Tíminn - 10.02.1974, Blaðsíða 1

Tíminn - 10.02.1974, Blaðsíða 1
Áætlunarstaðir: Akranes - Blöndúós Flateyri - Gjögur Hólmavík - Hvammstangi Rif - Siglufjörður Stykkishólmur Sjúkra- og leiguflug um allt land Simar: 2-60-60 & 2-60-66 Opið öll kvöld til kl. 7 Laugardaga til kl. 2 Sunnudaga kl. 1 til 3 Simi 40-102 íslenzk skip í skæðustu sjóorrustunni: Enskur rithöfundur snýr sér til áhafna á Fjallfossi, Goðafossi og Selfossi í marz 1943 Enginn ýkir, þótt hann fullyröi, aö áhugi á skák sé mikill hér- lendis, enda eru taflmót, þar sem heimsmeistarar þreyta iþrótt sina, til þess failin aö glæöa hann. En þá fyrst er þetta saga til næsta bæjar, þegar kettirnir setjast að tafli, ibyggnir eins og þeir séu i þann veginn aö krækja sér í réttindi til þess að skora heims- meistarann á hólm. Boðið að sýna ótta listaverk — í einni fremstu iistamiðstöð Frakklands FRÖNSK listasamtök, sem nefn- ast Alþjóðleg nútimalist, hafa boöiö Mattheu Jónsdóttur list- málara að sýna átta verk eftir eigin vali á sýningu, sem haidin verður i marzmánuði I Lyon. Á undanförnum árum hafa lista- menn frá fjörutiu löndum sýnt listaverk sin á vegum þessara samtaka, sem verðlaunað hafa meira en tvö hundruð og fimmtiu iistamenn og iistiðnaðarmenn frá fjölda þjóðlanda. Listamenn telja sér mikinn heiður sýndan, er þeim er boðin þátttaka á þessum sýningum, og hefur Matthea þegar ákveðið að þiggja boðið, enda ein helzta listamiðstöð i Frakklandi, er að þvi stendur. Hér heima hefur Matthea hald- ið tvær sjálfstæðar sýningar, 1967 og 1970, auk þess sem hún hefur átt verk á haustsýningum Félags islenzkra listamanna og á lista- hátið á Kjarvalsstöðum og viðar. Árin 1969 og 1971 tók hún þátt L stórri álþjóðasýningu i Belgiu, er efnt var til að tilhlutan Evrópu- ráðsins. Hlaut hún viðurkenningu fyrir verk, er hún sendi á þessar sýningar, og loflega dóma i blöð- um i Belgiu og Frakklandi. Þar munu forystumenn Alþjóðlegrar nútimalistar hafa kynnzt verkum Mattheu. Verk sin á sýninguna i Lyon mun Matthea senda til Frakk- lands i þessum mánuði, en sjálf hyggst hún fara þangað, áður en sýningin verður opnuð, ef unnt verður. Flugufregnir af þessu tagi geta verið okkur hættulegar — segir Lúðvík Jósepsson um fregnina um hótanir Rússa HHJ-Reykjavík—Lúðvik Jósefs- son viðskiptaráðherra kvaddi fréttamenn á sinn fund i gær- morgun vegna þeirra frétta,sem birzt hafa um oliuviðskipti okkar við Rússa að undanförnu. Á fundinum gerði Lúðvik ásamt þeim Þórhalli Ásgeirssyni ráðu- neytisstjóra og Valgeiri Ársæls- syni deildarstjóra grein fyrir þessum málum. — Viðskiptaráðuneytið sér formlega um viðskiptin við Rússa, sagði Lúðvik. Þess vegna viljum við að fram komi af okkar hálfu, að allar fregnir um rúss- neskar hótanir eru staðlausir stafir og ekkert i þeim hæft. Eins og fram hefur komið hefur orðið nokkur töf á oliuafgreiðslu frá Sovétrikjunum fyrsta mánuð ársins. Slikar tafir hafa orðið áð- ur, en ástæðan er tæknilegs eðlis og á ekkert skylt við neinar annarlegar kröfur frá Rússum um brottför hersins af landinu. Slikar kröfur hafá aldrei verið gerðar. Einar Ágústsson utan- rikisráðherra hefur lýst þvi yfir að þetta sé markleysa og hið sama hefur Haraldur Kröyer sendiherra okkar i Washington gert og nú viljum við einnig lýsa þessu yfir af hálfu viðskiptaráðu- neytisins, sagði Lúðvik. Fyrir þessu er enginn fótur. Um afgreiðslu á oliu er það að segja, aðRússar hafa lofað þvi að öll sú olia, sem pöntuð hefur verið og ókomin er enn, verði komin Framhald á bls. 39. hafi i marz 1943, þegar þýzkir kafbátar réðust á tvær skipalestir Bandarikjanna á austurleið og tuttugu og tveim kaupskipum var sökkt. 1 þessari árás varð mest skipatjón i allri heimsstyrjöldinni siðari”. 1 annarri skipalestinni, SC 122, voru islenzku skipin þrjú, sem um var getið, Fjallfoss, Goðafoss og Selfoss. „Þessum islenzku skip- um var ætlað að njóta sam- fylgdarinnar hálfa leið yfir Atlantshafið”, segir i bréfinu, ,,og halda siðan norðar til íslands. En eftir árásina þótti sjóliðsforingj- um þeim, sem ferðinni réðu, ekki vogandi aðslita sundur skipalest- ina til þess að fylgja hinum is- lenzku skipum til heimahafnar, og áttu þau þvi að vera i lestinni alla leið til Englands. Til allrar hamingju komust islenzku skipin þrjú klakklaust yfir hafið, þótt Selfoss yrði viðskila við lestina i stórviðri, og brytist siðan af eigin rammleik án samfylgdar til Reykjavikur.” Höfundurinn fer þess á leit við Timann, að hann veiti sér liðsinni til þess að komast i samband við menn, sem voru á islenzku skip- unum i þessari ferð, þar sem þeim hlýtur að vera hún minnis- stæð, og þeim tilmælum er beint jafnt til skipstjórnarmanna og háseta. „Ég fer fram á”, segir hann, „að þeir sendi mér nafn sitt og heimilisfang og nafn skipsins, sem þeir voru á i marzmánuði 1943, en siðan mun ég rita þeim og láta þá vita nákvæmlega, hvers konar upplýsinga ég óska. Bréfin mega vera á ensku eða islenzku. Mig langar til þess að birta sögur manna allra þjóða, sem þátt tóku i þessari sjóorrustu.” Heim ilisfa ng MARTINS Middlebrooks er: 48 Linden Way, Boston, Lincs. PE21 9DS, Eng- land. Vonandi láta þeir, sem fóru þessa eftirminnilegu ferð yfir hafið fyrir þrjátiu árum, ekki hjá liða að segja hinum enska rithöf- undi sögu sina eins og hún er þeim i minni, svo að sú hliðin, sem að Islendingum snýr i hinni væntan- ■ legu bók, geti gefið sem gleggsta og fyllsta mynd af þvi, er fyrir þá bar. Þess má geta lesendum til upp- rifjunar, að rúmu hálfu öðru ári siðar en sjóorrusta sú var háð, er hinn enski rithöfundur hefur i huga, sökkti þýzkur kafbátur Goðafossi hér innan við Garð- skaga, og fórust þar tuttugu og fjórir menn, þrettan skipverjar og tiu farþegar. ENSKUR rithöfundur, Martin Middlebrook, sem búsettur er i Boston i Lincolnshire, er að semja bók, sem nefnist Skipalest, og segir þar frá atburðum, sem gerðust á Norður-Atlantshafi i marzmánuði árið 1943. Koma þar við sögu þrjú íslenzk skip — Fjall- foss, Goðafoss og Selfoss. Blaðinu hefur borizt bréf frá Martin Middlebrook, og segir þar svo um þessa fyrirhuguðu bók: „Næsta bók min, Skipalest, lýs- ir sjóorrustu á Norður-Atlants- Matthea Jónsdóttir. Tillögum ufanríkisráðherra fagnað Ríkisstjórninni heitið eindregnum stuðningi Gó-Sauðárkróki. Stjórn Kjördæm issambands Norður- iandskjördæmis vestra hélt fund á miðvikudaginn var og gerði svolátandi ályktun: „Fundur i stjórn Kjördæmissambands Framsóknarmanna í Norður- landskjördæmi vestra, haldinn 6. febrúar 1974, fagnar tillögum utanrikisráðherra i varnarmálum, sem nýlega hafa verið lagðar fram, og lýsir yfir eindregnum stuðningi við þær. Leggur fundurinn i þvi sambandi sér- staka áherzlu á eftirfarandi atriði: 1. Fundurinn minnir á marg- endurteknar yfirfýsingar flokksþinga Framsóknar- flokksins um, að erlendur her skuli ekki vera á tslandi á friðartimum. Einnig vekur hann athygli á, að við stefnumótun Framsóknar- flokksins i utanrikis- og varnarmálum hefur ætið verið gerður skýr greinar- munur á þátttöku íslands i Nató og setu erlends hers á tslandi. Lýsir fundurinn yfir fullkominni andstöðu við þá skoðun, að herseta i landinu sé nánast óhjákvæmileg af- leiðing þátttökunnar i vest- rænu samstarfi, og álitur jafnframt, að tillögur utan- rikisráðherra tryggi eðli- legan framgang stefnu Framsóknarflokksins i varnarmálum. 2. Fundurinn vekur athygii á ótviræðu ákvæði i málefna- samningi rikisstjórnar Ólafs Jóhannessonar um, að stefnt skuli að brottför hersins á kjörtimabilinu. Vill fundurinn undirstrika aðþar erumaðræða eitt af meginatriðum i stefnu rikis- stjórnarinnar, og fram- kvæmdþess, meðalannars, ein helzta forsendan fyrir áframhaldandi samstarfi umbótaflokkanna. Telur fundurinn, að fyrirheiti stjórnarsáttmálans um brottför hersins muni verða fullnægt eftir þeim leiðum, sem tillögur utanrikisráð- herra gera ráð fyrir. 3. Fundurinn itrekar samþykkt framkvæmda- stjórnar Framsóknar- flokksins um, að beina þvi til flokksmanna að taka ekki þátt i neins konar undir- skriftasöfnun i sambandi við varnarmálin. Þvi harmar fundurinn viðbrögð súmra flokksmanna við tillögu utanrikisráðherra, en telur það ótviræða skyldu Framsóknarmanna að slá sem traustasta skjaldborg um þá stefnu, sem mörkuð hefur verið með tillögunum, og vinna að framgangi þeirra með öllum tiltækum ráðum.”

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.