Norður-Irland hafi ekki verið tekið með i þess- ari athugun, þvi að þar vantar sizt ógnvekjandi atburði! Samkvæmt opinberum skýrsl- um fremja aðeins þrir af hverjum eitt hundrað þúsund trum sjálfs- morð á ári hverju. Samsvarandi tala i Austurriki er 23. Ennfremur eru dauðaslys i umferðinni þrisv- ar sinnum algengari i Austurriki en á Irlandi. Hvað veldur þessum mun? Ég fékk ekki betur séð en veðurfarið væri einn þeirra þátta, sem helzt kæmu til greina, segir prófessor Lynn og staðreyndirnar styðja þá ályktun. Irsku visindamennirnir völdu tvö atriði, sem ekki þótti ótrúlegt að hefðu áhrif á hugarástand fólks, þ.e. sumarhitann og tiðni þrumuveðra. Akveðið samband kom fljótlega I ljós. I þeim löndum, þar sem spennan er hæst, var meðalhiti heitasta sumarmánaðarins yfir- leitt einnig hæstur og sama máli gegndi um þrumuveðrin, sem voru algeng i þeim löndum. Að minu viti er erfitt að skýra þetta, án þess að gangast inn á að veðurfarið hafi einhver sálræn áhrif á fólk, segir prófessor Lynn. Ahrif veðurs á tiðni sjálfs- moröa, svo að dæmi sé tekið, hafa hins vegar verið bannlýst meðal vísindamanna ailt frá dögum franska félagsfræöingsins Emile Durkheim, sem réðst harkalega gegn vangaveltum af þessu tagi fyrir sjötiu árum. Hann nýtur mikils álits meðal visindamanna, eins og marka má .af þvi, að allt til þessa dags hafa menn ekki árætt að efast um réttmæti orða hans. Rannsóknir prófessors Lynns eru svo nýjar af nálinni að sálfræðingum og félagsfræðing- um er yfirleitt ekki kunnugt um þær.Hins vegar hefur læknum um langa hrið verið ljóst, að veðurfar hefur áhrif á velliðan manna. Danski læknisfræðipróf., dr. med. Poul Bonnevie, sem stýrir Heilsufræðistofnun Kaup- mannahafnarháskóla kemst svo aö orði i kennslubók, sem hann hefur skrifað: „Mannkynssagan sýnir, að hin fyrstu meiri háttar samfélög komust á legg i löndum, þar sem meðalárshiti er um 21 stig. Hún sýnir ennfremur að hin mestu tækni- og menningarafrek hafa þær þjóðir unnið, sem byggja lönd, þar sem veðurfar er breytilegt en þó yfirleitt temprað (meðalsumarhiti um 18 stig að sumarlagi, en fimm stig að vori) en slikt veðurfar örvar menn augsýnilega og eflir þá til af- reka”. Prófessor Bonnevie nefnir dæmi um það, hver áhrif hitastig og loftræsting hafi á vinnuafköst, blóðrás og annað. Mjög hátt hita- stig leiðir einkum af sér almenna þreytu og af henni leiðir siðan aukna slysatiðni, aðallega meðal fólks við aldur, segir prófessorinn o nefnir i þvi sambandi ýmis önn- ur áhrif, sem mikill hiti hefur, svo sem slen, höfuðverk og svima. Margt bendir með öðrum orð- um til þess, að andleg velliðan standi a.m.k. i sambandi við hit- ann og að hann hafi þar með áhrif á lundareinkunn heilla þjóða á þann hátt, sem prófessor Lynn vill vera láta. Hvernig er þessu þá farið i sambandi við illviðrí? Hef- ur það nokkur áhrif á velliðan manna sem hafast við innan húss? Skera ekki upp, þegar hnúkaþeyrinn blæs Læknar telja tæpast nokkurn vafa leika á þvi. Fjöldi visinda- manna hefur rannsakað sálræn áhrif þrumuveöurs og margir álita að rafmagnið i loftinu hafi áhrif á sálarástand fólks. Athygli sumra visindamanna hefur eink- um beinzt að rafsegulmögnuðum langbylgjum, sem myndast, þeg- ar óveður geisa, en þeirra gætir einnig meira, þegar mikið er um sólbletti. Margir visindamenn halda þvi fram, að umferðarslys- um og sjálfsmorðum fjölgi, þegar hinna rafsegulmögnuðu lang- bylgna gætir mikið. Poul Bonnevie segir i bók sinni að tölfræðilegt samband sé einnig á milli breytinga, sem verða á hinum hærri loftlögum og bráðra sjúkdómskasta á borð við blóð- tappa og bráðra sjúkdóma i kviðarholi og að þessa verði vart á þann hátt, að þá fjölgi þeim, sem fluttir eru i skyndi á sjúkra- hús. Ýmislegt bendir til þess, að sitthvað sé hæft i kenningum Richards Lynns prófessors, segir annar sérfræðingur. Sá, er svo kemst að orði er prófessor I verk- fræði i Tækniháskóla Danmerkur og heitir Vagn Korsgaard. Hann stýrir þeirri tilraunastofu skól- ans, þar sem fjallað er um hita- einangrun. Mér kæmi ekki á óvart, þótt i ljós kæmi að tengsl væru á milli mikils hita, deyfðar i mönnum og umferðarslysa, segir hann. Þá telja margir að mikilsverð- ur sé sá fjöldi fareinda (jóna), sem er i andrúmsloftinu i þrumu- veðri og hvassvirði, en það hefur ekki enn verið sannað visinda- lega. Alkunnugt er hvert mein mörgum Alpabúum er að hnúka- þeynum ( föhn-vindinum ). Hnúkaþeyrinn getur orðið ærið snarpur og þá hækkar hitinn og þá breytist um leið fjöldi neikvætt og jákvætt hlaöinna fareinda i loftinu og þessu fylgja ýmis likamleg og sálræn einkenni. M.a. hækkar blóðþrýstingur fólks og höfuðverkjarköst aukast. Margir skurðlæknar vilja ekki skera upp á meðan hnúkaþeyrinn blæs, af þvi að i ljós hefur komið, að þá er sjúklingnum hættara við tauga- áfalli. — Þó finnst mér ýmislegt Þessa töflu bjuggu þeir til, Lynn prófessor hinn Irski og samverka- menn hans, þegar þeir rannsökuðu hver áhrif veðurfar kynni að hafa á lyndiseinkunn einstakra þjóða. í dálknum lengst til vinstri er löndunum raðað með tilliti til tiðni sjálfsmorða, umferðarslysa og raunar fleiri atriða, reiknað eftir ákveðnum reglum. Efst eru þau þjóðlönd, þar sem atvik af þessu tagi eru tíð. Ekki er athugavert við þessa irsku rannsókn, segir Korsgaard prófessor ennfremur. Mér finnst það til að mynda undarlegt að rannsaka tiðni umferðarslysa, án þess að hafa hliðsjón af þvi hversu mjkil umferðin er, eða hvernig vegakerfinu er háttað. Þá mun einnig vafamál, hvort opinberum tölum um sjálfsmorð sé treystandi, ekki sizt meðal kaþólskra þjóða, þar sem hætt er við að menn hilmi yfir slikt af trúarástæðum. Hins vegar er þess að geta, að bæði trland og Austurriki eru nær einvörðungu byggð kaþólsku fólki, en samt er annað landið efst á listanum en hitt neðst. Að þvi er veðurhitann varðar, tel ég að irsku visindamennirnir fullkomið samræmi á milli tiðni þeirra tvika, sem tekin eru með og dálksins lengst til hægri, þar sem greinir frá einu atriði veður- fars. Samt er svo að sjá, sem nokkurt samhengi sé þar á milli, einkum að þvi er tekur til Evrópulanda. (Auðvitað hljóta miklu fleiri atriði að hafa áhrif i þessu sambandi eins og hver maður hlýtur að sjá — enda er raunar litiilega að því vikið i greininni. Aths. þýðanda.) hefðu getað gert sér ljósari grein fyrir áhrifum hans, ef þeir hefðu borið saman slysafjöldann og hitastigið á nokkrum sumardög- um til dæmis að taka — i stað þess að miða við heilan mánuð. Margir eru nefnilega þeirrar skoðunar, að það séu einmitt breytingar á hitanum, sem geti haft áhrif á heilsufar manna. Og þvi er þannig farið að ekki munar miklu á meðalhita heitasta mánaðarins i trlandi og Austurriki. Hins veg- ar rikir meginlandsloftslag i Austurriki, en það er eitt ein- kenna þess að miklar hitasveiflur geta orðið i sama mánuðinum. Irar búa aftur við úthafsloftslag, þar sem ekki munar jafn miklu á hitanum. (HHJ þýddi). Veldur veðurfarið einhverju um þann Nokkrir írskir visindamenn hafa mikla mun, sem er á tiðni sjálfs- rannsakað þessa kenningu — og eru morða, umferðarslysa, drykkjusýki að rannsókn lokinni þeirrar skoðun- o.fl. atriða i einstökum Löndum? ar,aðmargtbendi til þess að svo sé.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.