Tíminn - 10.02.1974, Blaðsíða 21

Tíminn - 10.02.1974, Blaðsíða 21
Sunnudagur 10. febrúar 1974. TÍMINN 21 — Spjallað við Einar Þorsteinsson ráðunaut um búskap, umgengni á bæjum og sitthvað fleira nær yfir, það er að segja i Vestur-Skaftafellssýslu og i aust ustu hreppum Rangárvallasýslu. Vegna mikilla vegalengda hefur þessi skipan þótt henta betur. Eg hef að sjálfsögðu frá upphafi unnið hvað sem að höndum hefur borið i starfi minu. Eit't af minum fyrstu verkefnum — hinum stærri — var þegar Búnaðarsambandið minntist fimmtiu ára afmælis sins með landbúnaðarsýningu á Selfossi 1958, og ég var ráðinn framkvæmdastjóri sýningar- innar. Satt að segja var það heil- mikil eldskirn reynslulitlum manni, nýkomnum úr skóla. Þó gekk það allt sæmilega vel með aðstoð góðs fólks á Selfossi og starfsbræðra minna i Búnaðar- sambandinu. Sýningin varð fjölsótt og ég held, að hún hafi orðið vinsæl. — Er ekki mikið um að leitað sé til ykkar með hin margvislegustu vandamál? — Jú, það er alltaf annað slagið verið að þvi, að maður reynir að leysa úr þeim eftir beztu getu. Verksvið mitt er að vinna að jarðrækt og búfjárrækt. Það finnst mér fara vel saman, þvi að ég hef alltaf haft hina mestu ánægju af hvers konar ræktun, hvort sem um hefur verið að ræða kynbætur jurta eða dýra. Ég hef mælt fyrir skurðum, verið á sýningum og fundum og tekið þátt I félagslifi bænda og haldið erindi á fundum þeirra og samkomum. — Þetta hlýtur að vera skemmtilegt, að minnsta kosti innan um og saman við? — Já, mikil ósköp, það er það. Eins og þú minntist á áðan, þá er leitað til min með marga hluti og ólika, þvi að vandi fólks er harla misjafn. En það er nú einu sinni mitt verk að vera ráðgefandi og ég hef reynt að leysa hvert mál eins vel og ég hef getað. Ég hef eignazt marga vini, en ég held að mér sé óhætt að segja, að ég hafi ekki eignazt neinn óvin. Ef ég hef orðið einhverjum manni verulega ósammála, höfum við venjulega getað jafnað ágreininginn og orðið vinir fljótlega aftur Það er verulega gott að vinna með sunnlenzkum bændum. Sunnlenzkt sveitafólk er ákaflega skemmtilegt, gestrisið, félagslynt og framfarasinnað. Venjulega finnst mér dagarnir of fáir og of stuttir, þvi að ekki vantar verkefnin og þau eru þess eðlis, að maðurhlakkar tilaðfinna þau. Það er gott að vera bóndi — Nú ert þú ekki aðeins ráðunautur Búaðarsambands Suðurlands, heldur lika bóndi. Hvernig er að búa i Mýrdalnum? — Það er ljómandi gott. Mýrdalur er góð sveit, þvi að þar er veðrátta mild, þótt úrkoman sé mikil. 1 kringum Vik i Mýrdal er vist jafnmesta úrkoma á íslandi, en aftur á móti verður þar aldrei verulega hart frost, og þess vegna er sjaidgæft að þar verði mikill skaði af kali i túnum. Það kemur aðeins örsjaldan fyrir, og það út af fyrir sig er gífurlegur kostur og öryggi fyrir búskapinn. — Rekur þú sjálfur stórt bú? —Ég á dálitið bú sem ég vinn að samhliða ráðunautsstarfinu. Ég hef alltaf verið mjög búhneigður og hef mikið yndi af þvi að um- gangast skepnur og taka þátt i hinum daglegu störfum. Mér finnst ég hafa lært mikið á þvi, og það er nú svo, að það sem maður þykist hafa sjálfur reynt, það þorir maður að ráðleggja öðrum og segja þeim frá sinni reynslu. — Þú getur borið um það, bæði af reynslu og lærdómi, að bónda- starfið sé nú reyndar ekki svo slæm atvinna? — Það er hafið yfir allan efa, að bóndastarfið er ákaflega skemmtilegt og heillandi i sjálfu sér. Ræktun lands og ræktun búpenings hlýtur að heilla hug hvers manns, sem við hana fæst og þvi meira sem menn sökkva sér betur niður i verkefnið. Sjálf hin daglegu störf eru lika þess eðlis, aðmönnum leiðast þau ógjarna. Vetur, sumar, vor og haust bjóða hvert upp á sin til- teknu verk, sem eru næsta ólik, þannig að fátt verður mjög vana- bundið. Allir vita að skepnur eru ólikar innbyrðis, þvi að engir tveir ein- staklingar eru eins. Góður bóndi þarf að þekkja vel sitt búfé, ekki aðeins að greina einstaklingana hvern frá öðrum heldur og að vera skyggn á þarfir hvers einstaklings i hópnum. Þarþurfa persónuleg kynni að vera fyrir hendi, ef vel á að fara. Vist er það fyrirtæki að vera bóndi. Búið er hans fyrirtæki, og fjárhagsleg velgengni bóndans fer eftir þvi, hvernig.honum tekst að reka þetta fyrirtæki sitt. Og þótt ýmsum kunni að þykja þetta nokkuð bindandi starf, þá ber hins' að gæta, að bóndinn getur talsverðu um það ráðið, hvenær hann vinnur sin verk, þótt vissulega þurfi að vinna þau öll og ekkert þeirra megi vanrækja. Að vera bóndi á góðri jörð i fallegri sveit, hafa sæmilegar fjárhagsástæður og búa við eigin fjölskyldulif, held ég að sé einhver hamingjusamlegasta jifsbraut sem menn geta kosið sér. En að sjálfsögðu verður það ekki alltaf háð eðli manna og upplagi, hvað þeim þykir skemmtilegt, — að hverju hugur þeirra hneigist. — VS. Einar Þorsteinsson ráðunautur Timamynd: Gunnar FLESTIR KLÆÐA SIG EKKI í SAMRÆMI VIÐ VEÐURFARIÐ VtSINDAMENN hafa verið að velta þvi fyrir sér, hvernig fólk heldur á sér hita, hvaða leiðir séu beztar til þess, og hvaða fatnaður sé hentugastur. Þeir hafa komizt að einni mjög einfaldri niðurstöðu, en hún er sú, að flestir klæða sig ekki nægilega vel að vetrarlagi. Veðurfari hefur verið skipt og það einkennt eftir þvi, hversu mörg fatalög eru fólkinu nauð- synleg. 1 Bretlandi er þriggja laga veðurfar, en það þýðir, að ekki nægja færri en þrjú lög af einhvers konar fatnaði til þess að halda hita á Bretum. Ekki vitum við fyrir vist, hversu mög lögin þurfa að vera hér á fslandi, en sennilega að minnsta kosti einu fleira en i Bretlandi. 1 grein, sem birtist nýlega i brezku bíaði, segir, að maður, sem þurfi að biða eftir strætis- vagni að vetrarlagi, sé venjulega i nærbuxum, sem framleiddar séu fyrst og fremst með það fyrir augum, að þær liti vel út og séu fallegar fyrir augað. Minna sé hugsað um, hversu hlýjar þær eru, þegar þær eru búnar til. Maður þessi er venjulega lika með trefil um hálsinn og með hanzka á höndunum, en honum er samt kalt. — Það er ekki að undra, segir dr. Harwood Belding, prófesor i umhverfiseðlisfræði við háskól- ann i Pittsburgh. — Þessi maður er að reyna að afbera þriggja laga veðurfar, en þó er hann aðeins klæddur eins og maður i tveggja laga veðráttu, það er að segja á búk og handleggjum, og maður i eins lags veðráttu á fót- leggjum, en aðeins hálfs lags á höndunum. Viða skin i bert — Viö þetta bætist svo það, að fatnaðurinn gapirhér og þar, og inn á milli er greið leið fyrir napran vindinn að komast að nöktu hörundi mannsins. Svo má jafnvel gera ráð fyrir, að þótt úti geti verið rigning eða snjókoma, þá sé maðurinn sennilega ekki með hatt á höfðinu. Stærstu mistökin i klæðnaðin- um liggja einmitt i þvi, að maður- inn er hattlaus, segja allir þeir sérfræðingar, bæði vestan hafs og austan, sem kynnt hafa sér þessi mál. Ef litið er á þjóðbúninga, sem sérstaklega eru hugsaðir fyrir þjóðflokka á köldum svæðum jarðarinnar, til dæmis Lappa og Eskimóa, þá má sjá, að þeim fylgja skinnhöfuðföt. Þetta frum- stæða fólk veit sem er, að mest hitatapið er út um höfuðið og hálsinn aftanverðan. Til þess að viðhalda likamshitanum, dregur likaminn sjálfkrafa úr blóð- rennslinu út undir skinnið, sér- staklega á fótum og höndum, en hins vegar er ekki hægt að draga úr blóðrennslinu tii höfuðsins. Þess vegna fer mestur hiti til spillis á höfðinu. Öfgarnar verstar Ef fólk er úti i miklum kulda, ætti það að hugsa um það, að allur likams hiti manns, sem erfiðar, getur rokið út af höfðinu. Þvi er meira að segja þannig varið, að fjórðungur hitans, sem hverfur úr likama þess, sem er I meðalheitu herbergi, hverfur út um höfuðið. og mestmegnis um þá hluta höfuðsins, sem undir venjulegum kringumstæðum ættu að vera varðir af hatti eða húfu. Ef fólk vill raunverulega reyna að halda á sér hita, á það að hafa eitthvað á höfðinu, þegar það er utan dyra. Þegar menn koma inn úr köldu veðri, klæða þeir sig venjulega úr sem alira mestu þegar i stað. Dr. Paul Siple, sérfræðingur i kulda- klæðnaði hjá Bandarikjaher, segir, að þetta sé álika kjánalegt og að klæða sig illa utan dyra. Fólki er heitt, og það rifur sig úr fötunum, en það heldur áfram að cvitna. Svitinn kólnar siðan fljótt. þótt nokkuð hlýtt sé inni, og afleiðingin er sú, að hroll setur að manneskjunni. Þegar komið er inn úr kulda, á fólk að fara smátt og smátt úr útifötunum, þannig aö likaminn fái tækifæri til þess að aðlagast aðstæðunum innan dyra. Miklar framfarir hafa átt sér stað meða! fataframleiðenda. sem framleiða útifatnað, en tvennt er það, sem erfitt hefur reynzt að leysa. Fatnaður getur verið nokkuð þungur, ekki sizt ef lögin eru orðin mörg. Gerviefni eru þó mun léttari en ullin og er það nokkur bót. Hitt er það að erfitt er að finna nægilega heita vettlinga, sem um leið eru ekki svo fyrirferðarmiklir, að þeir komi i veg fyrir, að hægt sé að vinna með þeim. Engin lausn hefur fundizt á þessu tvennu. Einu viljum við þó bæta.hér við i sambandi við ullarfatnaðinn. og það er, að þótt gerviefnin hafi nú að nokkru leyti komið i staðinn fyrir ullina, sem vel getur verið i stórborgum erlendis þá getur seint nokkuð komið i stað ullar- innarhér á tslandi, og eitt er vist. að lendi fólk i hrakningum. hvort sem er uppi á öræfum lslands eða á hafi úti. þá er ekkert sem getur fremur bjargað lifi þess en góður islenzkur ullarfatnaður. Það hefur sýnt sig og sannað hvað eftir annað. (Lauslega þytt fb) Höfuðfatið er nauðsynlegt til að halda á sér hita í kulda

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.