Tíminn - 10.02.1974, Blaðsíða 28

Tíminn - 10.02.1974, Blaðsíða 28
28' TlMIIsm Suninidagúr 10. febtúár 19X4.’ Fjalla-Eyvindur 1922. Aftasta röð frá vinstri: Haraldur lljörnsson, Árni Óiafsson, Sigtryggur Þorstcinsson, Jónas Jónasson, Páll G. Vatnsdal, Jóhanncs Jónasson. Miðröð: Þóra Hallgríms- dóttir, Gísli R. Magnússon, Guðrún Indriðadóttir, Álfhciður Einarsdóttir. Fremsta röð: Anna Flóvcntsdóttir, Ilulda O. Sveinbjörnsdóttir og Sigurcy Sigurðardóttir. Fjalla-Eyvindur 1943. Frá vinstri: Þórir Guðjónsson, Sólvcig Ágústsdóttir, Guðmundur Gunn- arsson, Ásdís Karlsdóttir, Vigfúsa Vigfúsdóttir, Bcncdikt Hermannsson, Björn Sigmundsson Halldór Jónsson, Ragnhciður Söcbeck, Guðrún Oddsdóttir, Stcfán Halldórsson, Björn Júlíus- son, Jón Ingimarsson, Freyja Antonsdóttir, Jón Norðfjörð og Ingibjörg Stcinsdóttir. Fjalla-Eyvindur. Sigurveig Jónsdóttir, Þráinn Karlsson og Jón Kristinsson í hlutvcrkum sínum MARZ 1973 Jónas Guðmundsson: Síðari grein Leikfélag Akureyrar Rifjað upp eitt og annað úr sögu LA fró fyrri árum Sýningar voru 1500 á 55 leikárum, á 142 verkefnum 1 fyrri grein, þar sem rifjað var upp eitt og annað úr sögu Leik- félags Akureyrar, var nuinið staðar við árin 1930-31, er ekkcrt var leikið, vegna þess að bæjar- stjórnin hafði lækkað styrk þann, er hún veitti félaginu, en næsta leikár var aftur hafizt handa um leiksýningar, þar eð bæjar- stjórnin hafði aftur hækkað styrk- inn. Eitthvað virðist hafa gengið á í stjórnmálunum og í afmælis- riti, sem gefið var út á 30 ára af- mælinu og mikið er stuðzt við hér, segir Hallgrimur Valdimars- son á þessa leið: Pólitikin i leikhúsið Veturinn 1929-30 tók Freymóður Jóhannsson að sér að koma upp sjónleiknum TVEIR HEIMAR eftir Jón Björnsson. 1 sambandi við það gerðust stórtiðindi. Jón Björnsson var þá ritstjóri blaðs- ins Norðlings hér. Andstæðingar hans i stjórnmálum vildu þá klekkja á honum með þvi að koma i veg fyrir, að leikfélagið sýndi leikrit hans. Urðu blaða- deilur milli Verkamannsins og Norðlings út af þessu, og kom þetta leikhúsmál fyrir bæjar- stjórn. Vildu andstæðingar Jóns koma á eftirliti með leikritavali félagsins, sem skilyrði fyrir styrkveitingu, og fengu það sam- þykkt á bæjarstjórnarfundi 19. nóv. 1929, en árið eftir 4. febr. bar Ingimar Eydal, sem þá var bæjarfulltrúi, fram á fundi bæjar- stjórnar svohljóðandi tillögu: „Bæjarstjórn samþykkir, að skil- yrði það, er sett var á bæjar- stjórnarfundi 19. nóv. siðastliðinn fyrir styrk til Leikfélags Akur- eyrar, um eftirlitsnefnd, skuli falla niður”. Tillaga þessi var samþykkt með 8 atkvæðum gegn tveim. Leikrit Jóns Björnssonar var siðan tekið til sýningar ásamt FRANSKA kVINTÝRINU. Af stað með Húrra krakki Eftir hvildina 1931-32 var farið af stað með gamanleikinn HORRA KRAKKI, eftir Arnold og Bach og hann sýndur 9 sinnum og farið var með leikinn til Siglu- fjarðar og hann sýndur þar f jögur kvöld. Þá kom LANDAFRÆÐI OG ÁST, með Mörtu Kalman leik- konu frá Reykjavik, sem lék gestaleik. FRÖKEN JULIA, Strindbergs og HINRIK OG PER- NILLA, ÆVINTÝRI A GÖNGU- FöR og IMYNDUNARVEIKIN kom i kjölfarið og Friðfinnur Guðjónsson frá Reykjavik lék sem gestur i aðalhlutverkinu, Ar- gan, og fleiri gestir léku i þessari sýningu. Nú komst mikill skriður á starf- semina. Ýmis þekkt verk voru tekin til sýningar, sem ógjörning- ur er að telja upp hér. Aldarafmæli séra Matthiasar Árið 1935, 11. nóvember, minnt- ist félagið aldarafmælis Matthiasar Jochumssonar með hátiðarsýningu á SKUGGA- SVEINI og var leikurinn sýndur 9 sinnum. Jón Steingrimsson hafði með þessari sýningu leikið Svein 36 kvöld alls og Páll Vatnsdal sömuleiðis leikið Ketil og Hró- bjart jafnoft, en það var þá sýn- ingarmet i einstökum hlutverk- um, Á 30 ára afmæli LA árið 1947 hafði félagið tekið til meðferðar 53 leikrit og haft á þeim 476 sýn- ingar. Það kemur i ljós að islenzk leik- rit hafa verið betur sótt en erlend leikverk. Við athugun, sem gerð var á sýningafjölda árið 1972, kemur i ljós, að á 55 árum setti félagið á svið 142 verkefni, þar af 45 eftir islenzka höfunda, og leik- sýningar voru orðnar 1496. Gestakomur til LA Það hefur komið fram hér að framan, að ýmsir gestir hafa sótt LA heim og félagið hefur endur- goldið þessar heimsóknir og farið i leikferðir. Má þvi hiklaust telja að félagið hafi unnið mikið gagn i leiklistarmálum norðanlands. 1 afmælisriti á 30 ára afmæli LA segir Hallgrimur Valdimarsson á þessa leið: „Allmikið hefir verið um leik- farirúr höfuðstaðnum til Norður- lands og þá fyrst og fremst til Akureyrar. Hafa þær sett stór- mikinn svip á leiklistarlif bæjar- ins. Sumarið 1931 sýndi Leikfélag Reykiavikur hér Hallstein og Dóru, eftir Einar H. Kvaran. Næst var svo Jósafat, eftir sama höfund. Léku þar nokkrir leikend- ur hér með. Munu þeir Haraldur Björnsson og Freymóður Jó- hannsson hafa haft fjárhagslega mestan veg og vanda af þeirri leikför. Þá hefir verið komið með óperetturnar, Bláu kápuna og Nitouche. Stóðu að þeim leikför- um tónlistarmenn Reykjavikur og að Nitouche, að nokkru, Leik- félag Reykjavikur. Leikstjórn á öllum þessum sýningum hafði Haraldur Björnsson á hendi. Sið- asta leikför Leikfélags Reykja- vikur hingað var með Orðið, eftir Kaj Munk. Leikstjóri var Lárus Pálsson. Þá vil ég geta hér einnar leik- sýningar, er hér hefir farið fram, en það er þegar hinn mikli, danski leikari, Poul Reumert, kom hing- að árið 1929, ásamt önnu Borg, leikkonu. Sýndu þau leikinn Galgemanden, sem er i einum þætti. Ennfremur las Reumert upp. Var stórmikill fengur að kynnast list þessara frægu gesta.” Leikarar LA 1917-1930 Ef haldið er við þeirri skipt- . ingu, sem viða kemur fram hjá þeim,er ritað hafa um LA, það er starf félagsins fyrir og eftir leik- árið 1930-31, er ekkert var leikið, voru helztu leikendur hjá félaginu Gisli R. Magnússon. Gisli var einnig gjaldkeri félagsins um skeið. Um þetta segir Hallgrimur Valdimarsson i afmælisriti félagsins (30 ára): Gisli var og gjaldkeri félagsins. Steinþór Guðmundsson klæðskeri var um nokkur ár, eða 1924-29, i félaginu og tók mikinn þátt i starfi þess. Hann er tvimælalaust einn af beztu leikurum, er það hefir haft á að skipa, og leiðbeindi leikendum allmikið. Þá má telja til góðra leikara þá Sigtrygg Þor- steinsson, Ingimar Eydal, Jó- hannes Jónasson, Pál Vatnsdal, Svein Bjarman, Jóhann Þ. Kröyer, Sigurð E. Hliðar, Tryggva Jónatansson o.fl. Af konum nefni ég Alfheiði Einarsdóttur, ennfremur Þóru Havsteen og Þóru Hallgrimsdótt- ur, sem allar léku talsvert og tókst vel. Þá léku og Anna Fló- ventsdóttir, Anna Pálsdóttir, Jó- hanna Jóhannsdóttir (Johnsen) Sigriður Ragnars, Þuriðui Stefánsdóttir, Dagrún Halldórs dóttir, Jóhanna ÞóFðardóttir Ingibjörg Steinsdóttir, Emilia Jónasdóttir og fleiri mætti nefna? Leikkonur 1930-47 Af leikendum eftir 1930, þ.e. timabilið 1930-1947, nefnir sami höfundur þessa: „Af konum ber þá fyrst að telja Svövu Jónsdóttur, sem tvimæla- laust er ein af allra beztu leikkon- um, er á Norðurlandi hafa dvalið. Hún mun og hafa leikið fleiri hlut- verk en flestir eða allir aðrir leikendur hér á þeim 47 árum, sem liðin eru, frá þvi hún kom fyrst á sviðið. Og margvisleg eru þau orðin. Af þeim nefni ég að- eins: Abigael i Ambrosius, frú Midget i A útleið, Unu i Dansinum i Hruna, Grimu i Skrúðsbóndan- um og nú siðast Helgu Magnús- dóttur i Bræðratungu, i Skálholti. Þá hefir Sigurjóna Jakobsdóttir leikið allmörg hlutverk og leyst þau flest ágætlega af hendi. Meðal þeirra Malla i Landafræði og ást, Þórgrima i Fróðá, Helga i Fvrsta stjórn Leikfélags Akureyrar. Hiillj’iiinin- 1’iiUiimarssoii. Sigurður E. Hliðnr. Jiilius Havstern.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.